Það kemur stundum fyrir að maður hefur verið svolítið grófur á fremstu fjöðrunum á flugu og lendir því í vandræðum með að koma loka hnútinum fyrir, t.d. half hitch. Þá getur verið gott að hafa fremsta hluta venjulegs kúlupenna við hendina, bregða hnút yfir hann, renna honum upp á augað og herða hnútinn niður á öngulinn. Með þessu móti er maður ekkert að flækja puttum, þræði og fjöðrum í eina bendu.
-
Half Hitch ‘áhald’
Höfundur:
-
Að festa öngul
Það getur skipt verulegu máli hvernig öngull er festur í klemmuna (vise) þegar við byrjum á nýrri flugu. Rangt festur öngull getur skemmst ef við erum of tæp á festingunni, hann marist eða jafnvel brotnað. Eins er önnur hætta því samfara að festa hann of tæpt í gripið, hann getur skotist upp og jafnvel í andlit þess sem hnýtir.

Röng staðsetning 
Rétt staðsetning 
Röng staðsetning Höfundur:
-
Mistök í hnýtingum – Hausinn

Of stór haus 
Nettur haus Hún verður bara öruggari ef ég vef aðeins meira í hausinn á henni, eða hvað? Ef þú þú vilt vera viss um að hausinn á flugunni sé nægjanlega sterkur, þá skaltu frekar nota fínni hnýtingarþráð heldur en grófari. Þú getur frekar leyft þér að bæta við hnútum (Whip finish) ef þú ert með fínan þráð heldur en grófan. Að öðrum kosti áttu á hættu að hausinn verði of stór og í engu samræmi við aðra hluta flugunnar. Auðvitað skiljum við síðan aldrei við hausinn án þess að lakka hann vel og vandlega.
Höfundur:
-
Mistök í hnýtingum – Vængurinn

Ofhnýttur vængur 
Hæfilega hnýttur Þegar við byggjum væng úr fjöðrum notum við í langflestum tilfellum fanir úr gagnstæðum hlutum fjaðrar og leggjum þær þannig saman að þær myndi () mynstur séð ofan frá. Fjaðurvæng er best að festa beint á öngulinn, það hjálpar flugunni að synda á réttum kili og umfram allt, ekki festa fjöðrina niður með of mörgum vafningum aftur eftir önglinum. Undantekningar eru auðvitað til eins og t.d. Matuka flugur þar sem vængurinn er oftar en ekki festur niður með vafningum aftur eftir öllum öngulleggnum.
Höfundur:
-
Yfir 10.000
Nú í kvöld slæddist 10.000 gesturinn inn á bloggið hjá mér og það er ekki einu sinni orðið 1 árs. Í sjálfsblekkingu minni tek ég þessu sem vísbendingu um að einhverjir hafi gaman og vonandi gagn af því sem ég tek saman og set hér fram. Kærar þakkir fyrir viðtökurnar á síðustu 9 mánuðum.Höfundur:
-
Mistök í hnýtingum – Búkurinn

Of langur búkur 
Hæfilegur búkur Fallegur búkur er vistaskuld í fullu samræmi við aðra hluta flugunnar og umfram allt áferðarfallegur, sléttur og nær ekki of langt fram eftir önglinum. Hvort heldur við erum að byggja straumflugu eða púpu þá á búkurinn ekki að ná lengra heldur en fram að skegg- eða vængstæðinu á flugunni.
Of langur búkur skilur of lítið svæði eftir til að festa niður væng eða byggja vængstæði púpu. Eins er hættara við að hausinn á flugunni verður of stór groddi sem er í engu samræmi við aðra hluta flugunnar ef við neyðumst til að byggja hann ofan á hluta búksins.
Höfundur:

