Hún verður bara öruggari ef ég vef aðeins meira í hausinn á henni, eða hvað? Ef þú þú vilt vera viss um að hausinn á flugunni sé nægjanlega sterkur, þá skaltu frekar nota fínni hnýtingarþráð heldur en grófari. Þú getur frekar leyft þér að bæta við hnútum (Whip finish) ef þú ert með fínan þráð heldur en grófan. Að öðrum kosti áttu á hættu að hausinn verði of stór og í engu samræmi við aðra hluta flugunnar. Auðvitað skiljum við síðan aldrei við hausinn án þess að lakka hann vel og vandlega.
Þegar við byggjum væng úr fjöðrum notum við í langflestum tilfellum fanir úr gagnstæðum hlutum fjaðrar og leggjum þær þannig saman að þær myndi () mynstur séð ofan frá. Fjaðurvæng er best að festa beint á öngulinn, það hjálpar flugunni að synda á réttum kili og umfram allt, ekki festa fjöðrina niður með of mörgum vafningum aftur eftir önglinum. Undantekningar eru auðvitað til eins og t.d. Matuka flugur þar sem vængurinn er oftar en ekki festur niður með vafningum aftur eftir öllum öngulleggnum.
Fallegur búkur er vistaskuld í fullu samræmi við aðra hluta flugunnar og umfram allt áferðarfallegur, sléttur og nær ekki of langt fram eftir önglinum. Hvort heldur við erum að byggja straumflugu eða púpu þá á búkurinn ekki að ná lengra heldur en fram að skegg- eða vængstæðinu á flugunni.
Of langur búkur skilur of lítið svæði eftir til að festa niður væng eða byggja vængstæði púpu. Eins er hættara við að hausinn á flugunni verður of stór groddi sem er í engu samræmi við aðra hluta flugunnar ef við neyðumst til að byggja hann ofan á hluta búksins.
Þegar við hnýtum skottið á fluguna okkar verðum við að hafa nokkra hluti í huga áður en lagt er af stað. Fyrst af öllu verður lengd þess að vera í samræmi við aðra hluta flugunnar, þ.e.a.s. ef við erum að hnýta hefðbundna flugu, ekki ‘long tail’ eða langhala. Heppilegt viðmið er að skottið sé eilítið styttra heldur en vængurinn. Efnið í skottinu, hvort heldur það er hár eða fjaðrir, skal vera jafnt í endana og liggja samsíða. Annars er hætta á að við endum með grisjótt og úfið skott. Ef það er sveigja í efninu skal umfram allt láta sveigjuna vísa upp, ekki niður. Niðurdregnar flugur er síst til þess fallnar að glepja fisk. Þegar við festum skottið niður er rétt að gæta þess að ekki snúist upp á það eða lognist útaf til hliðanna. Best er að halda við efnið með því að klemma það ofan á öngulinn á milli þumals og vísifingurs, læsa efninu niður með þremur vafningum og jafnvel nota einn half-hitch til öryggis.
Það virðist oft vefjast fyrir byrjendum, og kannski lengra komnum að velja rétta stærð öngla fyrir flugur. Þumalputtareglur fyrir val á önglum eru nokkrar, mér hefur reynst ágætlega að hafa eftirfarandi í huga:
Votflugur í vatnaveiði: hefðbundin öngull í stærðum 8-16
Votflugur í straumvatn: hefðbundin í stærðum 14-22
Mýflugur eru mikilvæg fæða silungs á öllum stigum, þ.e. sem lirfur, púpur og flugur. Sem lirfur halda þær sig mest á botni vatnsins, en leita gjarnan frá botninum þegar þær komast á púpustigið. Þegar þær síðan komast á klakstigið og umbreytast í flugur gerist það í og við vatnsborðið.
Mýlirfur – Flugur sem líkja eiga eftir þessu stigi mýflugunnar eru m.a.:
San Juan WormBlóðormurSuper Floss Bloodw.
Allar eru þessar flugur áberandi rauðar til að líkja eftir blóðrauð- anum sem lirfurnar safna til að halda lífi í köldu vatninu. Bestu skilyrðin til að veiða á þessa tegund flugna er í lítilli eða dvínandi birtu, á eða sem næst botninu með eins litlum inndrætti og unnt er.
Púpur – Flugur sem líkja eiga eftir mýpúpum eru m.a.:
ChromieGyllt HéraeyraZug Bug
Veiðiaðferðin með þessum flugum er fyrst og fremst; hægt. Inndrátturinn helst með rólegum fingurvafningum og góðum hléum á milli. Fyrirmyndirnar eru frekar hægfara og því um að gera að apa sem mest eftir þeim.
Það er kannski ekki úr vegi að hafa þessar í huga þegar maður situr við hnýtingarnar þessa dagana.