
Blessaður öðlingurinn, hann Kúlusníkir færði mér þetta í pakka dagsins. Ég fer alveg að gefast upp og taka til á hnýtingarborðinu mínu.


Blessaður öðlingurinn, hann Kúlusníkir færði mér þetta í pakka dagsins. Ég fer alveg að gefast upp og taka til á hnýtingarborðinu mínu.
Höfundur:

Það er greinilega ekki mikið samráð á milli þeirra bræðra Rugludalls og Hnútaskrækis því taumaklippur #2 komu úr pakka dagsins, rétt eins og fyrsta pakkanum. Maður getur reyndar alltaf á sig blómum bætt, taumaklippum líka.
Höfundur:

Jólasveinn dagsins, Flotgleypir er væntanlega sá sem er ábyrgur fyrir því að nappa tökuvörum af veiðimönnum. Enn önnur sterk vísbending að koma sér að hnýtingum og ekki spara lakkið.
Höfundur:

Nú var Bleik mínum brugðið, Bleikjubregðir hafði greinilega fundið aldraða keflishöldu og laumað í dagatalspokann. Vísbending? Já, ég er alveg að hafa mig í að hnýta nokkrar flugur.
Höfundur:

Það er ekki oft sem maður rekst á Urriðabing en honum er greinilega umhugað um að ég eigi nóg af taumaefni.
Höfundur:

Lækjarræsir færði mér þessar línulykkjur. Datt helst í hug að þessi sveinn hefði eitthvað haft með það að gera að taka tappann úr Árbæjarstíflunni, kann strax vel við hann.
Höfundur: