Sumir ‘bændur’ fá hefðbundin blómvönd í tilefni dagsins, en ég fékk þennan frá húsfreyjunni. 
Þegar ég svo fletti honum í sundur kom í ljós þetta netta safn hnýtingarefnis sem kemur sér örugglega vel á Þorranum.
Til hamingju með daginn strákar.

Sumir ‘bændur’ fá hefðbundin blómvönd í tilefni dagsins, en ég fékk þennan frá húsfreyjunni. 
Þegar ég svo fletti honum í sundur kom í ljós þetta netta safn hnýtingarefnis sem kemur sér örugglega vel á Þorranum.
Til hamingju með daginn strákar.
Höfundur:
Frá því bloggið fór af stað í byrjun júní hafa ríflega 6200 heimsóknir slæðst inn á það, töluvert fleiri en ég átti von á. Auðvitað voru fyrstu vikurnar rólegar, innan við 100 heimsóknir á viku en svo hefur verið ákveðinn og öruggur stígandi heimsókna, flestar 466 í 50. viku þegar Orðalistinn fór í loftið.
Vinsælustu póstarnir frá upphafi hafa verið; Vatnaveiði, Fæðan, Haustverkin, Orðalisti, Uppskriftir og Fiskurinn. Þetta styður við þann grun minn að áhugafólk um stangveiði þyrstir í efni sem er framsett á mannamáli með svolítið meiri áherslu á viðráðanlega silungsveiði heldur en laxveiði í ‘vatnslausum’ ám. Auðvitað setur þessi fjöldi heimsókna þá kröfu á mig að ég fari ekki með eitthvert fleipur og rugl. Þar koma lesendur sterkir inn, senda mér ábendingar um það sem betur má fara eða efni sem þeir hafa áhuga á, bestu þakkir fyrir það. Á næsta ári höldum við síðan ótrauð áfram og aukum við efnið, vonandi jafnt og þétt, af nógu er að taka.
Höfundur:
Ég hef verið að dunda mér við að setja saman orðalista með alfræðilegu ívafi fyrir stangveiði. Það er langt því frá að þessi listi sé alfarið minn, ég hef safnað saman upplýsingum víða að og náð innleggi frá ýmsum bloggurum héðan og þaðan, m.a. af veidi.is ásamt mjög góðum ábendingum Hilmars Jónssonar FFF flugukastkennara.
Nú er ég ekki að mælast til þess að veiðimenn temji sér öll íslensku heitin á aðferðum eða einstaka hlutum við veiðarnar, það gæti beinlínis hljómað hjákátlega. Eða eins og Zulu skaut að mér í svari á veidi.is:
…“Siggi! Tvíhalaðu þarna þvert á strauminn og vippaðu svo upp. Þegar túban kemur niður á breiðuna, strippaðu þá yfir hana svo að þú gárir vatnið.“ Hljómar spes 🙂 …
Orðalistinn er aðgengilegur hérna á síðunni og svo auðvitað úr valmyndinni hér að ofan sem Orðalisti. Miðað við fyrstu viðbrögð þessa lista geri ég mér vonir um að hann verði svolítið lifandi, í það minnsta á næstunni og menn haldi áfram að senda ábendingar um ný orð og/eða um það sem betur mætti fara í listanum.
Höfundur:
Ég hef ekkert verið neitt rosalega duglegur að senda frá mér efni síðustu vikurnar, mikið að gera og spennandi hlutir á döfinni. Samt hef ég nú gefið mér tíma til að svipast um í ýmsum verslunum og þá helst í hnýtingarhornum þeirra, þ.e. að segja þar sem það finnst. Í stuttu máli; þetta er hálfgerð eyðimörk, í besta falli götótt. Úrvalið er afskaplega lítið og fátt um svör þegar spurt er hvenær menn hafi hugsað sér að taka inn nýjar vörur, nema á einum stað; Veiðiflugur.is Hann Hilmar sagði mér skemmtilegar fréttir um daginn, von er á ‘alvöru’ búð eftir áramótin með stór-auknu úrvali og hnýtingarvörum. Auðvitað rúmar skúrinn á Kambsveginum ekki meira úrval þannig að ný staðsetning er á döfinni. Miðað við lýsingarnar á því sem hann ætlar að bjóða í nýju búðinni verður þetta algjört sælgætisland fyrir flugufíklana. Ég bíð spenntur…
Höfundur: