Á FOS.IS er að finna tæplega 50 kort af vötnum og veiðisvæðum hringinn í kringum landið. Hingað til hefur hending ráðið því hvernig kortin hafa verið útbúin og sköpulag vatna hefur mestu ráðið um útlit og stærð kortanna. Nú hafa öll kortin verið samhæfð á þann veg að þau eru öll af sömu stærð, sami grunntónn í þeim (grár) og hlutföll í hverju korti fyrir sig tilgreind sérstaklega. Öll kortin má finna í umfjöllun um vötnin sem finna má hér.
Smellið á kort fyrir fulla stærð
Þessi nýju kort eru öll teiknuð eftir loftmyndum sem teknar voru árin 2016 og 2017 og ættu því að gefa sem næst því rétta mynd af útliti vatnanna. Verulega hefur verið aukið við merkingar vegslóða, númer vega lagfærð og þjónustumerki sett inn þar sem við á og vitaskuld hafa fengsælir veiðistaðir verið merktir skilmerkilega inn á kortin.
Á næstu mánuðum munu síðan nokkur ný vötn bætast við á vefnum og kort þeirra verða með sama útliti og hér hefur verið getið.
Það var með nokkurri tilhlökkun að við lögðum af stað út úr bænum á föstudaginn, stefnan var tekin á Fjallabak og ætlunin að ná í nokkrar bleikjur í harðfisk. Það tekur um það bil 3 klst. að keyra úr Reykjavík inn að Landmannahelli, en þessi tími er fljótur að líða, ólíkt þeim þremur sem sem það tekur að keyra til baka. Svona virkar svæðið einfaldlega á mann, það laðar og vill helst ekki sleppa manni lausum.
Eftir að við höfðum komið færanlega veiðihúsinu fyrir við Landmannahelli var stefnan tekin á Frostastaðavatn. Þetta sumar eru þegar skráðir rétt um 700 fiskar á land úr vatninu og ekki eru öll kurl komin til grafar enn, eitthvað óskráð og oft hefur vatnið verið gjöfult langt fram í haustið. Eins og kunnugir vita, þá hefur farið ýmsum sögum af aflabrögðum og ástandi fiska í vatninu þetta sumar. Síðastliðin ár hafa gefið það til kynna að bleikjan í vatninu hafi það ekkert oft gott, hún er orðinn heldur liðmörg og hefur farið smækkandi. Það er reyndar reynsla okkar hjóna að stærri og betur haldin bleikja leitar inn í kastfæri flugustanga þegar líður á sumarið og því ætluðum við að ná okkur í nokkrar slíkar í þessari ferð.
Frostastaðavatn
Við lögðum leið okkar inn fyrir Suðurnámshraun, kíktum í nokkrar víkur og enduðum á því að leggja flugur okkar niður á þremur stöðum. Himbriminn gerði sitt besta til að fækka bleikjunni í innstu vík hraunsins og við hjálpuðum til. Til að gera langa sögu stutta þá tókum við 20 fiska með okkur úr vatninu og því miður var aðeins lítill hluti þeirra af nýtanlegri stærð. Kenning okkar um stærri fiska féll þar með um sig í þetta skiptið, en við heyrðum reyndar frá góðum kunningjum okkar sem við hittum á laugardaginn að þær (stærri bleikjurnar) hefðu gefið færi á sér í miklu magni undan bílastæðinu að norðan um síðustu helgi.
Blautaver
Úr Frostastaðavatni lögðum við leið okkar í Blautaver eftir að hafa heyrt ágætar sögur af veiði þar. Á síðustu árum hafa ekki margir fiskar verið skráðir úr verinu, en eitthvað hefur ræst úr aflatölum á þessum sumri. Kannski hjálpar það til að Tungnaá hefur valið sér farveg fjær Blautaveri síðustu mánuði heldur en oft áður og því ekki alveg eins greiður samgangur á milli núna. Vatnið er ekki alveg eins litað og oft áður og gera má ráð fyrir að gróður og pöddulíf hafi nýtt sér tærara vatn og dafnað vel í sumar. Það hefur vitaskuld áhrif á fiskinn og það kom okkur skemmtilega á óvart hvað bleikjan var vel haldin og að Tungnaár-urriðinn væri knár þótt smár væri.
Sólin að setjast á bak við Hnausa við Eskihlíðarvatn – tekið við Blautaver kl.21
Á leið okkar í náttstað renndum við inn að Dómadalsvatni þar sem við settum í sitthvort parið af urriðum í yngri kantinum. Af öllum ummerkjum að dæma, lífi og narti þá er ekki skortur á upprennandi boltum í vatninu og það verður spennandi að kíkja á þá að ári eða tveimur þegar þeir hafa bætt aðeins á sig. Einn urriði var tekin og kíkt inn í. Var sá pakkaður af skötuormi frá koki og aftur í rauf og greinilegt að nóg er af þessu urriðasælgæti í Dómadalnum. Þegar hitastigið féll skyndilega niður í 5°C rétt fyrir kl.23, var eins og skrúfað væri fyrir allt nart og tökur þannig að við pökkuðum saman og fórum inn í veiðihúsið okkar við Landmannahelli, settum miðstöðina á og bjuggumst í ból eftir síðbúinn kvöldverð.
Við Dómadalsvatn kl.23:00
Það var úr vöndu að ráða á laugardagsmorgun, hvert skyldi halda? Úr varð að við fórum í rannsóknarferð inn að Eskihlíðarvatni. Leiðin að vatninu var víst fær jeppum á 44“ dekkjum og því var það með varúð að við lögðum í þennan leiðangur á okkar borgar- og slyddu jepplingi. Hvað sem menn hafa um þessa ákveðnu tegund bifreiðar að segja, þá átti hann ekki í nokkrum vandræðum með brekkur, sneiðinga og lausan sand og inn að vatni komumst við án nokkurra vandræða. Eskihlíðarvatn er trúlega frægasta dæmi um ris og fall bleikjuvatns að Fjallabaki. Á sínum tíma var sleppt í það bleikju, fiskurinn óx og dafnaði með miklum myndarbrag í nokkur ár en svo tók við skeið offjölgunar, tilraun til grisjunar og að lokum hreinnar uppgjafar fyrir fjölda bleikjunnar. Fyrir nokkrum árum fórum við viðlíka rannsóknarferð inn að vatninu og þóttumst merkja að fiskurinn væri eitthvað að koma til. Þá gátum við meira að segja nýtt eihvern hluta fisksins í harðfisk, en í þetta skiptið var það aðeins 10% sem töldust hæf til slíks. Við tókum sem sagt 20 fiska upp úr vatninu á nokkrum stöðum og aðeins tveir þeirra urðu að flökum sem nýtast.
Eskihlíðarvatn, Löðmundur í baksýn
Eftir þessa vísindaferð okkar komum við rétt aðeins við í Löðmundarvatni og strengdum á línum á móti vindi undir bílastæðinu við Löðmund. Eftir ótilgreindan fjölda kasta og fluguskipti sem færðu öðru okkar það sem líst er sem ‚tikk, tikk, tikk nart‘ þá héldum við leið okkar áfram í vestur og kíktum á Herbjarnarfellsvatn. Eitthvað vorum við lúin eftir vindsperringinn undir Löðmundi og því nenntum við ekki að labba inn með vatninu og reyna fyrir okkur í norð-vestur horninu þar sem líklegast var að fiskur héldi sig undan austan stæðum vindinum. Að vísu sáum við aðeins til fiskjar undir bílastæðinu, en ítrekaðar tilraunir til að lokka hann til töku með ýmsum tegundum nobblera báru ekki árangur. Vel að merkja, það stendur óvenju hátt í Herbjarnarfellsvatni m.v. árstíma, ströndin við suðurbakka vatnsins er á eins metra dýpi og flæðir inn í skútana og hef ég ekki séð jafn hátt í vatninu áður.
Hellisskútarnir við Herbjarnarfellsvatn – mynd frá 2017
Lífið í Dómadalsvatni frá síðasta kvöldi freistaði okkar og því renndum við aftur að vatninu og tókum okkur stöðu við vesturbakkann á móti öldunni. Þar tók frúin ágætan urriða, en ég var helst í því að hrekkja ungviðið sem gerði sér ýmsa fæðu að góðu í öldurótinu við bakkann. Við enduðum daginn á að rölta undir hlíðina við austanvert vatnið, ég fékk eitt högg á mína flugu meðan frúin tók einn þokkalega stóran, en sérstakan í vextinum. Þetta einkennilega vaxtarlag skýrðist síðan þegar gert var að honum. Lengd fisksins hefði gefið til kynna að um 2,5 punda fisk væri að ræða, en hann var sérstaklega linur og mjósleginn. Fyrst datt mér einhver sýking í hug þegar ég flakaði hann, svo ljós var hann og rýr á holdið. Ekkert benti til að hann ætti við heilsubrest að ræða, hvorki sníkjudýr né æxli fundust í honum, raunar fannst ekkert í maga hans heldur, hvorki síli né skötuormur. Það var ekki fyrr en ég þuklaði kokið að skýringin fannst. Þvert í kokinu með nappa sem stungist hafði í gegn, sat steinn kyrfilega fastur og hafði greinilega verið þar nokkuð lengi og þannig komið í veg fyrir að fiskurinn gæti kyngt því sem hann át. Það var því sannkallað náðarhögg sem frúin veitti þessum fiski með rotaranum.
Eftir kvöldverð pökkuðum við veiðihúsinu okkar saman og lögðum af stað heim á leið. Það voru blendnar tilfinningar sem veltust um í kollinum á okkur á leiðinni og þær styttu ekkert þennan þriggja tíma akstur heim. Vonandi koma fiskifræðingar fram með skeleggar tillögur að aðgerðum í Frostastaðavatni því í næstu viku munu þeir væntanlega hnýta endahnútinn á rannsóknir á vatninu sem hófust í fyrra, unnendur Framvatna bíða þeirra og aðgerða spenntir.
Það eru rétt rúmar tvær vikur síðan við fórum í okkar árlegu Veiðivatnaferð en síðasta daginn í þeirri ferð vorum við sammála um að við værum einfaldlega ekki búinn að fá nóg af Vötnunum þetta árið og því stefndum við leynt og ljóst á að kíkja þangað aftur. Úr Hrauneyjum er aðeins um 1 klst. akstur upp í Veiðivötn og fyrst við vorum með allt við höndina; veiðigræjur, veiðihús og mat, þá var alveg tilvalið að slá á þráðinn upp í Veiðivötn og athuga hvort ekki væri pláss fyrir eitt fellihýsi og tvær stangir í vötnunum, fimmtudag og föstudag. Jú, það var sjálfsagt mál og þar með vorum við lögð af stað.
Á leið í Veiðivötn – Fossarnir í Vatnakvísl
Þar sem við vorum tímanlega á ferðinni höfðum við nægan tíma til að koma okkur fyrir undir hólnum gengt Ampahól og biðum fimmtudagsins í ofvæni. Að vísu var það einkennileg tilfinning að sjá yfir í Setur þar sem allt aðrir bílar stóðu fyrir utan heldur en við þekktum og annað fólk á ferðinni. Það var ekki laust við að það vantaði einhverja sex góða veiðifélaga í hópinn, við vorum þarna ein án stuðnings og félagsskapar sem við höfum átt að venjast síðustu ár.
Færanlega veiðihúsið okkar í Veiðivötnum
Þið sem í Veiðivötn hafa komið vita auðvitað að svæðið er ekki aðeins veiðisvæði, þarna er náttúrufegurð einstök og þegar maður vaknar til veðurblíðu eins og hún getur best orðið þá er ekkert sem dregur úr aðdáun manns á svæðinu, nema þá helst flugan. Þar sem ákveðin álög virðast loða við mig í Veiðivötnum sem tengjast vöðluskóm, skal það tekið skýrt fram að ég gleymdi þeim ekki heima í þetta skiptið. Aftur á móti gleymdi ég þeim við vagninn þennan morgun og varð því að skjótast til baka eftir þeim úr Hermannsvíkinni austanverðri þar sem veiðifélagi minn byrjaði daginn.
Hellavatn í morgunsárið
Þegar ég var loksins kominn í vöðlur og skó, þótti félaga mínum fullreynt í Hermannsvík þannig að við kíktum í Hellavatn þar sem fiskurinn vakti og át á sig gat af flugu / púpum sem hvorugu okkar tókst að keppa við. Næst kíktum við í Stóra Hraunvatnið en eins og nokkur skipti áður, náðum við ekki miklu sambandi við vatnið, þannig að við héldum til baka að Litlasjó og stoppuðum í Fyrstuvíkinni.
Fyrstavík um nón
Veðrið var gott um morguninn og batnaði bara þegar leið á daginn. Ekki skemmdi fyrir að um alla Fyrstuvík vakti fiskur í óræðu æti, velti sér og hafði greinilega ekkert annað fyrir stafni en fylla kviðinn. Stutta útgáfan hljómar einfaldlega þannig að við yfirgáfum víkina ekki fyrr en við hættumál, rétt fyrir kl. 23:00
Lengri útgáfan hljómar þannig að til að byrja með settum við í nokkra undirmálsfiska sem allir fengu líf, en þegar við færðum köstin örlítið lengra út á víkina komu stærri og stæðilegir fiskar, þetta á bilinu 2 til 4 pund og þeir voru ekki fáir.
Fyrstavík í síðdegissólinni
Hermann kom reglulega við hjá okkur og fékk fréttir af aflabrögðum og flugum sem gáfu; Olive Nobbler með gulum rassi, Svartur og gylltur Nobbler, Veiðivatnagullið, Svartur Nobbler með grænum rassi, sem sagt allar helstu Veiðivatnaflugur sem maður hafði tiltækar í vestinu. Svo voru það aðrar flugur sem ekki gáfu, þær tóku og stundum helst til hressilega. Auk þeirra fiska sem ég tók fékk ég óræðan fjölda af flugnabiti á víð og dreif um kroppinn og eflaust hefur það verið spaugilegt í meira lagi að sjá til mín, berjandi flugur frá mér þegar verst lét. Ég reyndi eins og mögulegt var að fela mig undir flugnanetinu, en mér finnst það bara svo pirrandi að ég laumast ítrekað til að taka það af mér og auðvitað verð ég þá umsvifalaust stunginn.
Á einhverjum tímapunkti, hvenær er mér ómögulegt að tilgreina því tímaskynið hverfur algjörlega á stað sem þessum, duttu tökur aðeins niður eins og gengur. Eftir stutta ládeyðu í aflabrögðum sem við nýttum fyrir kaffi og kleinur tóku fiskarnir aftur við sér þegar leið að kvöldi. Ég er ekki frá því að almennt hafi uppitökur og veltur væru heldur svifaseinni þennan síðari helming og þá helst á mörkum Fyrstuvíkur og Hrauns. Þar sem það var ekkert rosalega mikið að gerast hjá mér í víkinni færði ég mig út að Hrauni og fylgdist grannt með yfirborðinu. Jú, það var ekki um að villast, þarna var einhver að velta sér í sílinu. Þar sem Veiðivatnagullið var þegar undir var aðeins að velja hvar ég skildi setja fluguna niður; utan við byltuna eða austan við hana? Ef ég á að vera alveg hreinskilinn, þá man ég ekkert lengur hvar ég setti hana niður, en við fyrsta inndrátt var tekið í fluguna og henni var ekki sleppt fyrr en yfir lauk. Fiskurinn sem tók fór nokkuð víða með fluguna, tók t.d. næstum alla línuna út af hjólinu þar til fór að glitta í undirlínu, rauk til hægri og vinstri, út og þó helst suður. Eftir nokkrar rokur sýndi hann loksins öll sín 8 pund í loftinu með góðu stökki og töluverðu skvampi. Eftir þetta stökk tekur við annað óminni hjá mér, það næsta sem ég man eftir er að fyrir fótum mér liggur þessi glæsilega hrygna í sandinum sem ég tek upp og rölti með til baka að bílnum.
Við bættum síðan nokkrum vænum fiskum við vestast á Hrauninu áður en við pökkuðum saman, vigtuðum okkar 14 fiska og gerðum að, elduðum okkur mjög síðbúinn kvöldverð og lögðumst sæl og ánægð til svefns eftir daginn.
Fyrstavík eins og hún leggur sig
Meira að segja í 10 m/sek og rigningu eru Veiðivötn fallegur staður, en kannski ekkert sérstaklega veiðilegur. Þannig var nú veðrið meira og minna allan föstudaginn. Eins og oft áður reynir maður alltaf að veiða fiskana aftur sem veiðst hafa áður og því byrjuðum við í Fyrstuvíkinni. Eins veiðilegt og það var nú þarna í öldurótinu á móti 8 m/sek, þá urðum við lítið vör við fisk. Held raunar að það hafi aðeins verið nartað lauslega hjá öðru okkar einu sinni. Þegar suðaustanáttin náði spáðum 10 m/sek. tókum við að leita fyrir okkur um veiðistað með hentaði betur fluguveiði í roki.
Við höfðum fregnir af vænum fiskum úr Stóra Hraunvatni og þangað héldum við. Þegar við mættum á staðinn var þar nokkur fjöldi veiðimanna en enginn hafði komið sér fyrir á austanverðu rifinu við Augað þannig að þar settum við okkur niður. Ýmsar flugur reyndar og kastar fram af rifinu inn í Augað. Þegar svo nartað var í Svartan Nobbler með grænum rassi fór hann undir hjá okkur báðum og endaði með því að góður þriggja pundari náðist á land. Þar með er veiði dagsins talin, grín laust. Þrátt fyrir töluvert nart og lausatökur í Auganu, náðum við ekki fleiri fiskum á land og eftir að við prófuðum að veiða beggja vegna við eyðið á milli Augans og Jöklavíkur í smá tíma, héldum við til baka og kíktum á önnur vötn.
Það var einfaldlega ekkert sérstaklega veiðilegt í vötnunum það sem eftir lifði dags. Fámennt var á aðgerðarborðinu um kvöldið, en því fjölmennara í öllum skálum. Sem dæmi um rok og ölduhæð í suðurvötnunum, þá heyrði ég frá einum sem kroppaði nokkrar bleikjur upp úr Snjóöldunni að þar hefðu menn helst verið að halda í við spúninn, ekki hefði verið um eiginlega inndrátt að ræða því hann kom sjálfur á móti mönnum í öldunni, ef hann þá flaug ekki beinlínis í fangið á mönnum.
Svona getur það nú verið í Veiðivötnum, alltaf frábært en stundum ekki mikil veiði í veðrum. Það var nú reyndar ekkert til að kvarta yfir, veðrið á laugardaginn þegar við tókum okkur saman, en því miður lá leið okkar heim á ný og ekki um annað að ræða heldur en koma sér heim, flaka og koma 15 gómsætum urriðum í frystinn.
Ekki dugði landsfjórðungaferð okkar í síðustu viku til þess að svala veiðifýsninni nema í örfáa daga. Óbyggðirnar kölluðu svo sterkt á okkur í vikunni að við vorum hreint og beint að ærast hér á malbikinu, létum undan á þriðjudaginn og pökkuðum veiðidóti í færanlega veiðihúsið okkar og héldum af stað út úr bænum. Fyrsta stopp voru Hrauneyjar þar sem leitað var upplýsinga um ástand Sprengisandsleiðar, verð á veiðileyfi í Kvíslavatni og hvort ekki væri örugglega hægt að kaupa hálfan og hálfan dag.
Síðast þegar við fórum Sprengisandsleið komu ítrekað upp í huga mér orð eins veiðibloggara með meiru; þessi volaði vegur en að þessu sinni var vegurinn ekki svo volaður og við komumst með veiðihúsið okkar í heilu lagi inn að Kvíslavatni rétt fyrir kvöldmat. Við komum okkur fyrir gengt Þjófanesi, rétt norðan Svartáróss, settum saman stangir og stefndum inn að Svörtubotnum. Við höfðum verið vöruð við því í Hrauneyjum að þann daginn hefði verið seldur nokkur fjöldi veiðileyfa í Kvíslavatn, en ég átti satt best að segja ekki von á að annar hver merktur veiðistaður við vatnið væri setinn, en sú var raunin.
Kerlingarfjöll séð frá Kvíslavatni
Við eyddum lunganu úr kvöldinu á sama staða við Svörtubotna enda engin ástæða til að færa sig þegar fiskurinn hefur áhuga á því sem honum er boðið. Við félagarnir tókum sitt hvora tvo urriðana áður en við héldum til baka að fellihýsinu. Þar sem klukkan var ekki nema rétt um 22:00 og allir sem verið höfðu við Svartárós voru á bak og burt, þá ákváðum við að renna út á tánna og veiða skil Svartár og Kvíslavatns. Kvöldið lék hreint og beint við hvern sinn fingur og sólarlagið á bak við Hofsjökul smellti rauðleitum blæ á himinn.
Ómetanlegt KODAK moment á fjöllum
Kvöldinu lauk þannig að veiðifélagi minn setti í tvö prýðilega urriða í skolaða hlutanum á meðan ég rembdist eins og rjúpa við staur að ná þessum skemmtilega sem var að skvetta sér í tæra hlutanum, án árangurs.
Morguninn eftir fórum við alveg inn að botni í Svörtubotnum, þóttumst alveg vera með þetta þar sem vindurinn stóð inn víkina og að öllu gefnu þá hefði urriðinn átt að vera að rótast í ætinu þar. Annað kom nú á daginn og við enduðum á því að fara aftur á staðinn þar sem við höfðum verið kvöldið áður. Það sem hafist upp úr því krafsi voru fimm rígvænir urriðar hjá veiðifélaga mínum og þrjú hressileg flugnabit hjá mér.
Tilraun til sköturoms
Vel að merkja, allir urriðarnir sem við tókum voru smekkfullir af skötuormi en enginn þeirra leit við tilraunum mínum með flugu sem á að líkjast því kvikindi. Kannski þarf ég aðeins að spá betur í inndrætti o.s.frv. þegar ég prófa þá flugu næst. Hvað um það, eftir að við kláruðum síðari hálfan daginn okkar renndum við aftur niður í Hrauneyjar, fylltum á bílinn og héldum ferðalaginu okkar áfram ….