
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Watson’s Fancy

Watson’s Fancy Ein af mínum uppáhalds og framlag mitt í Febrúarflugur 2016. Flugan er Skosk eins og svo ótal margar frábærar klassískar flugur. Hnýtt af Donald nokkrum Watson frá Inverness. Það hefur vafist fyrir mönnum í fjölda ára hverju Donald var að reyna að líkja eftir þegar hann hnýtti þessa uppáhaldsflugu sína en trúlega hefur hann ekki haft neitt ákveðið í huga annað en það að urriðinn sækir í flugur með skörpum litaskilum.
Höfundur:
-
Orvis – Plate F
Orvis – Plate F úr Favorite flies and their histories sem er aðgengileg án endurgjalds hérna.

42. Green Weaver – 43. Golden Pheasant – 44. Gray Duke – 45. Fiery Brown – 46. Grackle – 47. Grasshopper Höfundur:
-
Butcher

Butcher – Moon Fly Næstum eins klassísk og þær geta gerst. Svona leit Butcher út þegar hún hét ennþá Moon Fly. Árið 1838 skipti hún um nafn og lit á haus og varð Butcher eins og við þekkjum hann í dag. Hnýtt sérstaklega fyrir Febrúarflugur 2016.
Höfundur:
-
Beygja og kreppa
Þegar ég hnýti t.d. tinsel í skott á flugu, þá nota ég í það minnsta tvöfalt efnið þar sem því verður komið við. Það er náttúrulega hægt að hnýta hvern þráð fyrir sig en þá er hætt við að hnýtingin verður of klunnaleg þegar allir fjórir til fimm strimlarnir eru komnir niður á búkinn. Þess í stað tek ég efnið niður í ríflega tvöfalda lengd skottsins, hnýti það beint niður á búkinn og brýt það aftur til að ganga frá því. Með þessu móti festist efnið betur niður og það þarf færri vafninga af hnýtingarþræði til að tryggja það. Að vísu eru til þær flugur sem þessu verður ekki viðkomið, en þær eru fáar og það lærist fljótt af endingu flugnanna hver þeirra hefur verið hnýtt með tryggu skrauti og hver ekki.

Beygja og kreppa Höfundur:
-
Royal Coachman votfluga

Royal Coachman votfluga Einhverra hluta vegna er Royal Coachman betur þekkt sem þurrfluga heldur en votfluga þrátt fyrir að votflugan gefi ekkert síður. Hnýtti þessa útgáfu sérstaklega fyrir Febrúarflugur 2016.
Höfundur:

