
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Grafinn urriði með rjómaosti
Flestir þekkja grafinn lax á ristuðu brauði með graflaxsósu, herramannsmatur. En það getur verið tómt vesen að borða þetta nema með hníf og gaffli og því verður stundum ekki komið við, sérstaklega í veislu eða kokteilboði þar sem fátt er um hnífapör. Ég hef því tekið grafinn urriða, sneitt hann niður og saxað gróft ofan á þunnar (u.þ.b. 0,5 sm. þykkar) sneiðar af grófu snittubrauði. Hver sneið verður því u.þ.b. tveir munnbitar og ekkert mál að tylla henni við hlið te- eða kaffibollans á undirskálina.

Grafinn urriði á snittubrauði Til að halda örlítilli nýbreytni í þessu, þá hef ég smurt sneiðarnar með Philadelphia Original rjómaosti í stað smjörs eða majónes. Hverri sneið hef ég síðan úthlutað einum vænum dropa af graflaxsósu og ef ég er ekki í mikilli tímaþröng, þá hef ég sett örlítið af steinselju ofaná til skrauts. Vel að merkja, þá er auðvitað líka hægt að útbúa þessar snittur með reyktri bleikju.

Nokkrir smáréttir úr aflanum Höfundur:
-
Gamalt nylon
Ég hef í mörg ár haldið því fram að það sé ekkert til sem heitir einskisverður fróðleikur (e. useless information), það er alltaf hægt að notast við eitthvað af þessum, þó ekki væri nema til þess að leggja útfrá honum í efnisöflun. Eitt af því sem varð mér hvatning til smá vefleitar er sú staðreynd að nylon kom fyrst fyrir augu almennings árið 1938, nánar tiltekið í hárum tannbursta og skömmu síðar í sokkabuxum. Mér skilst að þessar fyrstu sokkabuxur séu fyrir löngu horfnar einfaldlega vegna þess að hráefnið í þeim hefur fyrir löngu brotnað niður og þar með buxurnar sjálfar.
Fljótlega eftir að byrjað var á að spinna nylon í þráð fóru menn að nota hann til fluguhnýtinga, hvaða ár veit ég ekki nákvæmlega en ég las um það á heimasíðu American Museum of Fly Fishing að þeir væru í stökustu vandræðum með einhverja safngripi (flugur) vegna þess að þeir væru að losna í sundur vegna þess að hnýtingarþráðurinn væri að morkna í sundur. Ég ætla rétt að vona að menn séu ekki í þessum vandræðum með eitthvað sem leynist í fluguboxunum.
Mér skilst að hnýtingarþráður úr nylon hafi takmarkaðan líftíma, hve langan greinir menn síðan verulega á um. Tom Rosenbauer tekur greinilega enga sénsa og skiptir öllum sínum hnýtingarþráðum út á tveggja ára fresti. Væntanlega fær hann einhvern góðan afslátt hjá Orvis, verandi starfsmaður þeirra og þarf ekki að horfa í aurinn þegar kemur að endurnýjun. Aðrir hnýtarar segjast nota nylon þráð sem sé orðinn meira en 5 – 6 ára og það sé ekkert að honum. Reyndar taka þeir fram að stundum þurfi þeir að vinda ofan af keflunum, einu eða tveimur lögum af þræði þannig að upprunalegur litur kemur í ljós. Það að nylon lætur lit með tímanum er einmitt skýrt merki um að efnið sé farið að brotna niður, verður þurrt og stökkt.

En er eitthvað til ráða ef nylon er byrjað að brotna niður? Algjörlega án ábyrgðar, þá hef ég hér eftir eina ábendingu sem smellt var fram á erlendum spjallþræði; Taktu skaftpott með ½ lítra af vatni og bættu eins og einni matskeið af hlutlausri matarolíu út í vatnið. Hitaðu vatnið að suðu og stilltu lokið á pottinum þannig að gufuna leggi út til hliðar. Stilltu gömlu hnýtingarkeflunum þannig upp að gufuna leggi um þau og leyfðu þeim að hitna vel. Þetta skilst mér eigi að þrífa hnýtingarþráðinn og að einhverju marki endurnýja í það minnsta yfirborðsfituna í þræðinum.
Ég get mér þess til að líftími nylon fari mikið eftir því hvernig þráðurinn sé geymdur. Nylon brotnar niður fyrir áhrif sólarljóss, hita og raka. Ætli gamli frasinn Geymist á þurrum og köldum stað sé ekki bara í fullu gildi þegar kemur að heppilegum geymslustað. Annars get ég heilshugar tekið undir undrun og hneykslun sem kom fram í einu kommenti á spjallsíðu; Þetta á náttúrulega ekki að vera neitt vandamál, hnýttu bara flugur þangað til þráðurinn klárast.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Tortillur með reyktri bleikju
Í síðustu viku skaut ég hér inn uppskrift að tortillum með gröfnum urriða, en það er líka hægt að nota reykta bleikju og mörgum finnst sú útgáfa ekki síðri.

Tortillur með reyktri bleikju Uppskriftin er mjög svipuð, þ.e. á átta stórar maís tortillakökur nota ég eina dós af hvítlauks- og jurakrydduðum Philadelphia rjómaosti sem ég hræri út með einni dós af 18% sýrðum rjóma. Með reyktum fiski kýs ég að nota þennan kryddaða ost sem kemur með skemmtilegt mótvægi við reykbragðið af fiskinum sem vel að merkja þarf að vera taðreyktur. Bleikjuna sneiði ég niður þannig að hún sé í þykkara lagi og nægi í 5 – 6 raðir á smurðar maískökurnar. Að nota maískökur er kannski bara einhver sérviska í mér, en mér finnst þær fara einfaldlega betur með reyktum fiski heldur en þær úr hveiti.

Nokkrir smáréttir úr aflanum Kökunum rúlla ég síðan þétt í lengjur og nota gjarnan sushi bambusmottu þannig að þær verði þéttar og áferðafallegri. Lengjurnar má sneiða strax niður í 1,5 – 2 sm. þykkar sneiðar, en ekki er verra að leyfa lengjunum að taka sig yfir nótt í kæli. Eigum við eitthvað að ræða drykki með þessu? Jú, vel kælt hvítvín eða ískaldur bjór sem í þessu tilfelli má alveg vera dökkur maltbjór ef vill.
Höfundur:
-
Getur maður gleymt?
Í veiðiferðum heyrir maður alltaf eitthvað spaugilegt, annað hvort frá veiðifélögum eða áhorfendum. Já, áhorfendum að stangveiði er sífellt að fjölga á Íslandi. Fjölgun ferðamanna hefur vissulega sett sitt mark á stangveiði á Íslandi, rétt eins og flest annað á liðnum árum. Fyrir utan áhorfendur á gömlu Elliðaárbrúnni og mögulega á nokkrum fleiri stöðum, þá hafa veiðimenn ekkert endilega átt því að venjast að veiða berskjaldaðir fyrir augum og orðum áhorfenda á Íslandi. Þetta hefur aðeins verið að breytast á liðnum árum og það kemur fyrir að veiðimenn upplifa sig sífellt berskjaldaðri fyrir góni og glósum áhorfenda á veiðislóð. Blessunarlega eru flestir veiðistaðir á Íslandi þannig að veiðimenn eiga mjög auðvelt með að gleyma stað og stund þannig að áhorfendur fara mjög sjaldan í taugarnar á þeim. Ef veiðimaður setur óvart í einn svona ferðamann, þá er víst rétt að árétta að það er svona veiða og sleppa lögmál í gildi á ferðamönnum, kannski svona hálfgerð klakveiði. Við gómum þá, kreistum og sleppum síðan lausum og vonum að þeir komi aftur að ári.

Einn góður frá síðasta sumri Annars er það víst eitthvað fleira sem veiðmenn geta gleymt á veiðislóð heldur en stað og stund. Í sumar sem leið heyrði ég í veiðimanni sem hreint og beint hélt því fram að hann hefði gjörsamlega gleymt því hvernig veiða ætti urriða. Allt þetta bleikjustúss hefði bara alveg náð að þurrka kunnáttu og reynslu urriðaveiði út úr kollinum á honum. Þetta fannst mér spaugilegt, sérstaklega í ljósi þess að á þessum tímapunkti vissi ég nákvæmlega að viðkomandi aðili hafði veitt fjórum urriðum fleiri heldur en ég yfir sumarið. Þegar upp var staðið, þá þurfti reyndar ekki nema einn góðan göngutúr niður að Ljótapolli til að viðkomandi hætti þessu spaugi. En skaðinn var skeður hvað mig varðar, gat maður hreint og beint gleymt því hvernig ætti að veiða fisk? Getur minnið farið svo illa með mann að það hreinlega rænir mann þessari ánægju lífsins? Þetta var svo óþægileg tilhugsun að ég fjölgaði snarlega öllum veiðiferðum, ég ætlaði sko ekki að taka sénsinn á því að minni mitt tæki upp á einhverri ótukt.
Höfundur:

