Nú fer ég alveg að hvíla lesendur af grúskinu mínu um vængi á votflugum, bara einn í viðbót. Þegar ég renndi í gegnum boxið mitt voru nokkrar svona flugur inni á milli; niðursveigður, lokaður vængur og það kæmi mér ekkert á óvart að svona vængir leynist í mörgum boxum veiðimanna.
Lokaður vængur, niðursveigður endi
Enn og aftur vitna ég í Don Bastian og grein hans frá 2010 í Hatches Magazine. Þar segir Don frá ástríðu Dave Hughes fyrir þessum flugum. Það eitt, að hann hnýti sínar votflugur svona er mér næg ástæða til að halda áfram að nota mínar. Ein af mínum uppáhalds bókum, þ.e. það sem ég hef komist yfir af efni úr henni, er Essential Trout Flies sem hefur komið út í nokkrum upplögum frá árinu 2000 og nú síðast sem rafbók fyrir Kindle.
Ertu í minnsta vafa um það hvaða flugur þú ætlar að nota næsta sumar? Ef svo, þá gæti verið tilvalið að kíkja á þær 240 flugur sem hafa verið settar inn á Febrúarflugur. Það getur þú einmitt gert með því að smella hérna.
Ef þú veist síðan alveg hvaða flugur þú ætlar að hnýta og prófa, en átt ekki gæjurnar til verksins, þá gæti verið sniðugt að koma í Árósa, Dugguvogi 13 á mánudaginn kl. 20 og skoða hnýtingargræjurnar frá Árvík sem þar verða kynntar. Svo verða örugglega einhverjir snillingar á staðnum sem verða að hnýta og enn aðrir sem koma bara til þess að hitta mann og annan og tilvalið er að góma í spjall um hvað eina sem þig langar að fræðast um.
Næstkomandi mánudag verður lokakvöld Febrúarflugna í Árósum, Dugguvogi 13. Hjörtur Oddsson verður við þvinguna og leiðir gesti um slóðir gúmmílappa á flugum. Hjörtur hefur einmitt verið að setja nokkrar þannig flugur inn á Febrúarflugur síðustu daga og eflaust eru margir sem vilja ólmir kynnast þessari tækni.
Hjörtur Oddsson
Hjörtur Oddsson
Vörukynning kvöldsins verður í höndum Árvíkur, þar sem hnýtingargræjurnar verða allsráðandi enda bíður Árvík upp á ótrúlega gott úrval og gæði slíkra áhalda frá heimsþekktum framleiðendum, þar á meðal má nefna Loon, Stonfo, Griffin, C&F design, Fishpond og svo auðvitað Kamasan önglana sem allir þekkja.
Þess ber síðan að geta að á þessu síðasta kvöldi ætlum við að draga nöfn nokkurra heppinna hnýtara úr hópi þátttakenda og veita þeim viðurkenningu fyrir þeirra framlag til Febrúarflugna þetta árið. Styrktaraðilar átaksins hafa verið svo rausnarlegir og láta okkur í té nokkra glaðninga sem við látum renna til þátttakenda þetta árið með von um að þeir komi sér vel hjá þeim sem hljóta. Auðvitað þætti okkur vænt um að sem flestir þátttakendur sæju sér fært að mæta í Árósa, mánudagskvöldið 27. febrúar á milli kl. 20 og 22 og vera viðstaddir athöfnina.
Fyrstu fiskarnir í vor sem leið tóku nokkuð hefðbundnar flugur sem virka í köldu vatni. Mjósleginn Mobuto og mjónur með rauðu ívafi voru greinilega eitthvað sem líktust því æti sem var á ferðinni. Þetta ætti svo sem ekkert að koma á óvart, það eru ekkert endilega fullvaxta flugur sem boðið er upp á snemma vors. Á sama tíma voru Black Pennell og Teal and Black að gefa öðrum veiðimönnum fisk og svo auðvitað heimalningurinn í Selvoginum, Peacock.
Örmagna UV Nobbler eftir sumarið og Peacock #16
Þegar fjör fór að færast í fiskinn, bæði urriða og bleikju, var eins og hálfgert kapphlaup hæfist á milli Peacock með orange skotti og stutts orange Nobblers. Og viti menn, þar sem þessum tveimur tókst að stimpla sig fljótlega inn, þá voru þær alltaf framarlega í boxinu í sumar og þar með oftast á meðal fyrsta vals það sem eftir lifði sumars. Þær flugur sem oftast eru reyndar enda vitaskuld með því að verða þær veiðnustu, svo einfalt er það. Þannig trúlega varð þetta eiginlega sumar hins stutta orange Nobblers.
Ekki dró úr áhuga fisksins á Nobbler eftir að ég brá út af vananum og hnýtti nokkra úr UV Straggle frá Veniard í stað hefðbundins undirlags og hringvafs. Þá varð þessi fluga einfaldlega bráðdrepandi, bæði í urriða og bleikju. Vel að merkja, umræddur Nobbler er stuttur, afskaplega stuttur og lítill. Ég að tala um að hnýta hann á stuttan púpukrók #12 eða #14, stundum #10 ef ég hef ekki trú á þeim sérlega litlu.
Það er ekkert lát á flugunum sem hnýtarar deila með áhugamönnum á Febrúarflugum, nú eru þær komnar upp í 219 og eflaust verða fleiri til á hnýtingar- og kynningarkvöldinu í Árósum, Dugguvogi 13 í kvöld á milli kl.20 og 22. Auðvitað er búið að uppfæra myndasafnið hér á FOS.IS og hægt er að skoða allar flugurnar með því að smella hérna.
Það er þegar byrjað að hita undir kaffikönnunum, kexið er borið inn í bunkum og kjúkusmellir heyrast um allt höfuðborgarsvæðið þegar hnýtarar setja sig í stellingarnar fyrir kvöldið. Ingvar Ingvarsson mætir á svæðið og Flugubúllan kemur með það nýjasta úr sínum fórum. Stóra spurningin er hvort aðsóknarmetið frá því í síðustu viku verður jafnað, já eða slegið.