Kannski er þetta að verða aðeins of mikið, en….. Flugur og skröksögur eru komnar á Twitter og heita því frumlega nafni @flugur Þar með geta lesendur og áhugasamir fylgst með fos.is á eftirfarandi miðlum:
-
Vefsamfélagið
Höfundur:
-
Gleraugnaklútur

Gleraugnaklútur Síðari hluta vetrar fóru nokkrir spjallverjar mikinn og lýstu því hvernig best væri að þrífa flugulínuna sína fyrir vertíðina. Eins og gengur komu margar og misjafnar aðferðir fram í dagsljósið. Töfralausnir eins og að bera hinar og þessar tegundir af bílavörum á línuna voru áberandi; Rain-X, Ultra Gloss, bílabón og Armor All. Í guðanna bænum, farið nú varlega eins og einn spjallverji benti á.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þessi umræða um það að menn eru að sækjast eftir hreinni línu / línu sem rennur vel. Ef línan þín hefur aldrei runnið auðveldlega þá er alveg sama hvað þú berð á hana, rennslið lagast ekki nema í skamma stund. Núningur línunnar við sig sjálfa á hjólinu og í gegnum stangarlykkjurnar er afskaplega fljótur að hreinsa undraefnið af henni.
Þegar litið er framhjá undraefnunum þá er það hrein lína sem rennur best og það eru ekki stóru skítaklessurnar sem eru leiðinlegastar heldur fasti fíngerði skíturinn. Fjárfesting í góðri flugulínu í upphafi ásamt míkróklút / gleraugnaklút borgar sig einna helst ef þú leitar að góðu rennsli. Ef þú ert duglegur veiðimaður og veiðir klukkustundum saman, láttu það eftir línunni að draga hana annars slagið inn í gegnum gleraugnaklútinn, jafnvel þótt þú sjáir engin óhreinindi á henni.
Ummæli
15.03.2013 – Urriði: Var einmitt að þrífa allar línur, hjól og stangir í gærkvöldi… núna er ekkert eftir nema að bíða eftir vorinu!
Svar: Vorið er barasta komið hér fyrir sunnan og svo hefur sést til lóu í grennd. Verst að vötnin eru ekki opin í ‘grennd’ en þetta fer nú að styttast.
16.03.2013 – Urriði: Allt undir ís hérna, -7°C og snjókoma…. ekkert vor á næstunni sýnist mér.
Svar: Frúin mín hafði á orði að þú ættir nú svo fallega á að sumri að það væri vel þess virði að bíða eftir vorinu, verð bara að vera sammála henni.
16.03.2013 – Þórunn: Sagði nú reyndar líka og á undan að ég vorkenndi honum ekkert!
Spurning um að hnýta nokkrar flugur í þessu veðrið, hvort sem menn vantar eða ekki
Bestu kveðjur austur.17.03.2013 – Urriði: Haha ég tek bara aukavaktir í staðinn fyrir að hnýta flugur, sagði upp vinnunni og hætti að vinna í lok maí til að geta leikið mér í sumar! Ég gæti ekki vorkennt sjálfum mér þó ég reyndi það

19.03.2013 – Þórunn: Langar svo að segja hérna….æji sjarap

Kristján: Auðvitað nýt ég þess að þetta er bloggið mitt og ég get alltaf sleppt því að samþykkja ummæli sem geta orkað tvímælis, ólíkt mörgum spjallvefjum þar sem innlegg eru ekki ritskoðuð 🙂 Ég sleppi þessu síðasta kommenti inn því ég sá öfundina í svip konunnar við þetta síðasta innlegg frá þér, Urriði, hreint óborganlegur svipur.
Höfundur:
-
Upprifinn
Það má með sanni segja að maður varð upprifinn eftir kynningu Geirs Thorsteinssonar á Elliðavatni í kvöld í húsakynnum SVFR, kærar þakkir fyrir mig. Stangaveiðifélagið og Veiðikortið eiga hrós skilið fyrir framtakið, vonandi verður framhald á að vatnaveiði verði gerð jafn góð skil og gert var í kvöld.
Tenglar á bæði Elliðavatnsbækling Geirs og Þingvallavatnsbækling SVFR eru nú komnir hér inn á síðuna og munu eiga sér fastan sess hér til hliðar ásamt bæklingi Veiðikortsins og öðrum vefbæklingum. Þeir sem ekki hafa enn kynnt sér þessa bæklinga eru hvattir til þess að hlaða þeim niður hið fyrsta.
Höfundur:
-
Hérinn
Þær þurfa ekki allar að vera flóknar eða fancy til að ganga í augun á silunginum og hér er ein sönnun þess. Afskaplega einföld fluga; krókur, kúla, tan þráður, koparvír og héradub. Ef fyrsta fluga byrjenda í fluguhnýtingum er t.d. Peacock, þá gæti þessi verið ágæt #2 ef menn vilja æfa sig í meðferð dub’s, mistök skipta engu máli, það má alltaf bæta við og mér hefur fundist hún nánast aldrei geta orðið of bústinn.
Hérinn er auðvitað bara einfölduð útgáfa að Héraeyranu heimsfræga og hefur fyrir löngu tekið frá fast sæti í boxinu mínu. Auðvitað verður hann með í för næsta sumar, bæði beinn og boginn (grubber) í stærðum #10, #12 og #14.

Hérar, bognir og beinir Ummæli
15.03.2013 – Urriði: Ég er pínu forvitinn um ykkur sem eruð álíka afkastamiklir í hnýtingum og meðalstór verksmiðja… þurfið þið allar þessar flugur? Ég er að missa svona 5-10 flugur á sumri, ef ég hnýtti svona mikið fyrir hvert sumar þá yrði ég að kaupa mér fleiri tugi veiðiboxa. Ætli ég hafi ekki hnýtt innan við 10 nýjar flugur fyrir þetta sumar og gert við svona 10 gamlar sem voru farnar að tætast.
Skil reyndar að það sé gaman að hnýta, sérstaklega í góðra vina hópi
Svar: Sko, ég er náttúrulega svo heppinn að vera að hnýta fyrir okkur bæði, hjónin. Annars er svarið auðvitað nei, ég hef örugglega ekkert að gera við allar þessar flugur en mér finnst kvöldunum ekkert síður varið í hnýtingar heldur en sjónvarpsgláp. Því miður hefur mér ekki tekist að ná saman ‘góðra vina hóp’ í hnýtingar t.d. á mínum vinnustað og svo er ég náttúrulega svolítið sér á parti, vinn mér inn efni og flugur langt fram í tímann fyrir þessa síðu. Er t.d. kominn með efni og búinn að setja á schedule greinar fram til loka júní.
16.03.2013 – Eiður Kristjánsson: Ég hnýti oftast 5 stykki í tveimur stærðum af hverri flugu fyrir sig. Er svo með 4-5 box með mér í bakpoka þegar ég fer að veiða en eitt í vöðlujakkanum/vestinu sem ég vel í.
Ég hnýti líka oftast aðeins extra þar sem mér finnst afar ánægjulegt að hafa flugur aukalega til að gefa ef ég lendi á spjalli við einhvern veiðimann á bakkanum.
Höfundur:
-
Elliðavatnsfræðsla

Elliðavatn á Veiðikortinu Að gefnu tilefni og vegna nokkurra fyrirspurna sem mér hafa borist hef ég fengið staðfest hjá SVFR að fræðslukvöldið á morgun (13.03.2013) um Elliðavatn er opið öllum, ekki aðeins félögum SVFR. Nú er um að gera að drífa sig og heyra hvað Háskólarektor Elliðavatns, Geir Thorsteinsson hefur fram að færa í húsakynnum SVFR í Elliðarárdalnum kl.19:30.
Af vef Veiðikortsins: Fræðslukvöld hjá SVFR um Elliðavatn.
Það verður mikið um að vera á fræðslukvöldi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19.30. Þá mun Geir Thorsteinsson, sem þekkir Elliðavatnið sjálfsagt manna best, kynna fyrir veiðimönnum veiði í Elliðavatni. Vatnasvæðið hefur oft verið nefnt háskóli veiðimannsins þannig að þessi „kurs“ hlýtur að vera veiðimönnum kærkominn.
Þeir sem vilja undirbúa sig fyrir kynninguna geta skoðað bæklinginn sem Geir hefur gefið út á rafrænu formi með því að smella hér.
Einnig verður hægt að kaupa Veiðikortið 2013 með afsláttarkjörum á staðnum.
Höfundur:
-
Stíffanir – biots

Geislar Flestir vita hvað ég er að fjalla hér um, en fyrir þá sem ekki þekkja til eru þetta stuttu, sveru geislanir á efri fön vængfjaðra. Í verslunum er algengast að finna tilskornar fjaðrir af gæs eða kalkún, litaðar í öllum mögulegum litum. En svo eru allar hinar fjaðrirnar sem við kaupum heilar eða verðum okkur úti um, þær luma einnig á þessum geislum sem oftar en ekki lenda í ruslinu hjá hnýtaranum þegar neðri fönin hefur verið fullnýtt. En það er engin ástæða til að farga þessu úrvals hráefni. Stíffanir má nota í skott, fætur, fálmara, vængstæði og búk á ýmsar tegundir flugna. Eins og gefur að skilja þá er lengd þeirra, stíf- og sverleiki nokkuð mismunandi eftir því af hvaða fugli fjöðrin er og ágætt að þekkja aðeins til mismunandi eiginleika hverrar tegundar áður en byrjað er að hnýta.
Stíffanir úr gæsafjöður eru yfirleitt stífari og frekar styttri. Þegar þeir eru notaðir í búk (vöf) mynda þeir þynnri og áferðarfallegri vafninga heldur en flestar aðrar tegundir. Annar styrkur þeirra er að þeir endast mjög vel og eru ekki eins viðkvæmir og margir aðrir. Á móti kemur að það getur verið nokkuð snúið að útbúa heilan búk úr þeim þar sem þeir eru svo stuttir, yfirleitt duga þeir ekki í stærri flugur en #14.
Stíffanir af kalkún eru aftur á móti lengri og henta því betur í heilan búk, en þar kemur á móti að þeir eru heldur viðkvæmari og vilja endast skemur.

Straumendur Svo eru það blessaðar endurnar. Ég er óttalegur safnari og beygi mig yfirleitt alltaf eftir fjöðrum sem ég rekst á úti í náttúrunni og oftar en ekki eru þetta andafjaðrir. En það er ekki nóg að safna þeim saman, maður verður jú að nota þær líka. Þess vegna hef ég fikrað mig áfram með að nota stíffanir af vængfjöðrum anda þegar mér finnst vanta líf í púpurnar mínar eða ábreiðu á vængstæðið. Og merkilegt nokk, stíffanir úr andafjöðrum hafa bara gefist mjög vel. Þær eru ekki eins stífar og af gæsinni og ef maður er heppinn þá eru þær ekkert styttri heldur en kalkúna fanir. Auðvitað eru þær bara í náttúrulegum litum, en þannig eru nú flest skordýrin líka.

Copper John Stuttar og sverar stíffanir henta best í skott eins og t.d. á Copper John. Löngu fanirnar eru hentugri í vafninga eða búk eins og t.d. í Prince Nymph.
Auðvitað eru löngu og breiðu fanirnar hentugastir í búk, en einhvern veginn finnst manni aldrei að einn geisli nái því að vera bæði breiður og langur. En það eru kannski bara hindurvitni eða fordómar, nokkuð sem stíffanir hafa mætt lengi hjá hnýturum. Ekki er óalgegnt að heyra af mönnum sem finna þessu efni allt til foráttu og beinlínis sneiða hjá flugum sem gera ráð fyrir geislum í uppskrift.
Það eru alltaf tveir möguleikar á að þekja búk með geisla. Annað hvort vill maður hafa yfirborðið slétt eða hrufótt. Allar fanir eru örlítið sveigðir þegar þeir koma úr föninni. Festir þú geislann þannig niður að hann sveigist upp, verðra samskeytin hrufótt, en festir þú geislann þannig að hann sveigist niður verður yfirborðið slétt.
Að lokum eru hér nokkur ráð við meðhöndlun geisla:
- Þegar maður fjarlægir geisla af hryggnum á alls ekki að skera eða klippa þá, heldur rífa. Ef maður rífur þá af hryggnum fylgir oft örlítil hornhimna með sem gott er að hafa til að festa fjaðurtöngina á.
- Til að komast hjá því að brjóta geislana er ágætt að væta þá stundarkorn í volgu vatni áður en þeir eru notaðir. Eins getur dugað að leggja þá í blauta bréfþurrku í smá stund.
- Þegar byrjað er á vafningi á flugu skal festa odd geislans aftast á öngulinn og láta hann vísa í átt að auga öngulsins og vinda síðan fram eftir önglinum.
- Best er að tryggja hvern einasta vafning á flugunni með hnýtingarþræði fremst á hverjum vafningi. Annars er hætt við að búkurinn losni upp þegar sá stóri nartar í fluguna.
- Þegar nota á tvo geisla í skott á flugu er betra að hnýta báða niður í einu, tvo til þrjá vafninga til að byrja með þannig að unnt sé að stilla þá af áður en gegnið er endalega frá þeim.
- Þolinmæði og smá umhyggja er yfirleitt allt sem þarf til að ná góðum tökum á því að hnýta með geislum. Ekki gefast upp þótt þú brjótir fyrstu 100 geislana sem þú reynir við.
Höfundur:














