
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Veiðivötn, 1. – 4. júlí
Með tilhlökkun sem hefur varað í að verða heilt ár lögðum við hjónin af stað í árlega ferð okkar í Veiðivötn á laugardaginn. Ferðin hafði verið undirbúin vandlega, meira að segja hafði græjum og fatnaði verið pakkað fyrir rúmri viku síðan, allt sem sagt gert klárt og aðeins eftir að renna við á Selfossi til að kaupa ferskvöru. Þegar í Vötnin var komið, tók þetta venjulega stúss við; bera mat og ýmsan varning inn í hús, taka í höndina á veiðifélögunum og kyssa þá sem slíkt heimiluðu. Þar sem við vorum aðeins með seinni skipunum vorum við hjónin síðustu út úr húsi, taka fram veiðistangir og vöðlur og gera okkur klár. Og fer þá frásögnin að æsast.

Í Veiðivötnum 2017 Þennan kafla ætla ég að ramma inn í frásögn af einstakri lipurð og þjónustulund þeirra sem reka veiðiverslanir af köllun og brennandi áhuga. Hvar í heiminum væri hægt að hringja í veiðiverslun kl.16:45 á laugardegi, með grátstafina í kverkunum frá stað sem er 130 km. í burtu og spyrja; Áttu nokkuð vöðluskó nr.38 og 44, ég gleymdi mínum heima og er kominn upp í Veiðivötn? Svarið hennar Hrefnu í Veiðisport kom mér reyndar ekkert á óvart; Jú, við hljótum að finna eitthvað passandi, hringdu bara þegar þú nálgast Selfoss og við mætum niður í búð. Ég ætla rétt að vona að veiðimenn geri sér grein fyrir því hversu ómetanleg þjónusta þeirra hjóna, Gústa og Hrefnu í Veiðisport á Selfossi er. Það verður mikill missir þegar þau loka versluninni, því allt stefnir í að svo verði innan tíðar. Við ykkur heiðurshjón vil ég ítreka þakkir mínar fyrir aðstoðina og einstaka lipurð í aulalegum vandræðum mínum á laugardaginn; Takk, þið eruð frábær.
Sem sagt; á meðan ég brá mér 260 km. til að útvega vöðluskó í stað þeirra sem stóðu einmana í bílskúrnum heima, brá veiðifélagi minn sér í göngutúr á strigaskónum inn að Langavatni, auðvitað með stöng í hönd og nokkrar vel valdar flugur í vestinu. Við hittumst síðan rétt upp úr kl.19 í Setrinu og kláruðum að græja okkur upp fyrir síðustu klukkustundir vaktarinnar, í þetta skiptið í vöðlum og brakandi nýjum vöðluskóm. Arnarpollur lá nokkuð vel við vindátt og því stoppuðum við smá stund þar en hurfum síðan á vit Snjóölduvatns í 7°C hita og norðan gjólu þar sem við lögðum okkar lóð á vogaskálar bleikjugrisjunar með því að kippa 18 þeirra upp úr vatninu með Orange og gyltum Nobblerum. Ekki voru nú allar þeirra hæfar til matar, þannig að eitthvað af þeim lenti í úrkasti.

Það rignir líka stundum í Veiðivötnum Það hefur lengi verið á dagskrá hjá okkur hjónum að kanna ástand bleikjunnar í Skyggnisvatni og sunnudagurinn virtist ekkert verr til þess fallinn heldur hver annar dagur þannig að við ákváðum að byrja undir Skyggni. Veðrið lék við okkur þann tíma sem við vörðum á bökkum vatnsins og það var sannanlega eitthvað dásamlega fallegt við auðnina sem umlykur vatnið. Þetta er mun meira aðlaðandi veiðivatn heldur margur hefur af látið. Bleikjan hefur komið vel til og flestir þeir fiska sem við tókum þarna voru vel yfir pundið, vel haldnir og í góðum holdum. Vinsælasta fluga dagsins í Skyggnisvatni: Hot Pink Nobbler, stuttur #12.

Við Hermannsvík Sunnudagskvöldinu eyddum við með hollinu okkar á Hrauninu við Litlasjó þar sem sumir gerðu gott mót og settu í væna fiska á meðan aðrir voru hófsamari. Vinsælasta flugan var væntanlega svartur Nobbler með kopar- eða gullbúk, alveg í stíl við hornsílin sem rekið hafði upp í fjöruna. Annars er rétt að setja þann fyrirvara að það sem er strönd við Litlasjó í dag, var vegkantur eða eitthvað þaðan af hástæðara á sama tíma í fyrra. Vatnshæðin er með ólíkindum og sumir eru hættir að tala um Hermannsvík, nú er bara talað um Hermannsflóa og í nokkrum öðrum vötnum er svipaða sögu að segja, Rauðigígur heitir til að mynda Rauðahafið í dag.
Mánudeginum eyddum við í vettvangskönnun í Stóra Hraunvatni, Hellavatni og Norðurbotni Litlasjávar sem leiddi til þeirrar niðustöðu að víðast væri mikið vatn og á sumum stöðum enn meira vatn. Nokkrir af okkar uppáhaldsstöðum voru nú samt á sínum stað, eins og til dæmis Litlatá við Litlasjó sem við heimsóttum og tókum þar fimm urriða upp úr miðjum degi, en síðan ekki söguna meir.

Ekki óalgeng sjón við Litlasjó þessa dagana Síðasta daginn okkar í veiði byrjuðum við í Ónefndavatni sem hreint og beint kraumaði í uppitökum og klaki þennan morgun. Samkeppnin var gríðarlega hörð og það var alveg sama hvaða flugur við buðum urriðanum, hann hélt sig algerlega við náttúrulegu fæðuna sem var ekki af skornum skammti. Rétt áður en túristaþyrla sveimaði yfir vatninu skaut hugmynd upp í kollinn á veiðifélaga mínum; Hvað með Higa‘s SOS? Jú, það var eins og við manninn mælt; tveir fiskar í fyrstu tveimur köstunum og svo tveir til viðbótar, en þá kom umrædd þyrla og það var hreint og beint eins og skrúfað hefði verið fyrir náttúruna í kjölfar hennar, hvorki uppi- né flugutökur eftir það.

Urriði úr Ónefndavatni Það var svo Langavatn sem naut þess að færa okkur síðustu fiska ferðarinnar. Það er ekki af bleikjunni í vatninu skafið að hún er einstaklega væn þessi árin. Stærsta sem ég tók var 2,5 pund og skemmtileg viðureignar eftir því. Síðasti fiskur dagsins setti heildarafla ferðarinnar í þriggja stafa tölu; 100 fiskar í ferðinni hjá okkur hjónum og við þokkalega sátt við það.

Vænar bleikjur úr Langavatni Hvað stendur þá eftir í huga manns eftir þessa ferð? Jú, það er ekki á vísan að róa með veður í Veiðivötnum. Hitastigið var ekkert til að hrópa húrra fyrir, þokkalegt samt og vindur getur blásið úr fjórum höfuðáttum auk allra átta þar á milli og svo rignir líka stundum uppi á Hálendi, svona eins og þess þurfi eitthvað sérstaklega þetta sumarið. En, það er alltaf jafn skemmtilegt að koma í Veiðivötn, taka króka vegna ófærðar og prófa ný vötn og endurnýja kynni við önnur eldri. Næsta ferð? Auðvitað að ári og ég er þegar farinn að útbúa gátlista yfir allt það sem þarf að vera með í þeirri ferð; 1. Muna eftir mínum vöðluskóm, 2. Muna eftir hennar vöðluskóm.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 46 / 42 60 / 54 4 / 8 14 / 10 7 / 7 Höfundur:
-
Æ, ég tylli henni hérna
Ég stend sjálfan mig oft að því að tylla stönginni minni hér eða þar, svona rétt á meðan ég þarf að gera eitthvað áríðandi eða klára að taka mig til í veiði. Yfirleitt er ég með stangarhaldara á bílnum og því engin afsökun að tylla stönginni ekki þar ef svo ber undir, en þrátt fyrir haldarana er spegillinn enn nokkuð vinsæll áningarstaður fyrir stöngina hjá mér. Þetta er slæmur staður, ég veit það og hugsa um það í hver einasta skipti sem ég legg stöngina mína á milli spegils og hurðapósts. Það þarf ekki nema augnabliks gleymsku og eitthvert fát til að opna hurðina og þá er stöngin væntanlega í sundur. Ég þarf að venja mig af þessum ósið.

Þessar eru öruggar á leiðinni heim Það er lítið skárra að halla stönginni upp að birkihríslu. Að vísu eru mestar líkur á að línan og jafnvel stöngin sjálf flækist í hríslunni og því minni líkur á að hún detti, en þetta er samt ekki góður staður. Á jörðina ætti stöngin aldrei að fara, þar er henni bráð hætta búinn þegar maður skoppar um á öðrum fæti, annað hvort á leið í eða úr vöðlunum.
Í upphafi er einfaldast að klára að klæða sig í allan útbúnað áður en maður setur stöngina saman, vera klár í slaginn og setja punktinn yfir i-ið með því að taka fram vopnið, setja það saman og hefja veiði. Í lok veiði ætti maður að byrja á því að taka stöngina í sundur, strjúka af henni og setja í hólkinn. Ef maður þarf endilega að leggja hana frá sér og er ekki með stangarhaldara á bílnum, þá er um að gera að leggja hana á húddið, beint fyrir framan framrúðuna, þá gleymist hún ekki upp við næsta runna eða tré.
Höfundur:
-
Sól, sól skín á mig
Talandi um sjálfsagt atriði sem allt of margir veiðimenn virðast gleyma. Það er ekki margt sem tekur því fram að bregða sér fram á bakka veiðivatns og láta sólina aðeins kitla sig í nefið. Já, einmitt í nefið, því þar ætti sólin að ná til okkar, ekki í hnakkann.

Þessi skuggi styggir engan Því verður auðvitað ekki alltaf þannig viðkomið að maður geti staðið á móti sól við vatnið, en það má þá snúa sér í það minnsta þannig að hún beri ekki skuggann af manni beint út á vatnið þar sem fiskurinn liggur. Skugginn á það nefnilega til að fæla fiskinn. Raunar fælist fiskurinn ekki sjálfan skuggann, meira hreyfingu hans og það er einmitt tilfellið með skugga okkar fluguveiðimanna, hann hreyfist.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Öryggisnæla
Við sem eru fæddir fyrir og rétt eftir miðja síðustu öld þekkjum öryggisnælur. Mér til furðu virðist þessi stórkostlega uppfinning hafa týnst hjá yngri kynslóðum. Í það minnsta voru ungir menn á mínu heimili alls ekki með það á hreinu hvað öryggisnæla væri þegar þær bárust til tals um daginn. Þeir eru yngri en svo að þeir hafi náð því að vera pönkarar eins og pabbi þeirra.

Öryggisnæla Hvort sem menn klæðast veiðivesti eða jakka, já eða bara gömlu góðu lopapeysunni í veiði þá er eflaust alltaf einhver staður þar sem maður getur stungið öryggisnælu í borðung eða ermi. Öryggisnælur geta alltaf komið að góðum notum í veiðinni. T.d. stinga lakki úr augum á flugu eða hengja silunganetið saman þegar það rifnar undan öllum fiskunum. Meira að segja silungaháfar hafa þurft á öryggisnælu að halda ef þeir hafa óvart krækst í grjótnibbu og rifnað, svo maður tali nú ekki um slitna axlaról veiðitöskunnar. Og fyrst veiðimönnum finnst þetta sniðug hugmynd, þá væri ekki úr vegi að vera með tvær til þrjár stærðir af nælum við höndina, augun á flugunum eru jú ekki öll af sömu stærð.
Höfundur:

