Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Nú er lag að fara með alla fjölskylduna í eitthvert af þeim 27 vötnum sem boðið er í, ókeypis þennan veiðidag. Allar nánari upplýsingar eru á vef Landssambands stangveiðifélaga og í bæklingi þeirra um veiðidaginn sem má nálgast hér.
-
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní
Höfundur:
-
Veiðifréttir SVFR
Enn bætist við í veftímaritin og nú eru það Veiðifréttir SVFR sem eru aðgengilegar hér. Áhugasvið manna misjafnt, sjálfum finnst mér viðtalið við Atla Bergmann áhugaverðast, enda á ferðinni áhugamaður um vatnaveiði eins og ég sjálfur.Höfundur:
-
Veiðislóð
Ég gaf mér tíma yfir morgunkaffinu til að lesa nýjasta veftímaritið Veiðislóð sem félagarnir í Vötn og veiði gáfu út á föstudaginn. Í stuttu máli; flott tímarit með hæfilegri blöndu af veiðigreinum fyrir alla. Til hamingju strákar með góða útkomu.Höfundur:
-
Frí byrjandakennsla á ein- og tvíhendur
Við Mokveiði-bræður höfum ákveðið að bjóða áhugasömum veiðimönnum og -konum að koma eina kvöldstund með okkur og fleiri góðum mönnum, nánar tiltekið í dag miðvikudag (25.maí) á Klambratún (vestast á bílastæðinu) kl 19.00, í smá byrjendakennslu bæði á ein- og tvíhendu. Þetta verður sýnikastkennsla með léttri kynningu á veiðivörum frá Joakims. Á staðnum verða stangir og búnaður þeim tengdum en fólki er velkomið að koma með sínar eigin græjur ef það vill.Kvöldið er að sjálfsögðu án endurgjalds 🙂
Fleiri fréttir á Facebook-síðu Mokveiði
E.S. kl. 21:30 Frábært kvöld með Mokveiði-bræðrum, Stefáni Hjaltested og Joakim’s á Klambratúni, takk fyrir okkur.
Höfundur:
-
1.árs afmæli
Í dag, 21. maí á bloggið 1.árs afmæli. Ekki datt mér í hug að undirtektirnar yrðu eitthvað í líkingu við það sem orðið hefur, hélt satt best að segja að þetta yrði meira eins og persónuleg dagbók fyrir mig og mína um veiðiferðirnar okkar. En, þegar ég fór síðan að grúska í veiðinni, leita mér upplýsinga og spyrjast fyrir þá ákvað ég að miðla því sem ég varð vís og reyndi á sjálfum mér, ef það kæmi mögulega öðrum að einhverju gagni. Þannig hafa veiðisögurnar (skröksögurnar) vikið fyrir molunum og grúskinu þannig að úr hefur orðið einhvers konar banki upplýsinga sem ég sjálfur leita reglulega í til að rifja upp hvernig á og á ekki að gera hlutina.
Í tilefni dagsins hef ég bætt inn nýjum valkosti á síðuna sem mér vonandi tekst að uppfæra reglulega í sumar. Undir valkostinum Flugur hér að ofan hef ég bætt inn síðu undir heitinu Hvar og hvenær þar sem ég tilgreini þær flugur sem ég hef sönnun fyrir að hafi gefið í nokkrum vötnum á ákveðnum tíma árs. Auðvitað er gestum boðið að bæta í sarpinn með því að senda mér línu og þannig gæti orðið úr þessu einhvers konar banki sem vert er að hafa í huga þegar ákveðin vötn eru heimsótt.
Bestu þakkir fyrir öll innlitin á þessu fyrsta ári.
Höfundur:
-
Tapað, fundið?
Ef einhver hefur rekist á alveg þokkalegt bakkast nýlega, þá er hinn sami beðinn að koma því til skila til undirritaðs. Þannig er mál með vexti að ég týndi bakkastinu mínu nú nýverið og hef bara átt nokkuð erfitt með að finna það aftur. Upp á síðkastið hef ég verið að einbeita mér svolítið að því að nota léttari línu en venjulega, jafnvel með hægsökkvandi enda, og því gefið minni gaum að því sem ég hélt að væri í ágætu standi hjá mér, fremra og aftara stoppi t.d. En svo má lengi manninn reyna að ekki komi eitthvað nýtt til. Nú er aftara stoppið farið veg allrar veraldar, tvítogið (double haul) orðið að eintogi og ég hnýti vindhnúta sem aldrei fyrr. Kannski ég ætti að skoða aðeins; Misbrestur – Vindhnútur eða Double haul – Tvítog, eða brjóta odd af oflæti mínu og taka nokkra tíma hjá kastkennara?Höfundur:


