Ármenn efna til Vorblóts n.k. laugardag kl.14 Þá verður vori og nýrri vertíð fagnað í faðmi fjölskyldu og vina í Árósum, félagsheimili Ármanna, Dugguvogi 13 (sjá kort) Á blótinu verður boðið upp rjóma- og brauðtertur að hætti hússins ásamt veglegu happdrætti þar sem kennir ýmissa og ekki síður girnilegra vinninga ef að líkum lætur.
Flugur og skröksögur hafa það fyrir satt að meðal vinninga í happdrættinu verði gjafabréf frá Forlaginu og Kristjáni Friðrikssyni (#861) upp á rétt óútkomna veiðibók, Vatnaveiði -árið um kring.
Til að gera dagskránna ekki of þunglamalega verður einnig boðið upp á stöku ræður og eflaust nokkrar veiði- og skemmtisögur að hætti Ármanna. Vorblót Ármanna er hin prýðilegasta skemmtun og um að gera að láta það ekki framhjá sér fara.
Að endingu vilja Ármenn minna á Flóamarkaðinn sem verður í Árósum í kvöld, miðvikudag kl.20










Senda ábendingu