Hin árlega fræðsluganga Urriðadans verður á Þingvöllum þann 15.okt. og hefst við bílstæðin við Valhöll kl.14. Það má með sanni segja að þessar göngur eru hreinasta æfintýri fyrir alla þá sem þær sækja og hvet ég menn eindregið til að mæta á staðinn. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum laxfiskar.is Sjáumst á Þingvöllum á laugardaginn.
-
Urriðadans á Þingvöllum 2011
Höfundur:
-
Veiða og sleppa
Af og til heyrir maður af veiðimönnum sem fussa og sveia þeirri ‚dellu‘ að veiða og sleppa, hafa meira að segja frammi einhver uppsteyt við veiðiverði þar sem skírt og skorinort skal fylgt reglunni veiða / sleppa. Sjálfur hef ég enga samúð með mönnum sem veiða fisk á skilorði og þykir erfitt að láta frá sér sinn fyrsta eða stærsta. Öðru máli finnst mér gegna um þá sem sleppa á eigin forsendum og gera það rangt. Að sleppa fiski er ekki alltaf eins auðvelt og ætla mætti. Ef þú ætlar þér að sleppa, vertu þá snöggur að taka hann að landi. Því lengur sem viðureignin er dregin á langinn, því minni líkur eru á að fiskurinn lifi af. Þannig er að á meðan við glímum við fiskinn fyllist hann af eitruðum mjólkursýrum sem geta lamað hann í höndunum á okkur eða skömmu eftir að við sleppum honum. Það er ekki alltaf hraustleikamerki að fiskurinn taki kipp um leið og við setjum hann niður í vatnið, þetta getur verið fölsk vísbending, hann getur örmagnast um leið og sýrurnar losna úr læðingi og streyma um líffærin. Ein varúðarregla er e.t.v. sú að sleppa fiskinum ekki alveg strax, settu hann í vatnið, haltu honum eins laust og þú þorir án þess að missa hann, helst með trýnið á móti straumi/öldu og leyfðu honum að jafna sig aðeins. Þegar hann hefur róast og losað um streituna fer ekkert á milli mála þegar hann vill og getur losnað. Eins verður alltaf að meta það hvort blæðingar fisks séu þannig að honum sé ekki hugað líf. Aldrei skal sleppa fiski ef blæðir úr tálknum, þá getum við alveg eins hent slógi í vatnið, sem auðvitað engin heiðarlegur veiðimaður gerir.Höfundur:
-
Sléttuhlíðarvatn – 7.okt.
Þetta var svo sannarlega dagur veiðifélaga míns, konunnar. Hún átti erindi norður að Hólum í Hjaltadal til að taka við Diploma í viðburðastjórnun frá Háskólanum að Hólum og ég fékk að fljóta með. Og auðvitað var athugað með veiði í leiðinni. Já, þótt það sé komið vel fram á haustið þá er enn hægt að komast í veiði, t.d. hjá bændunum að Hrauni á Sléttuhlíð rétt norðan Hofsóss. Við mættum á staðinn eftir glæsilega útskriftarveislu að Hólum upp úr kl.17 svo það var ljóst að ekki gæfist langur tími til veiða. Og það var eins og fiskurinn vissi þetta líka því ekki liðu nema örfá köst þar til konan fékk ágæta töku, en missti. Leið og beið nokkur stund og lítið urðum við vör við fisk, en vissum þó af honum. Eyddum mestum tíma í að brjóta ísinn reglulega úr lykkjunum, það var helv…. kalt en fallegt veður. Rétt um það bil sem síðustu geislar sólar náðu til okkar fékk ég ágæta töku rétt við vatnsbakkann og á sama augnabliki varð ég var við fisk á hina höndina, urriðinn var kominn upp á grunnið. Að vísu missti ég af fiskinum en frúin tók tvo væna hænga í tveimur köstum og bætti síðan um betur með einni hryggnu þegar við sáum í raun ekkert lengur til. Sem sagt; frúin með eitt diploma og þrjá urriða á Dentist, ég ekki með neinn fisk en mjög montinn af henni. Haustið getur verið fallegt og engin ástæða til að hætta veiðum strax, ullarföt og stúkur hjálpa svo til við að halda hita á manni.Þess má til gaman geta að hryggnan var vel hrognafull, en ekkert los komið í hrognin þannig að væntanlega eru enn einhverjir dagar í hryggningu í vatninu.
Höfundur:
-
Vefsamfélagið
Veraldarvefurinn er ótrúleg uppspretta upplýsinga og miðlunar. Í gegnum tíðina hef ég skráð mig fyrir hinum ýmsustu þjónustum og reynt að sanka að mér tenglum um ýmiss áhugamál, þar á meðal fluguveiði og fluguhnýtingar. Flestar samfélagssíður bjóða upp á að útbúa uppáhaldslista (favorits) eða áskriftir (subscriptions) sem auðvelda manni flokkun og yfirsýn. Um nokkurt skeið hef ég miðlað helstu samskiptasíðunum mínum hérna á blogginu og hvet menn endilega til að skoða það sem þar gefur að líta.
Google+ er nýjasta samfélagssíðan, ekki ósvipuð fésbókinni eins og hún var á góðri leið með að verða. Ég er í rólegheitunum að byggja mér circle, gengur hægt enda ekki mjög útbreytt samfélag enn sem komið er.
Fésbókina þekkja flestir, en færri virðast vita af þeim möguleika að stofna síðu (page) á bókinni. Hér miðla ég völdum greinum af blogginu og upplýsingum um aðrar Facebook síður sem ég fylgist með.Yudu er þjónusta sem stendur öllum opin til að miðla tímaritum og greinum á netinu. Hér safna ég saman þeim tímaritum og greinum sem ég tel að eigi sérstakt erindi til stangveiðimanna.
Issuu er enn önnur þjónusta þar sem notendum stendur til boða að setja inn og skoða tímarit um hin ýmsustu mál. Issuu hefur náð töluverðri fótfestu notenda á Íslandi og nokkuð er af íslensku efni á þessari síðu.
Vimeo er ekki ósvipuð síða og Youtube, en með aðeins öðruvísi blæ. Einhverra hluta vegna virðast atvinnumenn í ljós- og kvikmyndun sækja meira inn á Vimeo heldur aðrar síður. Mikið af góðu efni.
Formóðir allra myndmiðlunarsíðna. Ekki neinn skortur á efni, misjöfnu að gæðum en margt mjög gott á ferðinni.
Facebook síða (page) þeirra Mokveiði-bræðra. Alltaf eitthvað skemmtilegt að lesa og skoða, stiklur af þessu bloggi ásamt einni og einni klippu af Youtube síðu Gústafs Gústafssonar.Og til að fylgjast með öllu þessu og mjög mörgu öðru nota ég Google Reader og er óspar á að gerast áskrifandi að ýmsum síðum og bloggi, það er meira að segja hægt að gerast áskrifandi að fésbókarsíðum með RSS. Og ekki má gleyma að það er hægt að gerast áskrifandi að þessu bloggi hér.
Höfundur:
-
Gufusoðnar fjaðrir
Söfnunarárátta hefur alltaf fylgt mér og hefur ekkert skánað með árunum. Í mörg ár hef ég fyllt alla mína vasa af grjóti í gönguferðum, glerbrotum í fjöruferðum og nú síðustu ár, fjöðrum í veiðiferðum. Oftar en ekki eru þessar fjaðrir ekki upp á marga fiska þegar heim er komið og vasarnir tæmdir. Í skásta falli hefur þeim verið stungið í svamp á hnýtingarborðinu mínu til minningar um fjöður sem eitt sinn var ætluð í flotta flugu.Í sumar sem leið hélt ég uppteknum hætti, fyllti alla mína vasa af fjöðrum; bringu- og stélfjaðrir vatnarjúpu (álft), síðufjaðrir anda og gæsa. Í vetur ætla ég mér að nota þessar fjaðrir, hversu ljótar sem þær komu upp úr vösum mínum. Ég er nefnilega búinn að prófa að endurlífga svona fjaðrir og ná þeim sléttum og felldum eins og daginn sem þær féllu af fugli. Ráðið er einfalt; settu vatn ketilinn og leyfðu suðunni að koma upp. Við það að renna tættri og úfinni fjöður í gegnum gufuna í nokkur skipti réttist úr henni og merkilegt nokk, hún verður sem ný og krókarnir læsast aftur saman. Eitt ráð samt; notaðu flísa- eða frímerkjatöng til að halda á fjöðrinni því gufan er merkilega heit svona fersk úr katlinum.
Höfundur:
-
This is Fly okt.-nóv.
Það er ekki oft sem ég mæli með erlendum veiðitímaritum en október-nóvember blað This is Fly inniheldur nokkrar frábærar myndir sem Matt Harris tók við Langá og Hítará. Mæli með þessu veftímariti veiðimanna, þó ekki væri nema fyrir þessar frábæru myndir á bls.108 – 119. Kynnið ykkur málið hér.Höfundur:


