FOS.IS var rétt í þessu að klára að setja inn 220 flugur úr Febrúarflugum 2023 inn í myndasafnið hér á síðunni. Flugurnar eiga ættir að rekja bæði af Facebook og Instagram og það standa 75 hnýtara á bak við þennan fyrsta skammt sem kemur inn á FOS.IS
Smelltu á myndina til að sjá allar flugurnar á einu bretti
Takk fyrir frábæra byrjun, sjaldan (ef í nokkurn tíma) hafa komið jafn mörg ný nöfn fyrir í hópi hnýtara eins og þetta árið. Alltaf gaman að sjá ný nöfn og handbragð.
Febrúarflugur fara heldur betur laglega af stað þetta árið, langt yfir 100 flugur litu dagsins ljós fyrstu þrjá dagana og meðlimum hópsins á Facebook fjölgar á degi hverjum.
Eins og nærri má geta er FOS.IS í skýjunum með þessar undirtektir hnýtara. Styrktaraðilar hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja, nú sem endranær, og stöndum við í mikilli þakkarskuld við þá. Það er ljóst að FOS.IS getur veitt nokkrum heppnum hnýturum afar veglegar viðurkenningar fyrir þátttökuna í lok mánaðar og það fer ekki framhjá neinum að veglegir afslættir bjóðast hnýturum víða þennan mánuðinn og því um að gera að fylla á hnýtingarefnið eða tryggja sér nýtt og spennandi efni til að prófa í febrúar.
Styrktaraðilar okkar þetta árið eru
Smelltu til heimsækja Fish PartnerSmelltu til að heimsækja FlugubúllunaSmelltu til að heimsækja FlugusmiðjunaSmelltu til að heimsækja JOAKIM’SSmelltu til að heimsækja KolskeggSmelltu til að heimsækja ValdemarssonSmelltu til að heimsækja Veiða.isSmelltu til að heimsækja VeiðiflugurSmelltu til að heimsækja VeiðikortiðSmelltu til að heimsækja Vesturröst
FOS.IS ítrekar boð sig til hnýtingarklúbba og veiðifélaga að skjóta á okkur upplýsingum um samkomur og hnýtingarkvöld sem FOS.IS getur komið á framfæri við meðlimi Febrúarflugna sem nú telja tæplega 1.300 einstaklinga.
Nú eru Febrúarflugur 2023 rétt handan við hornið og það sem heitið gæti formleg dagskrá liggur fyrir og síðustu styrktaraðilar átaksins hafa verið að tilkynna stuðning sinn síðustu daga.
Eins og undanfarin ár verður heimavöllur Febrúarflugna á Facebook þar sem áhugasamir geta fylgst með þeim flugum sem hnýtarar eru að dunda við í mánuðinum. Þeir sem ekki eru á Facebook geta annað hvort póstað myndum á Instragram og merkt þær með #februarflugur eða sent FOS.IS tölvupóst með myndum og við sjáum um að pósta þeim á Facebook í nafni sendanda.
Þetta árið mun FOS.IS standa fyrir viðburði föstudagskvöldið 17. febrúar kl. 20:00 og hefur Stangaveiðifélagið Ármenn léð félagsheimili sitt að Hverafold 1-5 til afnota þetta kvöld.
Við undirbúning kvöldsins vaknaði sú hugmynd að leyfa fylgjendum Febrúarflugna og hnýturum sjálfum að fylla dagskrá kvöldsins. Eins skemmtilegt og það er að fylgjast með nýjum flugum á netinu, þá er líka áhugavert að sjá hnýtingar í raunheimum og jafnvel nýta tækifærið til að spyrja út í aðferð og efnisval í flugu. Því langar FOS.IS að biðja alla sem sjá áhugaverða flugu í Febrúarflugum og vilja fræðasta meira um hana að setja komment undir innsenda mynd með #langaraðsjá og FOS.IS mun kanna hvort viðkomandi hnýtari sjái sér fært að mæta þann 17. og hnýta eins og eina slíka og mögulega svara fyrirspurnum gesta. Vitaskuld eru allir hvattir til að mæta með hnýtingargræjur, hnýta nokkrar flugur og eiga létta og skemmtilega stund með öðru áhugafólki um flugur og fluguhnýtingar.
Eins og undanfarin ár höfum við haft nokkurn pata af Febrúarflugukvöldum hingað og þangað á vegum stangaveiðifélaga og hnýtingarklúbba í febrúar. Þeim sem vilja koma slíkum kvöldum á framfæri við meðlimi Febrúarflugna og á FOS.IS er velkomið að senda okkur skilaboð á heimasíðu okkar eða á Facebook og við munum koma viðburðinum á framfæri.
Fleira var það ekki að sinni, góða skemmtun kl.00:01 þann 1. febrúar þegar fyrstu flugurnar detta inn á Febrúarflugur 2023.
Nei, nú er ég ekki að spyrja lesendur, heldur vísa til þess þegar maður situr í mestu makindum heima við og einhver hringir, hendir á mann skilaboðum eða sendir tölvupóst og spyr hvaða taum maður notar. Úff, að fá svona spurningu er eins og flétta fjölþátta reipi, það eru svo margar breytur sem geta haft áhrif á svarið að maður eiginlega verður bara að svara einhverju almennu um sver- og stífleika miðað við flugu og lengd miðað við á hvaða dýpi viðkomandi ætlar að veiða. Þá hefur maður ekki tekið hitastig vatns, efni í taum eða mögulega stærð fisks með í reikninginn og þá getur voðinn verið vís fyrir þann sem spyr.
Kannski bara einfaldast að nota spún?
Auðvitað er hægt að víkja sér pent undan svari og vísa á einhverja af ‘standard’ formúlum fyrir taum eins og t.d. Taumalengd en þá er samt sem áður horft framhjá afar stuttum taumum og afar löngum taumum, mismunandi hráefni og umfram allt því sem skiptir verulegu máli; aðlögunarhæfni og reynslu veiðimanns. Það er nefnilega mikill munur á hæfum veiðimanni og reynslubolta. Ég hef nefnilega fengið það á tilfinninguna að reynsluboltarnir spá afskaplega lítið í mismunandi tauma, eru ekkert að velta sér upp úr samsetningu eða efnisvali, það er eins og mismunandi aðstæður, fiskur eða hvað eina sem getur haft áhrif á taumavalið sé orðið innbyggt í atferli þeirra og þeir þurfa ekkert að spá og spekúlera. Mér skilst að þetta sé fylgifiskur þess að vera reynslubolti umfram þá sem ‘bara’ brenna af áhuga.