Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Hlíðarvatn, Hnappadal 31.júl.-2.ág.

    2. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ekki klikkar Hlíðarvatnið, þótt það hafi ekki verið neitt brjálæði.  Tókum heim með okkur ein 14 stk. á bilinu 1 1/2 – 2 pund.  Vatnið hefur minnkað enn meira frá því við vorum þar um miðjan júlí og mér sýnst að vanti c.a. 3 m í vatnið.  Ókostur: gróðurinn er að verða verulega til trafala.  Kostur: ekki þarf að leita lengi að dýpinu þar sem ‘þeir stóru’ leynast.  Vorum eins og venjulega í landi Heggsstaða og tókum alla fiskana innst í vatninu.  Prófuðum allt svæðið út að Álftatanga en gróðurinn var aðeins of mikill. Veiðarfæri: 6 stk. á Black Ghost, 3 stk. á Dentist, 4 stk. á svartan og gylltan spinner og 1 stk. á maðk.  Frúin stimplaði sig heldur betur inn í fluguveiðinni og tók 6 stk. á Black Ghost eins og ekkert væri á meðan ég þráaðist við með Dentist og einhverjar aðrar sem ekkert gáfu.

    Á meðan við drápum eins og við gátum, var yngri sonurinn á fullu að bjarga urriðaseyðum úr þornandi pollum og koma þeim í öruggt skjól í lækjarsprænunni.  Kannski átti strákurinn bara metið í ferðinni, því hann bjargaði á milli 20 – 30 stk.  Vonandi fer vatnsbúskapurinn á svæðinu eitthvað að rétta úr sér, það var í það minnsta rigning þegar við fórum heim.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hópið 23.- 25. júlí

    26. júlí 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Jómfrúarferð í Hópið í Húnavatnssýslu. Eftir nokkra leit og svaðilfarir komum við okkur fyrir rétt austan ósa Gljúfurár. Sagan segir að í vatninu sé staðbundinn stofn bleikju og urriða, ásamt sjógöngufiski og ‘laxa von’. Laxinn var mættur og beið óþolinmóður eftir að ganga upp í Gljúfurá sem var einstaklega vatnslítil.  Annar fiskur var ekki á staðnum, utan hornsíla sem týnd voru í flæðarmálinu.Laxinn var mjög tregur og leit lengi vel ekki við neinu, hvorki spún, maðki né flugu.  En á laugardaginn missti stóri bróðir einn sem stal af honum öngli og sökku með miklum látum eftir að hafa tekið hressilega.  Sjálfur missti ég síðan einn af spún þannig að fisklaus fórum við úr Hópinu eftir annars mjög góða helgi í sól og blíðu. Af hverju annar fiskur var ekki sjáanlegur, veit ég ekki.  Eina sem mér dettur í hug er að laxinn hafi hrakið annan fisk  af svæðinu með ofsafengnum stökkum og látum fyrir framan ós Gljúfurár og meðfram bakkanum til beggja átta.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Kleifarvatn 17.júlí

    18. júlí 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Jú, verð að setja svona mynd á söguna því ég fékk einn mjög vænann urriða og missti annan.  Stóri bróðir fékk einn líka.  Betri helmingurinn kom heim með öngulinn í rassinum.

    Get ekki orða bundist yfir umgengni manna við vatnið.  Maður er orðinn nokkuð vanur því að flækjast í girnisafgöngum og ýmsu drasli sem menn skilja eftir sig.  En, að festa í plastpoka í vatninu með haus og úldnum innyflum er svolítið of mikið.  Hvað í andsk….. gengur mönnum eiginlega til?  Er það virkilega til of mikils mælst að menn takið með sér og komi í sorpílát því sem menn ekki éta eða vilja hirða?  Fyrir utan það að henda slógi aftur í vatnið viðheldur aðeins ormi og óværu í fiskinum.  Ef menn geta ekki hugsað sér að taka slóg með sér, þá er skárri kostur að urða það í móanum þannig að vargurinn komist ekki í það og beri orm og egg aftur í vatnið.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlíðarvatn, Hnappadal 14.-15.júlí

    18. júlí 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Brjáluð veiði báða dagana.  Vorum tvö saman (eins og venjulega) og tókum 51 stk. sem voru á bilinu 1/2 – 1 1/2 pund.  Fengum leyfi hjá Guðmundi á Heggstöðum og vorum mest í víkinni vestan Sandfells.  Næstum allir komu á land með spún, helst svartur Toby eða svartur og gylltur spinner.  Heyrðum skýringar á skiptingu tegunda í vatninu frá staðkunnugum; urriðinn heldur sig lang mest vestan Sandfells að Álftatanga, en (stór) bleikjan heldur sig mest í dýpinu við Álftatanga og vestur í hraunið fyrir landi Hraunholts.  Eitthvað minnsta vatn í vatninu sem við höfum séð, vantaði minnst 2,5 m upp á vatnshæðina.

    Á leiðinni heim fórum við norður Heydal og í Haukadalsvatnið.  Eftir smá skoðunartúr meðfram vatninu fundum við okkur stað fyrir fellihýsið og tjölduðum í þeirri von að strekkingsvind sem var á staðnum myndi lægja með kvöldinu.  En það varð ekki.  Þvert á móti, þannig að við pökkuðum saman og fórum heim með smá krókum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Langavatn 9.-11. júlí

    12. júlí 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ágætis ferð í Langavatn í Borgarfirði.  Tókum heim með okkur 11 þokkalegar bleikjur eftir tvo daga, ef ég tel sunnudag ekki með vegna rosalegrar rigningar (hagl) rétt fyrir síðdegisveiðina sem sendi væntanlega allan fisk niður í dýpstu dýpi það sem eftir lifði dags. Frúin prófaði fluguna, en mest veiddum við á spún (svartur Toby) og eitthvað á maðk, en ‘Vinstri græn‘ og Dentist gáfu líka. Veiddum í sandfjörunni frá ósi Beilár og til norðurs. Prófuðum líka undir Réttarmúlanum og undir hrauninu að sunnan, en hvorugt gaf.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veltikastið – framlengt

    9. júlí 2010
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Grundvallaratriði – veltikastið framlengt eins og The New Fly Fisher kynnir það.

    Fleiri myndbrot frá The New Fly Fisher er að finna á YouTube

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 342 343 344 345 346 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar