
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
SVFB – Hlíðarvatn í Hnappadal
Um síðustu helgi var ég svo heppinn að verða vitni að frábærri mætingu félagsmanna Stangveiðifélags Borgarness á Fjölskyldudag við Hlíðarvatn í Hnappadal. Þetta ‚litla‘ félag hefur á undanförnum árum byggt upp glæsilega aðstöðu við þetta rómaða vatn. Veiðihús þeirra félaga, Jónsbúð var reist árið 2010 og nú nýverið var smiðshöggið rekið á aðstöðuna með uppsetningu á vönduðu aðgerðarborði þar á staðnum. Fleiri stangveiðifélög mættu taka sér þetta til fyrirmyndar, það er allt of oft að veiðimenn þurfa að bograst í aðgerð úti í móa og vita svo ekkert hvað á að gera við úrganginn eftir aðgerð.

Hlíðarvatn í Hnappadal Það var allt sem lagðist á eitt að gera Fjölskyldudaginn að vel heppnaðri samkomu, veðrið lék við veiðimenn og vatn og flestir, ef ekki allir af tæplega 30 gestum dagsins fóru heim með fisk í lok dags.
Eins og áður hefur komið hér fram, þá átti fiskurinn í Hlíðarvatni nokkuð undir högg að sækja fyrir nokkrum árum, en nú hefur hann heldur betur rétt úr kútnum og mikið er af vænum urriða og bleikju í vatninu. Vatnið er nokkuð sérstakt að því leitinu til að vatnsborð þess getur lækkað mikið frá vori til hausts og þetta sumar ætlar vatnsstaðan að vera nokkuð undir meðallagi. Þessar sveiflur í vatnshæð gefa veiðimönnum færi á að kanna veiðistaði sem að öllu jöfnu eru ekki aðgengilegir að vori þegar vatnshæð er í hámarki. Þetta fékk ég að reyna um síðustu helgi þegar við veiðifélagarnir gerðum góða veiði ásamt fleirum við vatnið.
Jónsbúð við Hlíðarvatn – mynd: SVFB Það veiðisvæði sem Stangveiðifélag Borgarness hefur á leigu er fyrir landi Hraunholta og nær frá vesturbakka vatnsins inn að Álftatanga. Stangafjöldi er ekki takmarkaður á svæði SVFB, enn sem komið er og því tilvalið að hafa þetta svæði í huga þegar stórfjölskyldur vilja taka sig saman um veiðidag eða helgi. Það er einmitt eitt af áhersluatriðum SVFB að skapa félagsmönnum sínum aðstöðu og tækifæri til þess að komast í fjölskylduvæna veiði á viðráðanlegu verði og það hefur svo sannanlega tekist við Hlíðarvatn. Veiðileyfi er hægt að kaupa hjá Sigurði Helgasyni að Hraunholtum og SVFB leigir veiðihúsið til utanfélagsmanna á 5.000,- kr. virka daga og 6.000,- kr. nóttina um helgar. Húsið er einstaklega haganlega byggt, vandað og snyrtilegt og fellur vel að umhverfinu. Hægt er að senda fyrirspurnir um lausa daga og panta veiðihúsið með því að senda póst á svfb310@gmail.com Félagsmönnum SVFB býðst síðan að kaupa árskort í vatnið og nýta sér gæði þess eins og hverjum hentar yfir sumarið.
Þess ber að geta að upplýsingar um vatnið hér á síðunni hafa verið uppfærðar og nýtt kort með þekktum veiðistöðum útbúið.
Höfundur:
-
Hlíðarvatn í Hnappadal, 16. & 17. júlí
Á ferðalagi okkar hjóna norðan úr landi á föstudaginn leitaði hugurinn ósjálfrátt á fornar slóðir. Það var næstum fyrir ári síðan að ég lét hafa eftir mér að slóðinn inn að uppáhalds veiðisvæði okkar hjóna þyrfti gagngerrar yfirhalningar við ef við færum þangað aftur, þ.e. slóðinn frá Heggsstöðum inn að vatni. Með þetta í huga og þá staðreynd að engar fréttir var að hafa af færð og ástandi slóða, afréðum við að hringja í Stangveiðifélag Borgarness og kanna með veiðimöguleika í vatninu.
Það hitti þannig á að á laugardaginn var Fjölskyldudagur SVFB og miklu meira en sjálfsagt að leyfa okkur að vera við vatnið um helgina. Og þvílík helgi. Við veiðifélagarnir eru sammála um að aldrei hefur fiskurinn í Hlíðarvatni verið eins fallegur, eins mikið af honum og eins skemmtilegur í töku eins og um þessa helgi. Undanfarin ár hefur mér þótt fiskurinn rokka verulega í holda- og heilsufari, en þetta árið hefur hann heldur betur tekið við sér, feitur og pattaralegur, hraustur og almennt vel haldin, bæði bleikjan og urriðinn.
Hlíðarvatn í Hnappadal Við tókum laugardaginn með fyrra fallinu og röltum inn með Fellsbrekku, að Neðri-skúta og alveg út að Svarta-skúta. Veðrið var eins fallegt og best varð á kosið, sól og stillur þannig að þurrflugur fengu að njóta sín á vatninu. Á fyrri vaktinni tókum við 14 fiska, bleikjur og urriða í bland, ásamt því að setja í nokkra putta sem var sleppt. Seinni vaktin var á svipuðum nótum hvað fiska varðar en veðrið tók smávægilegum breytingum þegar leið á kvöldið. Léttur úði og smá blástur krydduðu umhverfið hæfilega og fiskunum virtist líka það vel og við fórum nokkuð sátt í háttinn fyrir miðnættið með okkar 16 fiska eftir vaktina.

Síðkvöld við Hlíðarvatn Sunnudagurinn rann upp með örlítið öðru veðri, smá blástur en fallegt engu að síður. Við héldum uppteknum hætti og röltum inn með Fellsbrekku og bættu einum sjö urriðum í safnið áður en við tókum saman og héldum heim á leið og skeggræddum alla kosti þess að sækja um aðild að SVFB og þær flugur sem gáfu í þessari veiðiferð. Þær voru sem sagt; Orange Nobbler, Orange Nobbler, Orange Nobbler, svartar þurrflugur, Heimasætan, Krókurinn og að ógleymdum Orange Nobbler.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 6 / 9 110 / 130 13 / 12 23 / 32 12 / 14 Höfundur:
-
Langavatn á Skaga, 14. júlí
Án þess að hafa hugmynd um að loðnir gestir frá Grænlandi væru að gera sig heimakomna á austanverðum Skaga, ákváðum við hjónin að fara á Skagaheiðina að vestan í þetta skiptið og heimsóttum Langavatn í fyrsta skiptið. Veiðifélagar (Mosó-gengið) höfðu farið að vatninu í fyrra en lítið séð af því sökum þoku, þannig að okkur lék forvitni á að kynnast Langavatni því vel hefur verið látið að því.
Við renndum norður á miðvikudaginn, komum við á Steinnýjarstöðum og fórum þaðan eins og leið liggur inn að vatni. Það verður ekki af umhverfinu skafið að þarna er fallegt og vatnið skartaði sínu fegursta þegar við komum að því þótt nokkur gjóla væri af norðaustri og heldur liðið á daginn.
Sólsetur við Langavatn á Skaga Næsta dag reyndum fyrir okkur inn með vatninu að norðan, alveg út að tanga sem þar kallast á við annan frá suðurbakkanum. Kunnugur veiðimaður sem gaf sér tíma til að uppfræða okkur, sagði að við þessa þrenginguna í vatninu væri helst von á fiski, en því miður urðum við lítið vör við fisk þarna. Þess í stað pikkuðum við upp urriða og bleikjur á minni töngum og tám sem stóðu út í vatnið á leið okkar. Það fylgdi reyndar sögu þessa veiðimanns að það hefði verið nokkuð kalt síðustu daga, hitastigið farið niður í 4 °C og fiskurinn trúlega lagst fyrir. Mér finnst þetta hin ágætasta afsökun og tek hana góða og gilda, en 6 fiskum náðum við samt á land, þremur urriðum og þremur bleikjum. Allt fallegum og vel höldunum fiskum sem nú eru komnir í frost og bíða reyks.

Flottur veiðidagur við Langavatn á Skaga Eftir að hafa sofið vel og lengi á föstudaginn, renndum við til baka og tókum hús á Árnýju á Steinnýjarstöðum sem fræddi okkur um ýmislegt um tilhögun veiði í Langavatni sem ég hyggst nýta í nánari umfjöllum um vatnið á næstunni. Af þessum sólarhringskynnum af vatninu, þori ég alveg að mæla með því. Dásamlegt umhverfi og trúlega er fiskjar von hringinn í kringum vatnið, þótt flestir veiði víst helst í þeim hluta þess sem komið er að frá slóðanum. Nánar um það síðar og svo fréttir af framhaldi ferðalags okkar hjóna á veiðislóðir síðustu daga.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 1 / 2 104 / 121 2 / 1 10 / 20 11 / 13 Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Frostastaðavatn, 7. – 9. júlí
„Nú er sumarið komið, þið eruð mætt“; svona heilsaði Tinna staðarhaldari okkur þegar við renndum í hlað við Landmannahelli á fimmtudaginn. Vegurinn inn að Landmannahelli (F225) var ekki mikið meira en þokkalegur og okkur varð á orði að Vegagerðin hefði getað gert betur í að hefla hann áður en ferðamannatraffíkin byrjaði fyrir alvöru. En hvað um það, við komum okkur fyrir á tjaldsvæðinu, gerðum okkur klár og vorum mætt í Frostastaðavatn rétt um kl.16. Veðrið lék við okkur og við áttum stefnumót við vík eina í hrauninu sem sjaldan hefur brugðist. Víkin sem slík brást okkur ekki og við höfðum úr nægu að moða, þ.e. það var nægur fiskur á svæðinu þótt hann væri ekki stór. Eins og oft áður datt veiðin á þessum slóðum niður laust eftir kvöldmat þannig að við röltum í rólegheitum til baka að bílastæðinu austan við vatnið, kipptum einum og einum upp á röltinu og vorum komin á skynsamlegum tíma aftur í vagninn.
Það er nú svo merkilegt að það virðist aldrei vera slæmt veður við Framvötnin og það brást okkur ekki á föstudaginn og eftir að hafa hellt upp á könnuna og fengið okkur morgunverð, var haldið af stað í Frostastaðavatnið aftur. Í þetta skiptið ætluðum við örlítið lengra inn í hraunið (Suðurnámshraun) og taka stöðuna á fiskinum þar. Ekki skorti fjöldann og við eyddum lunganu úr deginum við að þræða víkina og nokkra tanga vestur af henni með góðum árangri. Það var nokkuð þétt í pokunum hjá okkur á leiðinni til baka um kvöldið, en vitaskuld var veitt á völdum stöðum, svona til að halda okkur við efnið og stytta gönguna.
Við höfðum lengi haft hug á að kíkja í Eskihlíðarvatn og gerðum heiðarlega tilraun til að finna afleggjarann af F208 inn að vatninu að austan á laugardagsmorgun, án árangurs. Væntanlega er eini slóðinn inn að vatninu sem enn er fær sá sem liggur um Eskihlíðarhnausa að norðan, en þetta er sett fram án ábyrgðar því við könnuðum þann slóða ekki. Eins getur verið að slóði upp af Dómadal sé einnig fær, en hann höfum við aldrei prófað.
Eftir þessa snautlegu afleggjaraleit okkar renndum við aftur að Frostastaðavatni , nú að norðan og röltum inn með vatninu að vestan. Og við gerðum meira en það. Þegar inn fyrir Dómadalshraun var komið ákváðum við að rölta áfram að Suðurnámum og þegar þangað var komið þá var helmingi vatnsins náð og eins gott að klára hringferð um vatnið. Þannig lágu 6,8 km. eftir okkur með mjög mörgum stoppum hér og þar, sýni tekin af fiski og dáðst að umhverfinu. Í stuttu máli; ég tók þokkalegan fisk við norðurenda Dómadalshrauns og væntanlega var einhver slæðingur af fiski á þeirri strönd en undan Dómadalshrauni var fiskurinn heldur smár. Sömu sögu er að segja af ströndinni undir Suðurnámum, smár en í miklu þurrflugustuði og hin besta skemmtun að reyna sig við hann. Það var ekki fyrr en við komum í fyrstu víkina undir Suðurnámshrauni að fiskurinn fór stækkandi og sá var nú einnig í stuði fyrir þurrflugu. Ströndin að austan er flestum þekkt fyrir heldur smáan fisk en eins og við höfðum svo sem áður reynt, þá var fiskurinn undan Frostastaðahrauni nokkru stærri og vel nýtanlegur. Það var sem sagt stoppað við hverja vík og næstum hvern stein hringinn í kringum vatnið.

Frostastaðavatn Vatnshæð um þessar mundir er í meðallagi í Frostastaðavatni. Við höfum séð hana hærri og við höfum séð hana lægri. Vel fært út í sker og á tanga undan Suðurnámshrauni og Frostastaðahrauni og vel þess virði að leggja leið sína á báða staðina. Af fiskinum er það helst að frétta að það er ógrynni af bleikju í vatninu og henni fer því miður mjög fjölgandi. Við höfum sjaldan, ef í nokkurn tíma tekið jafn mikið af fiski sem var illa haldinn; magur eða í lélegum holdum. Þetta þýðir þó alls ekki að allur fiskur sé þannig. Í bestum holdum var fiskurinn á bilinu hálft til eitt pund og mikið af honum. Það er ekkert óeðlilegt að setja í mjög dökkan fisk á þessum árstíma í Frostastaðavatni, fiskurinn er enn að koma upp úr dýpinu eftir veturlegu, en því miður voru nokkrir þessara fiska óttalegir slápar og töluvert um samgróninga í þeim sem er ekki góðs viti, hausstórir og ljótir. Almennt fannst okkur fiski hafa fjölgað mikið og hann var smærri en oft áður. Þegar allt er tekið saman, þá eru þetta ákveðnar (mjög ákveðnar) vísbendingar um að ekki sé seinna vænna en grisja þurfið vatnið með markvissari hætti en hingað til hefur verið gert.
Af Malla er það helst að frétta að hann virðist hafa komið vel undan vetri, sprækur og hress og fylgdi okkur hvert fótmál þessa þrjá daga sem við eyddum við vatnið.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 82 / 92 103 / 119 0 / 0 8 / 19 10 / 12 Höfundur:

