Ég gaf mér tíma yfir morgunkaffinu til að lesa nýjasta veftímaritið Veiðislóð sem félagarnir í Vötn og veiði gáfu út á föstudaginn. Í stuttu máli; flott tímarit með hæfilegri blöndu af veiðigreinum fyrir alla. Til hamingju strákar með góða útkomu.
-
Veiðislóð
Höfundur:
-
Línan
Sumir hafa kallað þetta frumskóg, aðrir nammiland en ég hef hingað til viljað halda mig við KISS (keep it simple stupid) og hef því nánast eingöngu notast við framþungar flotlínur (WF-F) og lítið hirt um að skoða eða prófa aðrar gerðir. En, með nýrri stöng sem ég eignaðist fyrir skömmu neyddist ég til að kynna mér úrvalið af línum. Ég hef einhverja áráttu fyrir litlum og nettum hjólum þannig að það eina sem ég lagði af stað með var; hún verður að vera ómynnug.Þar sem ég er enginn sérfræðingur í línum varð ég að leita út fyrir eigin þekkingu. Auðvitað hefði ég getað smellt inn spurningu á veiðiblogg eða lesið mér til í þeim urmul greina um línur og línuval sem er að finna á netinu en þá hefði ég vel getað endað með fleiri ‘góða kosti’ en kortið mitt leyfir og verið jafn ráðviltur eftir sem áður. Þótt það stríði gegn eðlinu (eins og spyrja til vegar, rammviltur í einhverjum útnára Noregs) þá tók ég þann kostinn að leita til eins aðila sem ég veit að stundar svipuð vötn og ég og spyrja hann allra mögulegra og ómögulegra spurninga. Á endanum tókst honum að vekja hjá mér áhuga á að prófa eitthvað umfram ‘ómynnugu’ WF-F línuna sem ég ætlaði mér upphaflega að kaupa. Þannig er það að ég er núna kominn með fullklædda létta 9′ stöng með granna WF5-F línu og á aukaspóluna sættist ég á að setja WF4F/S3 með 12′ sökkenda.
Inntakið er; Ef við erum í vafa, finnum okkur aðila sem við getum samsvarað okkur við og spurt ráða. Þessi aðili getur verið vinur, starfsmaður í veiðibúð eða hver sem við berum traust til, svo lengi sem við höfum nokkra vissu fyrir því að hann hafi reynslu af því sem við viljum prófa.
Höfundur:
-
Frí byrjandakennsla á ein- og tvíhendur
Við Mokveiði-bræður höfum ákveðið að bjóða áhugasömum veiðimönnum og -konum að koma eina kvöldstund með okkur og fleiri góðum mönnum, nánar tiltekið í dag miðvikudag (25.maí) á Klambratún (vestast á bílastæðinu) kl 19.00, í smá byrjendakennslu bæði á ein- og tvíhendu. Þetta verður sýnikastkennsla með léttri kynningu á veiðivörum frá Joakims. Á staðnum verða stangir og búnaður þeim tengdum en fólki er velkomið að koma með sínar eigin græjur ef það vill.Kvöldið er að sjálfsögðu án endurgjalds 🙂
Fleiri fréttir á Facebook-síðu Mokveiði
E.S. kl. 21:30 Frábært kvöld með Mokveiði-bræðrum, Stefáni Hjaltested og Joakim’s á Klambratúni, takk fyrir okkur.
Höfundur:
-
1.árs afmæli
Í dag, 21. maí á bloggið 1.árs afmæli. Ekki datt mér í hug að undirtektirnar yrðu eitthvað í líkingu við það sem orðið hefur, hélt satt best að segja að þetta yrði meira eins og persónuleg dagbók fyrir mig og mína um veiðiferðirnar okkar. En, þegar ég fór síðan að grúska í veiðinni, leita mér upplýsinga og spyrjast fyrir þá ákvað ég að miðla því sem ég varð vís og reyndi á sjálfum mér, ef það kæmi mögulega öðrum að einhverju gagni. Þannig hafa veiðisögurnar (skröksögurnar) vikið fyrir molunum og grúskinu þannig að úr hefur orðið einhvers konar banki upplýsinga sem ég sjálfur leita reglulega í til að rifja upp hvernig á og á ekki að gera hlutina.
Í tilefni dagsins hef ég bætt inn nýjum valkosti á síðuna sem mér vonandi tekst að uppfæra reglulega í sumar. Undir valkostinum Flugur hér að ofan hef ég bætt inn síðu undir heitinu Hvar og hvenær þar sem ég tilgreini þær flugur sem ég hef sönnun fyrir að hafi gefið í nokkrum vötnum á ákveðnum tíma árs. Auðvitað er gestum boðið að bæta í sarpinn með því að senda mér línu og þannig gæti orðið úr þessu einhvers konar banki sem vert er að hafa í huga þegar ákveðin vötn eru heimsótt.
Bestu þakkir fyrir öll innlitin á þessu fyrsta ári.
Höfundur:
-
Tapað, fundið?
Ef einhver hefur rekist á alveg þokkalegt bakkast nýlega, þá er hinn sami beðinn að koma því til skila til undirritaðs. Þannig er mál með vexti að ég týndi bakkastinu mínu nú nýverið og hef bara átt nokkuð erfitt með að finna það aftur. Upp á síðkastið hef ég verið að einbeita mér svolítið að því að nota léttari línu en venjulega, jafnvel með hægsökkvandi enda, og því gefið minni gaum að því sem ég hélt að væri í ágætu standi hjá mér, fremra og aftara stoppi t.d. En svo má lengi manninn reyna að ekki komi eitthvað nýtt til. Nú er aftara stoppið farið veg allrar veraldar, tvítogið (double haul) orðið að eintogi og ég hnýti vindhnúta sem aldrei fyrr. Kannski ég ætti að skoða aðeins; Misbrestur – Vindhnútur eða Double haul – Tvítog, eða brjóta odd af oflæti mínu og taka nokkra tíma hjá kastkennara?Höfundur:
-
Veiðiheimur fer hringinn
Langaði bara að vekja athygli á hringferð Veiðiheims um landið, flott framtak hjá þeim og vert að skoða stundatöfluna á veidiheimur.isÍ maí og júní fer Veiðiheimur hringinn í kringum landið með fluguveiðinámskeið. Þar verður kennt allt í sambandi við fluguveiði, allt frá því hvernig eigi að hnýta fluguna á tauminn, til löndunar. Það sem farið verður í er eftirfarandi:
- Fluguköst og fluguveiði
- Fluguhnýtingar
- Val og umgengni á veiðibúnaði og veiðistöðum
- Öryggi í veiði
- Frágangur og meðferð á afla
- Fiskalíffræði, flökun og eldun
Námskeiðin eru fyrir fólk á öllum aldrinum , jafnt fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref sem og fyrir þá sem vilja bæta við þekkingu sína.
Sá sem sækir námskeiðið verður orðinn fullfær um að standa ein(n) að veiðum hvort sem það er í lax- eða silungsveiðum.
Höfundur:


