Í gegnum tíðina hef ég alltaf átt Watson’s Fancy púpu með silfurvafi og silfurkúlu í boxinu. Einstaka sinnum hefur síðan gyðla í stíl slæðst í boxið og svo berrassaður grubber sem hefur fengið að halda viðurnefninu Watson’s þó hann ætti e.t.v. frekar að vera kenndur við orm, blóðorm. Hvað um það, í minningunni er Watson’s Fancy púpan eina flugan með silfruðum kúluhaus sem hefur krækt í bleikju fyrir mig. Trúlega er þetta bara eitthvert bull í mér, en ég verð eiginlega að eiga nokkur svona kvikindi, annars finnst mér eitthvað vanta í boxið. Kannski er það vegna þess að ég hef ekki alveg fundið mig með Killer, frekar veðjað á þessa klassísku rauðu og svörtu púpu sem flestir silungsveiðimenn kannast við. Stærðirnar; smærri frekar en stærri, #12, #14 og #16.
Kannski er þetta að verða aðeins of mikið, en….. Flugur og skröksögur eru komnar á Twitter og heita því frumlega nafni @flugur Þar með geta lesendur og áhugasamir fylgst með fos.is á eftirfarandi miðlum:
Síðari hluta vetrar fóru nokkrir spjallverjar mikinn og lýstu því hvernig best væri að þrífa flugulínuna sína fyrir vertíðina. Eins og gengur komu margar og misjafnar aðferðir fram í dagsljósið. Töfralausnir eins og að bera hinar og þessar tegundir af bílavörum á línuna voru áberandi; Rain-X, Ultra Gloss, bílabón og Armor All. Í guðanna bænum, farið nú varlega eins og einn spjallverji benti á.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þessi umræða um það að menn eru að sækjast eftir hreinni línu / línu sem rennur vel. Ef línan þín hefur aldrei runnið auðveldlega þá er alveg sama hvað þú berð á hana, rennslið lagast ekki nema í skamma stund. Núningur línunnar við sig sjálfa á hjólinu og í gegnum stangarlykkjurnar er afskaplega fljótur að hreinsa undraefnið af henni.
Þegar litið er framhjá undraefnunum þá er það hrein lína sem rennur best og það eru ekki stóru skítaklessurnar sem eru leiðinlegastar heldur fasti fíngerði skíturinn. Fjárfesting í góðri flugulínu í upphafi ásamt míkróklút / gleraugnaklút borgar sig einna helst ef þú leitar að góðu rennsli. Ef þú ert duglegur veiðimaður og veiðir klukkustundum saman, láttu það eftir línunni að draga hana annars slagið inn í gegnum gleraugnaklútinn, jafnvel þótt þú sjáir engin óhreinindi á henni.
Ummæli
15.03.2013 – Urriði: Var einmitt að þrífa allar línur, hjól og stangir í gærkvöldi… núna er ekkert eftir nema að bíða eftir vorinu!
Svar: Vorið er barasta komið hér fyrir sunnan og svo hefur sést til lóu í grennd. Verst að vötnin eru ekki opin í ‘grennd’ en þetta fer nú að styttast.
16.03.2013 – Urriði: Allt undir ís hérna, -7°C og snjókoma…. ekkert vor á næstunni sýnist mér.
Svar: Frúin mín hafði á orði að þú ættir nú svo fallega á að sumri að það væri vel þess virði að bíða eftir vorinu, verð bara að vera sammála henni.
16.03.2013 – Þórunn: Sagði nú reyndar líka og á undan að ég vorkenndi honum ekkert! Spurning um að hnýta nokkrar flugur í þessu veðrið, hvort sem menn vantar eða ekki Bestu kveðjur austur.
17.03.2013 – Urriði: Haha ég tek bara aukavaktir í staðinn fyrir að hnýta flugur, sagði upp vinnunni og hætti að vinna í lok maí til að geta leikið mér í sumar! Ég gæti ekki vorkennt sjálfum mér þó ég reyndi það
19.03.2013 – Þórunn: Langar svo að segja hérna….æji sjarap
Kristján: Auðvitað nýt ég þess að þetta er bloggið mitt og ég get alltaf sleppt því að samþykkja ummæli sem geta orkað tvímælis, ólíkt mörgum spjallvefjum þar sem innlegg eru ekki ritskoðuð 🙂 Ég sleppi þessu síðasta kommenti inn því ég sá öfundina í svip konunnar við þetta síðasta innlegg frá þér, Urriði, hreint óborganlegur svipur.
Það má með sanni segja að maður varð upprifinn eftir kynningu Geirs Thorsteinssonar á Elliðavatni í kvöld í húsakynnum SVFR, kærar þakkir fyrir mig. Stangaveiðifélagið og Veiðikortið eiga hrós skilið fyrir framtakið, vonandi verður framhald á að vatnaveiði verði gerð jafn góð skil og gert var í kvöld.
Tenglar á bæði Elliðavatnsbækling Geirs og Þingvallavatnsbækling SVFR eru nú komnir hér inn á síðuna og munu eiga sér fastan sess hér til hliðar ásamt bæklingi Veiðikortsins og öðrum vefbæklingum. Þeir sem ekki hafa enn kynnt sér þessa bæklinga eru hvattir til þess að hlaða þeim niður hið fyrsta.
Þær þurfa ekki allar að vera flóknar eða fancy til að ganga í augun á silunginum og hér er ein sönnun þess. Afskaplega einföld fluga; krókur, kúla, tan þráður, koparvír og héradub. Ef fyrsta fluga byrjenda í fluguhnýtingum er t.d. Peacock, þá gæti þessi verið ágæt #2 ef menn vilja æfa sig í meðferð dub’s, mistök skipta engu máli, það má alltaf bæta við og mér hefur fundist hún nánast aldrei geta orðið of bústinn.
Hérinn er auðvitað bara einfölduð útgáfa að Héraeyranu heimsfræga og hefur fyrir löngu tekið frá fast sæti í boxinu mínu. Auðvitað verður hann með í för næsta sumar, bæði beinn og boginn (grubber) í stærðum #10, #12 og #14.
Hérar, bognir og beinir
Ummæli
15.03.2013 – Urriði: Ég er pínu forvitinn um ykkur sem eruð álíka afkastamiklir í hnýtingum og meðalstór verksmiðja… þurfið þið allar þessar flugur? Ég er að missa svona 5-10 flugur á sumri, ef ég hnýtti svona mikið fyrir hvert sumar þá yrði ég að kaupa mér fleiri tugi veiðiboxa. Ætli ég hafi ekki hnýtt innan við 10 nýjar flugur fyrir þetta sumar og gert við svona 10 gamlar sem voru farnar að tætast. Skil reyndar að það sé gaman að hnýta, sérstaklega í góðra vina hópi
Svar: Sko, ég er náttúrulega svo heppinn að vera að hnýta fyrir okkur bæði, hjónin. Annars er svarið auðvitað nei, ég hef örugglega ekkert að gera við allar þessar flugur en mér finnst kvöldunum ekkert síður varið í hnýtingar heldur en sjónvarpsgláp. Því miður hefur mér ekki tekist að ná saman ‘góðra vina hóp’ í hnýtingar t.d. á mínum vinnustað og svo er ég náttúrulega svolítið sér á parti, vinn mér inn efni og flugur langt fram í tímann fyrir þessa síðu. Er t.d. kominn með efni og búinn að setja á schedule greinar fram til loka júní.
16.03.2013 – Eiður Kristjánsson: Ég hnýti oftast 5 stykki í tveimur stærðum af hverri flugu fyrir sig. Er svo með 4-5 box með mér í bakpoka þegar ég fer að veiða en eitt í vöðlujakkanum/vestinu sem ég vel í.
Ég hnýti líka oftast aðeins extra þar sem mér finnst afar ánægjulegt að hafa flugur aukalega til að gefa ef ég lendi á spjalli við einhvern veiðimann á bakkanum.
Að gefnu tilefni og vegna nokkurra fyrirspurna sem mér hafa borist hef ég fengið staðfest hjá SVFR að fræðslukvöldið á morgun (13.03.2013) um Elliðavatn er opið öllum, ekki aðeins félögum SVFR. Nú er um að gera að drífa sig og heyra hvað Háskólarektor Elliðavatns, Geir Thorsteinsson hefur fram að færa í húsakynnum SVFR í Elliðarárdalnum kl.19:30.
Af vef Veiðikortsins: Fræðslukvöld hjá SVFR um Elliðavatn.
Það verður mikið um að vera á fræðslukvöldi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19.30. Þá mun Geir Thorsteinsson, sem þekkir Elliðavatnið sjálfsagt manna best, kynna fyrir veiðimönnum veiði í Elliðavatni. Vatnasvæðið hefur oft verið nefnt háskóli veiðimannsins þannig að þessi „kurs“ hlýtur að vera veiðimönnum kærkominn.