Þegar gestir bloggsins leggja skýringar til málanna er vel þess vert að vekja sérstaka athygli á því. Hann Einar í Veiðiheimum á snilldar takta í ummæli um greinina Stutt, langt, lengra? Kommentið hans og önnur má sjá hér aðeins neðar til hægri á síðunni.
-
Frábært innlegg
Höfundur:
-
Augað í pung
Þegar annað augað er dregið í pung hlýtur sjónin að skerðast um helming sem er slæmt mál ef maður er eineygður eins og öngull. Ekki draga það of lengi að hreinsa flugulakkið úr auganu ef þú hefur slysast til að lakka í það. Jafnvel besti úrsnarari nær ekki að hreinsa augað ef lakkið hefur náð að fullharðna og þeir geta skilið eftir örlitlar leifar lakks sem geta auðveldlega slitið eða marið taumaenda þegar síst skildi. Annar ókostur úrsnarar er að þeir eiga það til að særa haus flugunnar, jafnvel svo að hann raknar upp og þá eru dagar flugunnar taldir.Einfalt ráð til að þrífa lakk úr auga er að þræða ‚ljótu‘ fjöðrina (hackle) sem finnst í öllum pakkningum í gegnum augað strax og hausinn hefur verið lakkaður.
Höfundur:
-
Veiðikortið 2012
Nú er sko allt að gerast, Veiðikortið 2012 með tveimur nýjum vötnum að koma í lok mánaðarins á sama verði og 2011. Nú styttist í að Veiðikortið 2012 komi út en áætlað er að það komi út í lok mánaðarins. Búið er að semja um að tvö ný vatnasvæði bætast við þau vötn sem fyrir eru. Heildarfjöldi vatnasvæðanna er þá orðinn 37. Áætlað er að byrjað verði að dreifa Veiðikortinu á sölustaðið síðustu daga nóvember og fyrstu vikuna í desember, þannig að Veiðikortið 2012 verður klárt í jólapakka landsmanna. Nú þegar er byrjað að selja kortið á vefnum, http://www.veidikortid.is og er verðið óbreytt frá fyrri árum eða aðeins kr. 6.000.- Lesa meira…
Höfundur:
-
Stutt, langt, lengra?
Nú er það svo að ég hef ekki mikla reynslu af silungsveiði í ám eða lækjum, hef haldið mig að mestu við vötnin. En það kveikir auðvitað aðeins í manni þegar maður les um mismunandi aðferðir og nálgun veiðimanna þegar kemur að ám og lækjum.Ég hef minnst á kosti þess að ráða við 20-30m köst með þokkalegri nákvæmi í vatnaveiði og einmitt þessi köst geta ráðið miklu um aflabrögð í ám. Það liggur í hlutarins eðli að andstreymisveiði hlýtur að stytta veiðitíma flugunnar verulega, þ.e. þann tíma sem flugan er virk í eða á vatninu. Straumurinn í ám ber fluguna aftur til okkar, oft á tíðum með meiri hraða en við högum inndrættinum í stöðuvatni, og því er það ótvíræður kostur að ráða við lengri köst og lengja þannig veiðitíma flugunnar í ánni.
Ég hef lesið þó nokkrar greinar þar sem fiskifræðingar útlista í smáatriðum hegðun silungsins gagnvart fæðunni. Það er ekki óalgengt að þessir fræðingar haldi því fram að silungurinn eigi það til að elta fæðuna töluverða vegalengd áður en hann lætur til skarar skríða. Reynsla mín úr vatnaveiði styður þetta í stórum dráttum því oftar en ekki hef ég frekar orðið var þegar ég dreg mig aðeins til baka inn á grynningar, frá dýpinu þar sem sá stóri heldur sig í öryggi þess. Þegar ég hef náð út í dýpið, dregið fluguna upp úr því og töluvert langt inn á grynningarnar, þá tekur fiskurinn. Með öðrum orðum; þegar ég hef lengt veiðitíma flugunnar.
En aftur að andstreymisveiðinni. Til að lengja veiðitíma flugunnar er ekki verra að ráða við örlítið lengri köst til að vera viss um að kasta upp fyrir silunginn (hann er nefnilega ekki með augu í hnakkanum) og gefa flugunni og fiskinum góðan tíma til að kynnast, því þá aukast líkurnar á því að silungurinn snúi sér undan straumi, fylgi flugunni og negli hana áður en við verðum að taka upp og kasta aftur.
Höfundur:
-
Tvö ný vötn
Mér hefur borist til eyrna að Veiðikortið 2012 bjóði okkur upp á tvö ný vötn í Dölunum; Hólmavatn og Laxárvatn. Hvort öll s.k. Sólheimavötn verða með í spilinu er aftur á móti spurning en um Hólmavatn má segja að þar hafa menn átt von á bæði urriða og bleikju en í Laxárvatni aðeins urriða. Nú er um að gera að fylgjast með á vef Veiðikortsins og næla sér í bæklinginn þegar hann kemur.Höfundur:
-
Stanley
Þegar uppáhalds skrúfbútajárnið deyr, maður snýr það í sundur eða klýfur handfangið, er engin ástæða til að henda því í heilu lagi. Oftar en ekki er falinn fjársjóður fluguhnýtarans inni í þessum skrúfujárnum, örlítið segulstál fremst í járninu, stundum meira að segja fest á loftnetslíki. Að vera með svona áhald á hnýtingarborðinu getur oftar en ekki bjargað manni þegar öngull eða áhald dettur á gólfið í miðjum klíðum. Maður sleppir nú ekki svo glatt fingrum af flottustu flugu allra tíma til að fálma eftir fjaðurtöng niður á gólfi. Sjálfur útbjó ég mér svona telescopic segulstál úr skrúfujárni og smokraði bút af gúmmíslöngu upp á breiðari endann til að ná betra taki, snilldar verkfæri.Höfundur:


