Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Bábilja – Háskólapróf

    10. apríl 2011
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Þó til séu einn og einn sem takið bakteríuna mjög alvarlega, þá þarftu ekki að sökkva þér niður í lífríki hvers einasta vatns til að velja ‚réttu‘ fluguna. Til eru nokkrir listar yfir ‚öruggar‘ flugur sem sjaldan bregðast, eina vandamálið er að finna þann lista sem virkar. Sjálfur á ég mér mínar uppáhalds flugur, konan mín sínar (sem er raunar bara ein, Black Ghost) en þegar öllu er á botninn hvolft og manni tekst að horfa framhjá mismunandi heitum, þá eru þessir listar næstum allir eins. Ekki hengja þig í hvort fluga sem er búin til úr koparvír heiti Koparmoli, Copper John eða Rafmagnsflugan, þær eru allar mjög keimlíkar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Bábilja – Langt í veiði

    8. apríl 2011
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Ef við erum að tala um vegalengdir, þá er næsta veiðivatn aldrei langt undan hér á Íslandi. Hringinn í kringum höfuðborgina iðar allt af lífi í vötnum í innan við 50km radíus, það sama má segja um alla aðra staði á Íslandi. Ef við erum aftur á móti að tala um að það er svo langt í veiði í dögum talið, þá er svarið já.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Bábilja – Dýr veiðileyfi

    6. apríl 2011
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Enn og aftur, nei. Ef við erum ekki að tala um primetime í einhverri L-á með veiðihúsi og öllu tilheyrandi, þá getur þú alveg komist í góða veiði fyrir lítinn aur. Vatnaveiðin er mitt sport, pakka nóg af mat í fellihýsið, renni út úr bænum á föstudegi og sést svo ekki heima fyrr en aðfararnótt mánudags. Ef þú sérð fram á að fara í 4-5 vötn á sumri, þá getur alveg borgað sig að festa kaup á Veiðikortinu. Sjálfur nota ég það töluvert og bæti svo kannski einu og einu vatni við sem ég borga aukalega. Dagurinn í þokkalegu vatni getur verið á bilinu 1.000 – 2.000 og ekki verra að þekkja einn eða fleiri landeigendur (bændur).

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Bábilja – Dýrar græjur

    4. apríl 2011
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Einfalt, nei. Fluguveiðar, eins og allt annað sport, geta verið kostnaðarsamar en þú stjórnar því mikið til sjálfur. Auðvitað getur þú farið ‚overboard‘ og keypt þér allt það besta og dýrasta, en þú getur líka keypt þér skynsamlegt sett til að byrja með; 8-9 feta stöng með línu 5-7, tvo mismunandi tauma, alhliða taumaenda  (2X) og box með 20-30 flugum. Hafðu bara eitt í huga, ekki kaupa bara einhverja stöng, veldu merki sem þú hefur í það minnsta heyrt minnst á eða góður vinur þinn mælir með.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vífó, 3.apríl

    3. apríl 2011
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Aðeins meiri kastæfingar um og eftir hádegi í Vífilsstaðarvatni. Nokkrir í svipuðum erindagjörðum þegar mig bar að, en þeim fækkaði fljótlega. Vorum aðeins tveir eftir um kl.14 en þá dreif að nokkurn mannskap. Varð svo sem var við fisk en tökurnar voru svo naumar að ekkert hékk á. Prófaði helst þyngdar púpur; Pólska Pheasant Tail með kúluhaus, Red Tag og svo svartan og rauðan Buzzer. Jæja, 46. aldursárið byrjaði alveg eins og því 45. lauk, með öngul í rassi.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn, 2.apríl

    2. apríl 2011
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Létt kastæfing við Meðalfellsvatnið í dag í c.a. 2 klst. Vatnið orðið íslaust að mestu, aðeins smá ræma við Hljóðasteina er þakin íshröngli ásamt Vatnsvíkinni. Sáum töluvert líf í Hjarðarholtsvík og út af Víkurtöngunum, en því miður var fiskurinn ekki í neinu stuði.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 321 322 323 324 325 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar