Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Flugur sem æti

    17. maí 2020
    Greinaskrif

    Upp

    Forsíða

    Grein sem birtist í fréttabréfi VEIDA.IS árið 2012. Eitthvað hafa áherslur og upplifun breyst á þeim árum sem liðið hafa, en flest stenst þetta tímanns tönn.

    Hérna eru sem sagt fulltrúar þeirra flugna sem ég tek með mér í veiðina. Ekki endilega nákvæmlega þessar flugur, oftast miklu fleiri. En það má vel komast af með þessar, svona um það bil þessa mánuði.

    Rauðar og mjóslegnar fyrir fyrstu mánuðina, svo fara þær aðeins fitnandi og um leið og hornsílin og seiðin fara á stjá þá detta inn straumflugur eins og Nobbler og Black Ghost.

    Vel fram á sumarið er líka ágætt að vera með einhverja glepju, svona bling bling flugu í boxinu. Hún verður að vera svolítið áberandi, jafnvel öfgakennd ef fiskurinn er eitthvað sloj og vill ekkert taka.

    Ein er svo flugan sem virkar allt árið, ekki bara þessa mánuði og það er þjóðarfluga okkar silungsveiðimanna, Peacock. Ótrúlegt kvikindi, mjög lík vorflugupúpunni. Um hana hafa verið skrifaðar margar greinar í gegnum tíðina, óþarfi að bæta þar um.

    Inn í svona flugnaval spilar svo smekkur manna, staðbundin reynsla af ýmsum vötnum og auðvitað margbreytileiki náttúrunnar.  Svört fluga virkar kannski vel í einu vatni en í því næsta er gróðurfar annað og botnset ljósara. Þar getur sama flugan í brúnu gefið mun betur.

    Um daginn heyrði ég í félaga mínum sem þótti boxið sitt vera helst til einlitt eftir hnýtingar vetrarins, svart og brúnt með rauðu ívafi. Það í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt, pöddurnar í náttúrunni eru ekkert sérstaklega litskrúðugar, það væri jú bara ávísun á að verða silunginum að bráð. Þó slæðist alltaf ein og ein í lit í boxið, eins og t.d. appelsínugulur Nobbler sem urriðinn er oft brjálaður í, sérstaklega þegar bjart er í veðri og ekkert gengur með aðrar flugur.  Stundum verður maður bara að þora að prófa eitthvað nýtt.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Filmubox og ull

    10. maí 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Einhvern veginn finnst mér eins og ég þurfi ekki að hafa orð á þessu hérna, en látum slag standa. Hver þekkir ekki hrufótta dubnál (e: bodkin) eftir að hafa verið að lakka nokkrar flugur? Það er tilvalið að taka gamalt filmubox eða eitthvað álíka, troða einum stálullarhnoðra ofan í boxið, stinga gat á lokið og nota sem nálahreinsi á milli þess sem lakkað er.

    Ekki er verra að hafa gatið örlítið víðara heldur en nálin er þannig að þegar maður stingur nálinni niður í boxið, þá rennur hún óhindrað niður í ullina sem þá skefur lakk og límafganga af henni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Að vera nískur

    7. maí 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Nei, ég er ekki nískur, ég fer bara vel með fé. Nema það sé sauðfé, það geri ég mér að góðu. Sú regla mín að vera sparsamur á hráefni í flugu hefur ekkert með ráðvendni eða nísku að gera. Mörg af mínum byrjenda mistökum í fluguhnýtingum einkenndust af ofgnótt hráefnis í flugurnar. Þetta voru klunnalega, frekar erfiðar flugur og ekki nándar nærri nógu þungar til að komast með góðu móti niður í vatnið.

    Auðvitað sá ég þetta sjálfur, en þegar ég byrjaði síðan á nýrri flugu var alltaf eins og puttarnir mínir vildu hafa eitthvað meira umleikis heldur en það sem uppskriftin sagði til um. Það var næstum alveg saman hvort um var að ræða fjöður, dub, ull eða hár, alltaf var ég með of mikið í takinu.

    Um leið og ég fór að bera kvikindin mín saman við fyrirmyndirnar, þ.e. þær lifandi í vatninu, þá sannfærðist ég um að flugurnar á myndunum á vefnum voru ekkert of mjóar. Skordýrin sem finnast í náttúrunni eru hreint ekki neinir boltar. Flestar pöddurnar voru beinlínis eins og þær væru að drepast úr hor miðað við flugurnar mínar, þannig að ég tók mig alvarlegu taki og setti allt mitt hnýtingarlið í hart aðhald. Reyndar ekki alveg allt, því ein fluga var sett á auka fæði og varð töluvert bústnari heldur en áður, Peacock.

    Það var ekki aðeins að flestar flugurnar mínar yrðu mjóslegnari, þær fóru að sökkva hraðar, veiða betur og … endast betur. Minna hráefni, færri mistök og þær urðu einfaldlega haldbetri. Núna er það svo að um leið og það sækir á mig einhver vafi hvort ég sé með of mikið á milli fingranna, þá minnka ég skammtinn. Þetta er svipað því að salta lambakjöt, spara saltið í fyrstu, það er alltaf hægt að bæta við síðar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Orvis Tippet Knot

    5. maí 2020
    Hnútar

    Upp

    Forsíða

    Einn sterkasti hnúturinn til að tengja saman taum og taumaefni (4).

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Blýantur

    3. maí 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Stundum er hægt að fara Rússnesku leiðina í þessu öllu. Þá er ég að vísa til milljónanna sem NASA eyddi í að finna upp penna sem virkar í þyngdarleysi á meðan Rússar notuðu einfaldlega blýant.

    Þegar maður er að hnýta mjög smáar flugur og er búinn að lakka hausinn á þeim, þá kemur strokuleðrið á gamli góða blýantinum að góðun notum við að færa fluguna úr þvingunni áður en lakkið þornar. Svo er alltaf gott að hafa blýant við höndina til að punkta niður það sem vantar af hnýtingarefni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hvað er nú þetta?

    30. apríl 2020
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Segjum sem svo að við séum loksins komin aftur út að vatninu, rjómablíða og fiskurinn sýnir sig. Ég sé ekki betur en hann sé að eltast við hornsíli og hjartslátturinn eykst örlítið. Ég veit ekki með ykkur, en ég sé þetta svolítið fyrir mér á meðan ég skrifa þetta og ég spái í það hvort vorið sé ekki að fara að koma.

    Hugrenningar mínar halda áfram og allt er eins og það á að vera, ég hnýti eftirlíkingu hornsílis í réttum lit á tauminn, næ að kasta út án þess að eyða of mörgum köstum í þessu fölsku, minnugur þess að flugur veiða ekkert á lofti. Ég tel niður frá 20 og tek síðan ákveðið í línuna, strippa inn, held áfram að strippa, strippa aðeins meira og þá er línan allt í einu búin. Og hvað? Ekkert. Ég endurtek leikinn og niðurstaðan er sú saman.

    Nú værir rétt að hinkra aðeins við og lesa málsgreinina hér að ofan aftur. Ég lét sökkva, tékk. Kannski hefði ég mátt láta sökkva aðeins lengur eða aðeins skemur. Ég tók ákveðið í línuna, tékk. Ég hef það eftir miklum urriðasnillingi að maður verður að láta fluguna taka á sprett. Ég strippaði, tékk. Hornsíli hreyfa sig nokkuð ákveðið og því ………

    Jæja, það eru mestar líkur á því að ég hafi fallið í þessa endalausu gryfju sem veiðimenn falla oftast í, ég breytti ekkert til í inndrættinum, tók alltaf jafn mikið inn af línu á sama hraða og var ekki með neina pásu á milli. Ég hefði alveg eins getað skilið vöðluskóna mína eftir á bakkanum og látið þá um inndráttinn. Ég sem sagt varð þessi leiðinlegi veiðimaður sem breytti ekkert út af vananum og fiskurinn glápir á fluguna mína og veit bara alls ekkert hvað er þarna á ferðinni, svona hagar ekkert hornsíli sér.

    Mér hefði verið nær að muna eftir hinni heilögu þrenningu; lengd, hraða og pásu. Hefði ég nú brotið inndráttinn upp með því að taka aðeins minna inn af línunni annað slagið þá hefði hornsílið mitt ekki verið með cruise control stilltan á 10 sm/sek.  og spænt eins og brjálæðingur í gegnum vatnið. Svo hefði ég líka getað dregið aðeins hægar inn stöku sinnum, mér er sagt að hornsíli syndi ekki alltaf á sama hraða. En hvað með pásuna?

    Jú, vitaskuld verða hornsíli þreytt og þurfa að hvíla sig, ég hefði getað sett pásu þarna inn í ferilinn annað slagið. Kannski fiskurinn hefði þá brugðist við þessu örþreytta hornsíli. Ef, ef og ef. Þessi fyrsta hugrenninga veiðiferð ársins gekk kannski ekki eins og best varð á kosið, ég set hana bara í reynslubankann og rifja hana upp ef hún raungerist.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 38 39 40 41 42 … 155
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar