Listar eru í uppáhaldi hjá mér. Helst vildi ég hafa lista yfir allt sem ég hef gert og á eftir að gera. Þegar daglegum yfirlestri greina af veiðilistanum mínum er lokið, innlenda fréttalistanum stungið undir stól og pólitíska listanum hent í ruslafötuna, þá kemur alveg fyrir að ég gúgla einhverja samsetningu úr top tips, fishing, todo list og þá er nú nokkrum klukkustundum reddað.

Þegar vel gengur
Margir af þessum dásamlegum listum sem maður hrasar um á internetinu eru óttalega mikil vitleysa, en það kemur iðulega fyrir að maður rekst á eitthvað sem síast inn og eitt og eitt atriði hangir eftir í langtímaminninu. Ég tók það til dæmis sem mjög ákveðna vísbendingu um daginn þegar ég hrasaði í hundraðasta skiptið um lista yfir algengustu villur í flugukasti. Aha, eru æðri máttarvöld eitthvað að senda mér skilaboð? Meðal þess sem var á nokkrum þessara lista voru atriði eins og:
- Skortur á samfellu í bakkastinu. Algeng villa hjá veiðimönnum að byrja bakkastið eðlilega, hinkra samt aðeins við á einhverjum tímapunkti og halda svo áfram í eðlilegu bakkasti. Það tók mig smá tíma að melta þetta og skilja. Jú, þetta kemur stundum fyrir þegar stöngin hjá mér er alveg að nálgast 12 á kastklukkunni, þá hægist á kastinu en svo gef ég aftur í 12:15 og alveg til kl.13.
- Tilfinnanlegur skortur á aftara stoppi. Óþarfi að ræða þetta eitthvað frekar.
- Úlnliðurinn opnast út í bakkastinu. Já, einmitt, úlnliðurinn. Hann er veikur hjá mér en ég hafði kannski ekki gefið því gaum að hann brotnar ekki aðeins aftur á bak, heldur sveigist hann líka út á við í bakkastinu, toppur stangarinnar fylgir þá ekki lengur beinum ferli, hann verður ávalur.
- Framhandleggurinn ofvirkur í kasti. Já, þótt þessi partur á milli handar og upphandleggs heiti fram-eitthvað, þá á hann ekkert að vera með í framkastinu. Það er upphandleggurinn sem á að sjá um kastið. Sérlega slæmt þegar framhandleggurinn vísar orðið beint fram í enda kastsins og úlnliðurinn kominn í keng til að halda stangartoppinum upp úr vatninu.
- Engin pása á milli fram- og bakkasts. Ætli ég verði ekki að taka þetta örlítið til mín, hef stundum heyrt í kúski á bak við mig með svipu.
Ef þú hefur fundið eitt eða fleiri atriði á þessum lista sem átt gætu við þig þá er það gott, annars verður þetta þá bara minn listi sem ég ræðst á núna í vor og lagfæri.






