
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Einkavatn 4. ágúst
Ég hélt að ólympíuleikarnir yrðu ekki settir fyrr en annað kvöld og því kom mér á óvart að hitta tvo, mjög verðuga þátttakendur í miklu keppnisskapi í kvöld. Við veiðifélagarnir skruppum um kvöldmatarleitið í vatn hér í grennd sem við fáum að heimsækja annað slagið. Það er oft fallegt í grennd og við héldum að við hefðum svo sannanlega dottið í lukkupottinn með veðrið á þeim góða stað þegar vatnið tók að spegla umhverfið og flugan að leika sé á yfirborðinu.

Sólarlagið í kvöld Ég fékk að vísu afskaplega fallegan urriða, rétt innan við pundið á heimatilbúna flugu sem líkir eftir hornsíli. Snaggaralegur og sérstaklega öflugur fiskur sem setti stöngina í góðan boga á meðan ég átti við hann. Skömmu síðar brá birtu þannig að ég skipti yfir í afbrigði af Orange Nobbler og viti menn, það var tekið hressilega í fluguna og svipaður fiskur sýndi loftfimleika af mikilli snilld, svo mikilli snilld að flugan varð agndofa og ég steingleymdi að halda við. Fimleikastjarnan tók flikk-flakk og þar með skildi leiðir okkar.
Rétt um það bil sem vind tók að herða aftur, setti ég Dentist undir, þandi kastið út á vatnið, lét sökkva vel og lengi og þá var tekið í. Önnur fimleikastjarna, einhverjum númerum stærri sóttist greinilega líka eftir gullinu. Það mátti vart á milli sjá hvort bæri sigur úr bítum, pundarinn eða sá stærri, en eitt er víst, ég átti ekki sjéns í þessar aðfarir. Því fóru leikar svo að ég náði aðeins einu stigi í kvöld, urriðarnir tveimur og við veiðifélagarnir héldum heim á leið þegar enn bætti í vind. Kannski vorum við bara búinn að fá nóg af vindbarningi um síðustu helgi, en það kemur nú samt alltaf logn á eftir storminum og í næsta logni verðum við örugglega við eitthvert vatnið.Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 0 / 0 141 / 164 0 / 1 30 / 39 15 / 17 Höfundur:
-
Hlíðarvatn í Hnappadal 30. – 31. júlí
Síðustu ár höfum við veiðifélagarnir haft ýmislegu öðru að sinna um Verslunarmannahelgina heldur en veiði, en þetta árið varð breyting á. Það var gamalkunnur staður sem varð fyrir valinu og við ásamt Mosó-genginu komum okkur fyrir við Hlíðarvatn í Hnappadal. Annars tók ég eftir því að veiðibók vatnsins er merkt ‚Hlíðarvatn í Kolbeinsstaðahreppi‘, skemmtilegt að halda í gömlu hreppaheitin þrátt fyrir sameiningar síðustu ára.
En hvað um það, við mættum í Hraunholt á föstudagskvöldið í þessum líka hressilega strekkingi af norðaustri. Hef stundum velt því fyrir mér hvort það sé aðeins ein átt þekkt við Hlíðarvatn, því annað hvort blæs hann úr norðaustri þar eða bara ekki neitt. Þar sem vindur var heldur í meira lagi og við e.t.v. eitthvað lúin eftir vikuna, ákváðum við að setja upp vagninn, hita okkur kvöldverð og bíða þess að veiðifélagar okkar kæmu í hús, spennt að sjá afla og heyra veiðisögur. Aflinn hjá Mosó-genginu reyndist meira en glæsilegur, feitir og pattaralegir urriðar og bústnar bleikjur innanum.
Hlíðarvatn, Ljósufjöll í baksýn Eftir nokkuð snarpa nótt og vindbarning, hélt ég af stað inn fyrir Fellsbrekku út á skerin sem nú stóðu öll landföst þar sem mikið hefur lækkað í vatninu frá síðustu veiðiferð þangað fyrir hálfum mánuði. Mér telst til að vatnborðið sé heilum metra lægra nú en þá og göngufært á ystu skerjum frá Rifi og að Neðriskúta. Heldur var nú vindurinn í meira lagi og ég viðurkenni að mér reyndist frekar erfitt að ná þokkalegum köstum með flugustönginni. Lét mig þó hafa það og streittist við þar til einn urriði lá í netinu. Síðar um daginn fór allur hópurinn inn að Álftatanga og veiddi sig til baka að Rifi. Maðkurinn sannaði sig hjá Mosó-genginu, en ég var eiginlega ekki á blaði fyrir utan einhverjar smábleikjur sem fengu líf. Það var ekki síðan fyrr en eftir kvöldmat að við hjónin töltum aftur út inn með vatninu að hún setti í nokkra væna fiska og ég í aðeins fleiri titti í rokinu sem þá náði hámarki.
Ég tók sunnudaginn snemma, svona á minn mælikvarða, og setti í nokkrar vænar bleikjur og nokkra titti sem fengu líf. Eftir hádegismat fór frúin á kostum og landaði hverjum glæsilegum urriðanum á fætur öðrum en ég varð að láta mér nægja að kynnast honum Sergei (tilvísun í Sergei Bubka, stangarstökkvara) sem tók fluguna með látum inni við Rif, en sýndi síðan listir sínar í loftinu sem urðu til þess að flugan skaust í eina áttin á meðan hann fór í hina.
Það má með sanni segja að maðkurinn hafi staðið uppúr sem veiðitæki helgarinnar, 42 fiskar á tvær stangir á móti 18 á tvær flugustangir. Þá eru ekki taldir þeir sem sleppt var.Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 3 / 7 141 / 164 7 / 1 30 / 38 14 / 16 Höfundur:
-
Veiðitölur úr Framvötnum
Á vef Veiðivatna má finna frétt af aflabrögðum úr Framvötnum. Tölurnar byggja á veiði frá 24. júní til 9. júlí, en það sem vekur athygli er að aðeins er úr 16 veiðiskýrslum að moða á þessu tímabili. Það kemur engum á óvart að Frostastaðavatn trónir á toppinum með 600 bleikjur, næst kemur Ljótipollur með 28 urriða og Dómadalsvatn með 21 stk. Samtals voru því komnir 649 fiskar upp úr vötnunum þann 9. júlí, en verulega hefur bætt í þessa tölu síðan og Herbjarnarfellsvatn m.a. komið á blað með í það minnsta 4 væna urriða.

Frostastaðavatn Í fréttinni eru veiðimenn hvattir til að skila inn veiðiskýrslum í póstkassana við Frostastaðavatn og vegamótum Landmannaleiðar og afleggjara að Landmannahelli. Eins má skila skýrslum til umsjónarmanna við Landmannahelli. Það verður spennandi að sjá hvort skýrslum fjölgi ekki eitthvað eftir þessa hvatningu, skil hafa verið mjög léleg m.v. útgefin leyfi og því verður vart trúað að menn hafi núllað á svæðinu í sumar.
Þess má geta í framhjáhlaupi að skráð heildarveiði 2014 úr Frostastaðavatni voru 624 fiskar og það hefur örugglega verið toppað núna, því inn í tölur ársins vantar m.a. 55 fiska okkar veiðifélaganna úr síðustu ferð. Því miður hafa aflatölur fyrir 2015 ekki verið birtar ennþá.Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Nýtt vatn á FOS.IS
Nýverið fór undirritaður í jómfrúarferð í Langavatn á Skagaheiði. Eins og oft áður nýtti ég tækifærið og tók veiðimenn og umsjónaraðila tali og aflaði nokkurra upplýsinga fyrir vefinn.
Nú hefur þessum upplýsingum ásamt korti af vatninu verið komið fyrir á vefnum sem aðgengilegar eru hér.
Höfundur:

