Yfirleitt er það nú þannig að þegar maður hnýtir flugur, þá snýr sama hlið hennar að manni 90% tímans. Engu að síður er nauðsynlegt að horfa á fluguna frá fleiri sjónarhornum, sjá hvernig skeggið lítur út neðan frá, vængurinn að ofan og skoða sitt lítið af öðru. Ég hef meira að segja verið að temja mér að skoða fluguna að aftan, jafnvel kíkja uppundir hana, en það er önnur saga.
Stækkunarspegill á kantinum
Þeir sem eiga hnýtingarþvingu sem hægt er að snúa á alla kanta (rotating vise) ættu því að nýta sér tólið til fullnustu og snúa flugunni á alla kanta til að skoða áferðina, þó ekki væri nema til að dást að henni. Þeir sem eru ekki svo vel settir að eiga svona hnýtingarþvingu verða að losa fluguna úr þvingunni eða það sem er mun einfaldara, vera með snyrtispegil við höndina og bregða honum á bak við fluguna, undir hana og aftanvið. Þá þurfa þeir ekki að losa fluguna ef svo ólíklega vildi til að eitthvað þurfi að lagfæra. Það er ekki verra ef spegillinn er tvöfaldur, þ.e. venjulegur öðru megin og með stækkun hinu megin, þá sér maður öll smáatriðin betur.
Nú eru nánast 200 flugur komnar inn á viðburðinn þetta árið og rétt 10 dagar eftir af mánuðinum. Okkur telst til að 28 hnýtarar hafi lagt þessar flugur til og þeir eiga þar með möguleika á detta í lukkupottinn þegar við drögum út nokkrar viðurkenningar sem styrktaraðilar okkar hafa lagt okkur til. Allar flugurnar má sjá með því að smella hérna.
Á mánudaginn verður þriðja hnýtingar- og kynningarkvöld Febrúarflugna og Ármanna í Árósum og að þessu sinni mætir Ingvar Ingvarsson hnýtari og Flugubúllan verður með vörukynningu. Það er óhætt að segja að þátttaka á þau kvöld sem þegar hafa farið fram hefur farið fram úr björtustu vonum og ef að líkum lætur, þá verður þátttakan á mánudag ekki síðri.
Enn held ég áfram grúskinu um vængi votflugna. Í síðustu viku nefndi ég rök Don Bastian fyrir opnum, uppsveigðum væng og að ég hefði fundið nokkrar slíkar í boxinu mínu. En ég fann fleiri tegundir. Með hliðsjón af ráðleggingum góðs vinar míns um niðursveigðan væng fyrir vatnaveiði, þá voru flestar þeirra þannig hnýttar og það sem meira er, vængurinn var yfirleitt örlítið opinn.
Opinn vængur, niðursveigður endi
Að þessu leiti fellur smekkur okkar félaganna greinilega vel að uppáhalds flugum J. Edson Leonard, enn eins votfluguspekingsins. Eftir hann liggja nokkrar frábærar bækur og blaðagreinar um flugur, hnýtingar og fluguveiði. Ef einhver hrasar um eina slíka, endilega nælið ykkur í hana og skoðið, þið verðið ekki sviknir.
Það er sterkur steikingarþefur í eldhúsinu og það fer ekki framhjá nokkrum manni á heimilinu að það er verið að steikja kleinur. Kokkurinn er með allar græjur við höndina; eldvarnarteppi og lok á pottinn ef illa fer og feiti slettist á heita helluna eða hitnar um of í kolunum. Skyndilega eykst þefurinn verulega og reyk tekur að leggja um allt eldhúsið. Dettur einhverjum í hug að kokkurinn skjótist þá yfir í næsta herbergi, opni alla skápa upp á gátt í örvæntingarfullri leit að orsök reykjarins? Nei, auðvitað ekki, hann tekur eldvarnarteppið og lokið og kæfir eldinn sem hefur gripið um sig í feitinni. Það þarf ekki að leita að upptökum elds í stofunni þegar allt stendur í björtu báli í eldhúsinu.
Þess þá heldur væri það óðs manns æði að ætla fyrst að bjarga kleinunum úr pottinum og loka honum að því loknu. Til þess að heimilið brenni ekki til kaldra kola, þá er forgangsatriði að slökkva eldinn og það gerir maður ekki með því að kalla til eldvarnareftirlitið eða velta sér upp úr spekúlasjónum um skipulag brunavarna eða möguleg upptök elds hjá nágrannanum á meðan reyk leggur um eigið hús.
Mér, sem leikmanni, virðist sem ótrúlegum tíma hafi verið varið til lítils frá því um mitt síðasta sumar þegar fyrstu vísbendingar komu fram um strok regnbogasilungs á Vestfjörðum. Halló, regnbogasilungur hefur verið að veiðast í ám og lækjum um vestanvert landið frá miðju sumri og heilu göngurnar hafa sést utan kvía í Önundarfirði. Þetta hljómar í mín eyru eins og ætlunin hafi verið að bjarga kleinunum upp úr pottinum áður en slökkt yrði í og nú hefur það verið gert, þ.e. búið er að slátra þeim fiski sem ekki strauk.
Að vísu virðast menn ekki vera sannfærðir um að reyk hafi aðeins lagt upp úr einu potti þarna fyrir vestan. MAST gengur ekki út frá því að þetta gat, eitt og sér, skýri það magn lausagönguregnboga sem vart hefur orðið við frá miðju sumri. Hvað eru götin þá mörg sem stoppa þarf í og væri ekki ráð að byrja að skoða hinar kvíarnar sem eru á undanþágu frá reglum? Eða það sem betra er, færa þennan iðnað upp á land þar sem fylgjast má með þeim á sokkaleistunum? Nú þurfum við að anda djúpt áður en fleiri undanþágur verða samþykktar eða ný leyfi fyrir sjókvíum, sama hverrar tegundar, verða gefnar út. Það er mál til komið að menn geri sér grein fyrir því að það brennur.
Hnýtingar- og kynningarkvöld 20. febrúar kl. 20 -22 í Árósum, Dugguvogi 13
Ingvar Ingvarsson verður á staðnum og sýnir nokkrar af sínum uppáhalds. Ingvar er ekkert annað en listamaður þegar kemur að fluguhnýtingum og verðlaunaflugur hans frá því í fyrra líða mönnum seint úr minni.
Auðvitað verður hnýtingaraðstaða í boði fyrir alla sem vilja smella í eins og eina, tvær eða fleiri flugur og það verður örugglega heitt á könnunni, eins og önnur kvöld.
Flugubúllan mætir og kynnir vöruúrval sitt, meðal annars vörur frá Wychwood, Leeda, Tacky Fly Fishing og Flextec.