Ráfið á veraldarvefnum dregur mann víða. Sjálfur fylgist ég með bloggi og veiðisíðum víða að, m.a. Bandaríkjunum, Canada, Englandi, Skandinavíu og svo að neðan, Ástralíu og Nýja Sjálandi. En einhverra hluta vegna kemur það manni samt á óvart að einhver fylgist með Flugum og skröksögum utan Íslands. Myndina hér til hliðar setti ég saman úr upplýsingum um uppruna heimsókna á síðuna í febrúar og það sem af er mars 2012. Auðvitað er bara gaman af þessu, en ég vona samt að menn noti ekki Google Translate til að snúa efninu yfir á ensku (sjá dæmi).
Fá verk hafi haft jafn mikil áhrif og vakið jafn mikla hrifningu kastsérfræðinga og veiðimanna síðustu árin eins og The Essentials of Fly Casting eftir þá feðga Jay og Bill Gammel. Margir hafa gripið þetta efni og lagt út frá því, jafnt í riti sem og á mynd og má þar nefna fjölda greina á midcurrent.com, sexyloops.com og síðast en ekki síst FFF Federation of Fly Fishers. Hér á eftir ætla ég að setja fram mínar hugleiðingar og skilning á þessum grundvallaratriðum Gammel feðga.
Alveg sama hvort við erum byrjendur eða lengra komin, jafnvel ævafornir veiðimenn, þá er slakinn á línunni oftar en ekki að flækjast fyrir okkur. Sé línan ekki strekkt í upphafi kasts fer mikill kraftur og fyrirhöfn í að ná hleðslu í stöngina, nokkuð sem má forðast með því að byrja með strekkta línu. Skipuleggðu kastið alveg frá upphafi, losaðu þig við allan slaka með því að draga línuna inn eða nota t.d. eitt veltikast til að leggja hana vel út áður en þú tekur hana upp í nýtt kast. Ef þú notar upptökuna til að rétta úr línunni þá sóar þú afli sem annars væri betur varið í að hlaða stöngina fyrir næsta kast. Það er ekki ráð að beita meira afli í upptöku til að losna við slaka. Ótímabær hröðun á línu getur kallað fram nokkurs konar höggbylgju sem færist niður eftir stönginni, stöðvast í úlnliðnum á þér og leitar síðan aftur upp eftir stönginni í aftara stoppi og eyðileggur það. Okkur hefnist alltaf fyrir ótímabæra hröðun.
Ef ekkert væri ljósið væri engin liturinn, einfalt ekki satt. Og þetta er einmitt það sem við veiðimennirnir gleymum oft þegar kemur að lit á flugu í vatni. Vatn virkar eins og ljóssía. Efst í vatninu eru fáir litir sem falla út en því neðar sem dregur í vatninu falla fleiri litir út og á botninum sitjum við eftir með gráa eða alveg svarta flugu.
En það er fleira sem hefur áhrif á lit flugna heldur en dýpið. Flest vötninin okkar eru annað hvort blá- eða grænleit og þessir litir hafa líka áhrif á það hvernig og á hvaða dýpi litur flugunnar breytist. Ef vatnið er aftur á móti gruggugt þá hverfa litirnir enn fyrr, mögulega verðu allt orðið svart á innan við 2m.
Áberandi rauð fluga getur verið orðin svört í augum silungsins á u.þ.b. 10m dýpi við bestu skilyrði, heldur sem sagt litnum töluvert djúpt. Hvít fluga hegðar sér aftur á móti nokkuð ólíkindalega þar sem hvítur er jú samsuða allra lita. Hún heldur hvítum lit allt niður á 2m ef vatnið er þokkalega tært en tekur síðan nokkuð örum og áberandi breytingum á næstu metrum og flakkar allt litrófið þar til hún endar í svört.
Öllum þessum litabreytingum getum við komist hjá, þ.e. ef við endilega viljum það, með því að nota flúrljómaðan lit í flugur. Fluorcent þráður heldur sínum upprunalega lit alveg niður í svartasta myrkur undirdjúpanna þar sem hann þarf mun minni birtu heldur en hefðbundin þráður. Höfum þetta í huga þegar við setjum brodd eða haus á púpurnar okkar.
Ummæli
Siggi Kr : Þetta er góð pæling, sérstaklega ef maður er að veiða í gígum eða frá báti með mikinn sökkhraða (línan, ekki báturinn . En spurning hvernig dýpið fer með flugurnar sem hafa mikla endurspeglun, svosem silfur og gull-litaðar flugur og eins allt þetta crystal og flash efni sem er í mörgum flugum. Ætli það haldi flugunum okkar áhugaverðari niður á meira dýpi en ella?
Þegar við vitum af honum, þ.e. silunginum á ákveðnum stað í vatninu er um að gera að laumast að honum, aftan frá. Jafnvel þótt sjónsvið silungsins sé í raun nokkuð vítt, oft talað um einhvern 90° vinkil upp á við, þá er dauður blettur aftan við hann sem við getum nýtt okkur þegar við þurfum að fikra okkur nær. Mundu bara að því dýpra sem hann liggur, þeim mun víðar sér hann. Láttu fara eins lítið fyrir þér og unnt er og þú kemst töluvert nálægt honum.
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum fyrir norðan að RISE er á leiðinni, en nú hefur veðrið potað sér framfyrir í röðinni. Flugið norður er í athugun og ég hvet menn til að athuga stöðuna á sýningunni á heimasíðu RISE eða á Facebook. Stjána Ben. langar mikið að heyra frá ykkur t.d. með pósti á rise@icelandangling.com
Þær eru; ómótstæðilegar, smart, glæsilegar, þokkafullar og umfram allt augnayndi. Hverjar? Jú, klassísku straumflugurnar. Sjálfur fell ég oft og iðulega fyrir þeim þegar ég er á vafri um netið, get bara ekki hamið mig, sest niður og hnýti eins og tvær, þrjár, just for the fun of it. En, ég sit uppi með þessar flugur í boxinu mínu og finn sjaldnast praktísk not fyrir þær þegar í vatnið er komið.
Það er jú nokkuð útbreidd vitneskja að silungurinn leitar helst fæðu á botninum og þá oftast í líki lirfa, púpa eða kuðungs. Byrjaðu á botninum, þaðan liggja allar leiðir upp á við. Hnýttu púpur til veiða og láttu það eftir þér að hnýta litskrúðuga straumflugu, svona til að eiga.