Síðustu tvö sumur hef ég veitt í Veiðivötnum og notið þess ómælt, bæði hvað varðar náttúru og félagsskap annarra veiðimanna í hollinu. Í bæði þessi skipti hef ég verið svo lánsamur að veður og veiði hefur leikið við mig og trúlega mundi það engu breyta fyrir mig þótt annað er bæði brygðust.
Síðastliðinn vetur hitti ég eldri veiðimann, hokinn af reynslu sem innti mig eftir upplifun minni af Vötnunum. Umsvifalaust hóf ég hástemmda lýsingu á náttúrunni, fjölbreytileikanum, mannlífinu og …. bara öllu sem ég hafði innbirgt á staðnum. Í miðri ræðunni tók ég eftir gráma og leiða sem færðist yfir ásjónu þessa reynda veiðimanns þannig að ég gleypti mína síðustu setningu, lækkaði róminn og ég laumaði út úr mér; En hvað með þig? Svarið kom mér svolítið á óvart og ég þurfti svolítinn tíma til að melta það; Ég hef nú ekkert farið síðan gemsarnir fóru að virka þarna uppfrá.
No signal
Fyrir yngri veiðimenn sem ekki þekkja neitt annað en að GSM símar virki nánast alls staðar á landinu, þá skal það upplýst að það eru ekki svo mörg ár síðan að GSM sambandi var komið á í Veiðivötnum. Fyrir þann tíma virkuðu aðeins NMT símar á svæðinu og þar á undan bara talstöðvar.
Auðvitað er gott að geta haft samband við umheiminn þegar upp á fjöll eða hálendi er komið, þó ekki væri nema vegna öryggisins sem fylgir því að geta gólað á hjálp ef eitthvað ber útaf. Sjálfur nýt ég þess út í ystu æsar að geta dottið úr sambandi við alla tækni (segi ég með GPS tæki, digital mynda- og vídeóvélar). Mér finnst það oft beinlínis óviðeigandi þegar ég er búinn að koma mér fyrir við eitthvert fjallavatn þegar skyndilega upphefst skerandi Nokia hringing handan næsta hóls og svo; Halló …. nei, ég er í Veiðivötnum …. Hva, sástu ekki myndina af mér á Facebook í gær ….
Við erum nefnilega ennþá til sem njótum þess að komast í samband við náttúruna og til þess þarf maður stundum að geta dottið úr sambandi við nútímann, í það minnsta geta stjórnað því hvenær nútíminn hringir. Þess vegna slekk ég iðulega á símanum mínum eða skil hann eftir í veiðihúsinu eða bílnum. Það er svo margfalt skemmtilegra að njóta náttúrunnar, ótruflaður.
Nú er vika liðin frá fyrstu grein minni um virkjanir í Neðri-Þjórsá og mér hefur því gefist tími til að lesa mér til um virkjun númer tvö; Holtavirkjun. Ef ég á að vera fullkomlega hreinskilin, þá hefur tilfinning mín fyrir þessum virkjunum ekki batnað við þann lestur, hvað þá tilkynningu Landsvirkjunar um ráðstöfun orkunnar úr Hvammsvirkjun sem kom fram aðeins tveimur tveimur dögum eftir að fyrsta grein mín birtist. Hvammsvirkun er sem sagt ætluð til kísilmálmvinnslu Thorsil í Helguvík. Ég læt liggja á milli hluta álit mitt á ráðstöfun orkunnar úr Þjórsá, þar greinir mig verulega á við forsvarsmenn Landsvirkjunar.
Ég hef alltaf verið svolítið veikur fyrir fossum á Íslandi og það eitt að tilkoma Holtavirkjunar yrði til þess að þurrka tvo þeirra upp, Hestafoss og Búða, er eiginlega nóg til að ég er ósáttur við þessi áform. En fleira kemur vitaskuld til.
Búði – Mynd: Landsvirkjun
Hér að ofan má sjá samsetta mynd úr gögnum Landsvirkjunar sem nær til stíflunnar við Búða. Þarna var byggður fiskvegur árið 1991 sem hefur svo sannanlega skotið styrkari fótum undir laxagengd í Þjórsá. Ég get ekki skilið gögn Landsvirkjunar á annan veg en þessi fiskvegur verði óþarfur, því lítið sem ekkert vatn mun renna niður Búða eins og þó er sýnt á myndinni. Gangi áætlanir eftir um Holtavirkjun mun árfarvegurinn standa þurr nema í stærstu flóðum þegar hleypa þarf framhjá stíflunni.
Áform þessarar virkjunar eru að nokkru frábrugðin Hvammsvirkjunar hvað varðar uppistöðulónið. Ekki er gert ráð fyrir jafn mikilli söfnun framburðar í Árneslón eins og í Hagalón og því gætu lífslíkur fiska verið eitthvað skárri, en þar kemur á móti að lónið yrði töluvert stærra og fjórðungur þess mundi sökkva víðfeðmu votlendi þar sem yfir 1000 varpfuglar hafa tekið sér bólfestu. Eins og þetta sé ekki nóg, þá hefði þessi virkjun í för með sér lengstan þurra kafla Þjórsár af öllum virkjunarkostunum þremur, 10 km. frá Búða og niður fyrir Árnessporð. Á þessum 10 km. kafla eru einhver stærstu búsvæði laxins í Þjórsá. Þessi kafli verður heldur rýr ef aðeins Kálfá rennur um hann frá gömlu ármótunum við Miðhúsahólma og það er lítil von til að fiskur fjölgi sér á þurru landi. Landsvirkjun hefur haldið því fram (MBL 23.03.2012) að mótvægisaðgerðir sem ráðist yrði í mundu tryggja fiskistofnum ásættanleg búsvæði í stað þeirra sem mundu eyðileggjast.
Árnessporður – Mynd: Landsvirkjun
Þessi fyrirhugaða virkjun hefur, rétt eins og Hvammsvirkjun, verið spyrt saman við Urriðafossvirkjun með þeim rökum að fyrrnefndu virkjanirnar séu forsenda Urriðafossvirkjunar með tilliti til ísstjórnunar í neðri hluta Þjórsár. Holtavirkjun hefur jafnvel verið tengd umræðu um jákvæð áhrif Urriðafossvirkjunar á framtíð laxastofns Þjórsár. Eitthvað er ég nú hræddur um að sú tenging sé á veikum grunni byggð og kýs því að leiða hana alfarið hjá mér þar til vísindalegar niðurstöður liggi fyrir, þ.e. heildstæðari en þær sem unnt er að nálgast í dag. Fiskirannsóknir á þessu svæði hafa að mestu leyti einskorðast við laxagengd í Kálfá, staðbundnir stofnar hafa orðið útundan í rannsóknum eins og áður er getið, það er engu líkara en skollaeyrum sem skellt við tilvist þeirra stofna.
Holtavirkjun – Kort: verndumthjorsa.is
Svo fráleit sem áform um Holtavirkjun eru í mínum huga ætla ég að láta hér staðar numið. Það er vart eyðandi fleiri orðum í hugmynd að virkjun sem hefur jafn mikil spjöll í för með sér eins og þessi áform bera með sér. Ég vonast til að þessi virkjun verði fljótlega færð úr biðflokki í ruslið.
Það er einkennilegt hve lítil augnablik geta greypt sig svo fast í minni að þau mást aldrei út. Ég á mér eitt svona augnablik, lítið andvarp sem ég deili með besta vini mínum. Þetta var fyrir nokkuð mörgum árum, fleiri en ég vil endilega tilgreina, að við hjónin vorum á ferð í Þjórsárdal á leið inn að Stöng með tjald, prímus og nesti. Þetta var á þeim árum sem þjóðvegurinn lá innan og yfir Gaukshöfða, leiðinlegur malarvegur, holóttur og beinaber. Rétt í þann mund sem við komum yfir höfðann heyrði ég hvar frúin greip andann á lofti, leit angurvært yfir dalinn þar sem hann lá baðaður í geislum kvöldsólarinnar fyrir framan okkur og hvíslaði; Guð, hvað þetta er fallegt. Þetta er augnablik sem gleymist aldrei. Ég efast ekki um að fleiri hafi fengið þessa tilfinningu og ég óska þess að enn fleirum gefist kostur á að upplifa hana um ókomin ár. Mögulega er því samt á annan veg farið því ásýnd þessa svæðis gæti tekið miklum stakkaskiptum til hins verra á næstu árum.
Í lok september rann út frestur til að skila inn athugasemdum við umhverfismat á fyrirhugaðri Hvammsvirkjun í Þjórsá og nýttu 39 aðilar sér tækifærið. Persónulega hefði ég kosið að fleiri aðilar hefðu nýtt sér þennan frest, en það er e.t.v. ekki fjöldi athugasemda sem skiptir máli heldur það sem þær innihalda. Þó aðeins ein vel ígrunduð athugasemd hefði komið fram, ætti hún að vera nóg til þess að vekja ráðmenn til umhugsunar um gildi þessa svæðis fyrir annað en orkuframleiðslu.
Eftir virkjun – Mynd: Landsvirkjun
Áhugafólk um verndun Þjórsár hefur bent á ýmsa vankanta á fyrirhuguðum virkjunum í neðri hluta árinnar, allt frá sjónmengun til óafturkræfra áhrifa á lífríkið, dýr og plöntur.
Frá því fiskvegurinn við Búða var opnaður árið 1991 hefur lax tekið sér bólfestu á svæðum í ánni sem lokuðust við jarðskjálftann árið 1896 og göngufiskur fært sig sífellt ofar í Þjórsá og þverár hennar. Þessarar fiskgengdar hefur orðið vart í Þverá, Sandá, Fossá og Minnivallalæk, veiðimönnum og náttúruunnendum til óblandinnar ánægju. Bæði lax og sjóbirtingur ganga nú í flestar, ef ekki allar þessara áa ofan Búða. Því hljómar það einkennilega að sjóbirtingurinn kemur lítið sem ekkert fram í niðurstöðum þeirra fáu rannsókna sem farið hafa fram á svæðinu, engar upplýsingar um stofnstærð né gönguhegðun og þar af leiðandi ekki gert ráð fyrir neinum mótvægisaðgerðum vegna hans. Það dugir ekki að skella skollaeyrum við tilvist birtingsins og láta eins og hann sé ekki til staðar. Endurskoðaðar áætlanir Landsvirkjunar gera ráð fyrir ‘stórum’ hverflum, gerð fiskfarvega og rennslisstýringu, allt eitthvað sem á að auðvelda fiskinum að ferðast… á pappírnum.
En það má ekki gleyma því að í Þjórsá og þverám hennar eru líka stofnar staðbundins urriða og bleikju. Þær litlu rannsóknir sem gerðar hafa verið á göngufiski á þessum slóðum ná ekki til staðbundins fiskjar að því er ég best veit og því eru engar mótvægisaðgerðir á döfinni fyrir þann fisk sem á sér fasta búsetu á virkjanasvæðinu.
Fyrir virkjun – Kort: verndumthjorsa.is
Mönnum hefur orðið tíðrætt um þá hrygningarstaði sem opnuðust ofan Búða og inn að Viðey árið 1991 og það með réttu. Svæðið er talið henta einstaklega vel til hrygningar og hefur örugglega átt stóran þátt í að auka viðkomu laxa í Þjórsá. En þarna er ekki aðeins að finna lax; urriði og bleikja hafa haldið til á þessum slóðum svo áratugum ef ekki hundruðum skiptir. Stór hluti þessa svæðis mun þorna upp ef af Hvammsvirkjun verður, þ.e. alveg frá virkjun og niður að Ölmóðsey eins og sjá má á kortinu hér að neðan.
Eftir virkjun – Kort: verndumthjorsa.is
Geta má nærri að svæðið ofan virkjunar, svo kallað Hagalón nýtist fiski ekkert til hrygningar vegna framburðar sem þar safnast saman og myndar botnset sem drepur allt líf. Með tilkomu Hagalóns raskast um 68% af búsetusvæði fiska á virkjanasvæðinu og þar við bætist að rennsli á milli annarra fyrirhugaðra lóna verður aðeins brot af núverandi rennsli Þjórsár í farvegum hennar. Nefndar hafa verið tölur um 10 – 15 rúmmetra á sek. í stað 360 – 400 í eðlilegu árferði. Það gefur augaleið að svo lítið vatn dugir seiðum og hrognum ekki til lífs. Heildarárhrif virkjunarinnar á vatnasvæði Þjórsár, neðan Búrfells, nema um 30% Áhugasömum um vernd svæðisins er bent á mikið efni sem finna má á vefnum Verndum Þjórsá.
Þegar ég nefni hér önnur fyrirhuguð lón á svæðinu hugsa ég til þess að Hvammsvirkjun er skv. minnisblaði OS; ..hluti af samfelldri heild virkjanasvæða. Vegna ísmyndunar í ánni þarf að byggja Hvammsvirkjun og Holtavirkjun á undan Urriðafossvirkjun. Hvammsvirkjun er aðeins fyrsta skrefið í keðju virkjana í Neðri-Þjórsá, hún er fyrsta skrefið í óafturkræfri eyðileggingu árinnar neðan Búrfells og trúlega sú sem mest áhrif hefur á lífríkið. Athugið, ég á eftir að skrifa greinarnar um Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun, ég gæti hæglega skipt um skoðun þegar ég hef lokið lestrinum um þær virkjanir.
Í sumar sem leið átti ég því láni að fagna að spreyta mig í veiði í Þverá við bæinn Fossnes. Í ármótum Þjórsár og Þverár er ótrúlegur veiðistaður þar sem staðbundinn fiskur, urriði og bleikja skjótast fram og til baka á milli bergvatnsins og jökulvatnsins auk þess sem göngufiskur, lax og sjóbirtingur stökkva í vatnaskilunum og gefa fyrirheit um kröftugar tökur. Þar sem ég stóð við ármótin og mátaði ýmsar flugur fyrir fiskinn, varð mér litið upp í hlíðina við afleggjarann að Gnúpverjavegi og sá hvar fyrirhuguð lónshæð er merkt með skilti. Verði að Hvammsvirkjun fer kletturinn sem ég stóð á undir vatn, nokkrar þúsundir tonna og væntanlega fá veiðimenn framtíðarinnar aldrei tækifæri til að njóta dásemda þessa svæðis. Ég vildi óska þess að önnur sjónarmið en peningar fái ráðið um framtíð Þjórsár og þess ótrúlega lífríkis sem þar er. Ég er hræddur um að uppistöðulón og varnargarðar fái ekki fólk til að andvarpa og segja; Guð, hvað þetta er fallegt.
Ármenn ætla að opna dyr félagsheimilis síns, Árósa upp á gátt miðvikudagskvöldið 21.okt. kl. 20:00 og bjóða öllum að kynna sér það góða starf sem fer fram í þessu eina fluguveiðifélagi Íslands.
Í grófum dráttum verður starf Ármann í vetur með svipuðu sniði og undanfarin ár. Ármenn hittast á mánudagskvöldum á ‘Skegg og skott’ þar sem hnýtt er á öngla og í veiðifélaga en á miðvikudagskvöldum er opið hús og yfirleitt einhverjir áhugaverðir fyrirlestrar eða kynningar á döfinni. Dagskrá þessara kvölda hefst stundvíslega kl.20:00, báða dagana.
Ármenn er félagsskapur fluguveiðimanna sem berst lítt á og hugsa fyrst og fremst um að eiga gott sambýli við allt sem að veiðum lýtur. Félagið var stofna árið 1973 og er ennþá eina fluguveiðifélag landsins. Af eigin reynslu get ég eindregið mælt með þessum félagsskap. Ármenn eru höfðingjar heim að sækja, taka sjálfa sig mátulega alvarlega en eru alltaf reiðubúnir að leiðbeina hvorir öðrum þegar á reynir.
Það er næstum ómögulegt að strippa straumfluguna á of miklum hraða fyrir urriðann. Hver þekkir ekki tökurnar þegar maður spólar síðasta kastið inn á hjólið í stað þess að beita hefðbundnum inndrætti. Auðvitað geta svona síðbúnar tökur verið rosalega svekkjandi þegar maður hefur jafnvel verið að berja vatnið svo klukkustundum skiptir án þess að verða var og svo spólar maður inn í fýlukasti og…. BANG, fiskur á.
Í sumar sem leið tók veiðifélagi minn mig á örnámskeið í strippi. Nú bið ég lesendur um að róa sig, hér var um námskeið í inndrætti að ræða, ekki fatafellingum. Hvað um það, 99% af minni reynslu í fluguveiði hefur orðið til í silungsveiði þannig að ég hef ekki samanburð á strippi fyrir lax og silung. Af því sem ég hef þó séð, þá er það hreint og beint púl að strippa fyrir lax og eins og gott að hafa hraðar hendur. Nú sel ég ekkert, ekki einu sinni þann orðróm sem ég heyrði um árið að þetta ógnar stripp fyrir laxinn sé til að æsa hann til töku frekar en auglýsa eitthvert æti. Ég get svo sem samsvarað þetta að einhverju leiti við urriða. Stundum er einfaldlega nauðsynlegt að rífa fiskinn upp úr logmollunni og draga inn eins og ands…… sé á hælum flugunnar, þá tekur hann með látum og gefur ekkert eftir.
Bleikjur
En víkjum aftur að örnámskeiði í strippi. Veiðifélaga mínum er lagið að egna bleikjur til að taka litla Nobblera þegar ekkert annað virkar, helst bleika Nobblera. Ég svo sem þóttist geta þetta líka, setti nákvæmlega sömu fluguna undir og strippaði, ekkert gerðist. Ég sleppti öllum pásum á stippinu, ekkert gerðist. Ég jók hraðann á strippinu og ég fékk viðbrögð, fá veiðifélaganum; Þú verður að strippa hraðar. Hraðar? Nei, hættu nú alveg. Bleikjan hefur í mínum huga alltaf haft yfir sér stimpil rólyndis og yfirvegunar, heldur orkueyðslu í lágmarki og étur aðeins það sem er innan seilingar. Á ég nú að gera ráð fyrir því að hún noti sporðinn af einhverju offorsi og göslist á eftir flugu sem flengist í gegnum vatnið á einhverjum ógnar hraða?
Ég lét það eftir félaga mínum og jók hraðann þar til mig var farið að verkja í öxl, arma og fingur. Auðvitað fékk ég bleikju og hef orðið að kyngja því fyrir lífstíð að bleikjan, þessi yndislega rólegi fiskur er greinilega af stofni laxfiska og getur því svipað hressilega til ættingja sinna, urriða og lax, þegar kemur að fæðuöflun.
Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður n.k. laugardag, 17. október. Að venju mun Jóhannes Sturlaugsson leiða gesti og gangandi í allan sannleikann um hegðun og atferli urriðans í Þingvallavatni. Kynningin hefst kl.14 við bílastæðið þar sem Valhöll stóð, gengið verður að teljaranum við brúnna og þaðan upp með ánni þar sem valdir höfðingjar og húsfreyjur Þingvalla verða til sýnis.
Þeir sem tök hafa á eru hvattir til að mæta á staðinn og njóta þess sem fyrir augu og eyru ber.