Hver kannast ekki við eftir nokkur köst með nýrri flugu að hausinn á henni fer að láta á sjá, jafnvel rakna upp? Í verstu tilfellunum var eins og kötturinn hefði gripið fluguna og tætta af henni vængi og kinnar. Þannig var því nokkuð farið með mig í það minnsta þegar ég var að byrja fluguveiði. Fyrst í stað fannst mér líklegast að ég væri að ofbjóða flugunum, sérstaklega þeim ódýrari sem ég keypti, en síðar fór ég aðeins að skoða betur hvernig fráganginum á hausnum á þeim væri háttað.-
Hausaveiðar
Hver kannast ekki við eftir nokkur köst með nýrri flugu að hausinn á henni fer að láta á sjá, jafnvel rakna upp? Í verstu tilfellunum var eins og kötturinn hefði gripið fluguna og tætta af henni vængi og kinnar. Þannig var því nokkuð farið með mig í það minnsta þegar ég var að byrja fluguveiði. Fyrst í stað fannst mér líklegast að ég væri að ofbjóða flugunum, sérstaklega þeim ódýrari sem ég keypti, en síðar fór ég aðeins að skoða betur hvernig fráganginum á hausnum á þeim væri háttað.Oftar en ekki var lakkið sparað og jafnvel stóðu endar lélegra hnúta út úr. Þegar ég svo fór að hnýta sjálfur, var kominn upp á lagið með alvöru endahnút, staðsetti hann rétt á hausnum (aftast) og lakkaði gaumgæfilega yfir, þá fóru flugurnar mínar að endast betur. Með tíð og tíma náði ég síðan lagi með fínni hnýtingarþráð og þá smækkuðu hausarnir enn meira og auðveldara var að ná þéttu yfirborði á þá með færri umferðum lakks.Höfundur:
-
Kleifarvatn, 2.júní
Þrír fjórðu veiðifélaganna fóru í Kleifarvatn í dag. Ekki hægt að segja að ákjósanlegustu skilyrði hafi verið fyrir hendi, töluverður vindur og ekkert sérlega hlýtt. Ákváðum að byrja við hverasvæðið við Lambatanga undan vindi en urðum ekki vör við fisk. Færðum okkur síðan undir Innristapa (Stefánshöfða) og þar setti ég í einn urriða (titt) sem sleit sig af við löndun, kannski eins gott. Eftir að hafa barið vatnið í nokkurn tíma ákváðum við að renna norður fyrir vatnið undir Vatnshlíðina. Vorum frekar innarlega í smá tíma án þess að verða frekar vör. Eins og karlinn sagði um árið, það gengur bara betur næst.E.S. ég játa að það vantar nokkrar ferðir á bloggið sem hafa verið farnar á bilinu 7.maí til dagsins í dag; 2 x Vífilsstaðarvatn, Meðalfellsvatn og Kleifarvatn. Kannski vegna þess að aflabrögð voru eins léleg og þau geta orðið, núll.
Höfundur:
-
Veiðifréttir SVFR
Enn bætist við í veftímaritin og nú eru það Veiðifréttir SVFR sem eru aðgengilegar hér. Áhugasvið manna misjafnt, sjálfum finnst mér viðtalið við Atla Bergmann áhugaverðast, enda á ferðinni áhugamaður um vatnaveiði eins og ég sjálfur.Höfundur:
-
Veiðislóð
Ég gaf mér tíma yfir morgunkaffinu til að lesa nýjasta veftímaritið Veiðislóð sem félagarnir í Vötn og veiði gáfu út á föstudaginn. Í stuttu máli; flott tímarit með hæfilegri blöndu af veiðigreinum fyrir alla. Til hamingju strákar með góða útkomu.Höfundur:
-
Línan
Sumir hafa kallað þetta frumskóg, aðrir nammiland en ég hef hingað til viljað halda mig við KISS (keep it simple stupid) og hef því nánast eingöngu notast við framþungar flotlínur (WF-F) og lítið hirt um að skoða eða prófa aðrar gerðir. En, með nýrri stöng sem ég eignaðist fyrir skömmu neyddist ég til að kynna mér úrvalið af línum. Ég hef einhverja áráttu fyrir litlum og nettum hjólum þannig að það eina sem ég lagði af stað með var; hún verður að vera ómynnug.Þar sem ég er enginn sérfræðingur í línum varð ég að leita út fyrir eigin þekkingu. Auðvitað hefði ég getað smellt inn spurningu á veiðiblogg eða lesið mér til í þeim urmul greina um línur og línuval sem er að finna á netinu en þá hefði ég vel getað endað með fleiri ‘góða kosti’ en kortið mitt leyfir og verið jafn ráðviltur eftir sem áður. Þótt það stríði gegn eðlinu (eins og spyrja til vegar, rammviltur í einhverjum útnára Noregs) þá tók ég þann kostinn að leita til eins aðila sem ég veit að stundar svipuð vötn og ég og spyrja hann allra mögulegra og ómögulegra spurninga. Á endanum tókst honum að vekja hjá mér áhuga á að prófa eitthvað umfram ‘ómynnugu’ WF-F línuna sem ég ætlaði mér upphaflega að kaupa. Þannig er það að ég er núna kominn með fullklædda létta 9′ stöng með granna WF5-F línu og á aukaspóluna sættist ég á að setja WF4F/S3 með 12′ sökkenda.
Inntakið er; Ef við erum í vafa, finnum okkur aðila sem við getum samsvarað okkur við og spurt ráða. Þessi aðili getur verið vinur, starfsmaður í veiðibúð eða hver sem við berum traust til, svo lengi sem við höfum nokkra vissu fyrir því að hann hafi reynslu af því sem við viljum prófa.
Höfundur:
-
Frí byrjandakennsla á ein- og tvíhendur
Við Mokveiði-bræður höfum ákveðið að bjóða áhugasömum veiðimönnum og -konum að koma eina kvöldstund með okkur og fleiri góðum mönnum, nánar tiltekið í dag miðvikudag (25.maí) á Klambratún (vestast á bílastæðinu) kl 19.00, í smá byrjendakennslu bæði á ein- og tvíhendu. Þetta verður sýnikastkennsla með léttri kynningu á veiðivörum frá Joakims. Á staðnum verða stangir og búnaður þeim tengdum en fólki er velkomið að koma með sínar eigin græjur ef það vill.Kvöldið er að sjálfsögðu án endurgjalds 🙂
Fleiri fréttir á Facebook-síðu Mokveiði
E.S. kl. 21:30 Frábært kvöld með Mokveiði-bræðrum, Stefáni Hjaltested og Joakim’s á Klambratúni, takk fyrir okkur.
Höfundur:

