Nýjar aflatölur úr Framvötnum, vötnunum sunnar Tungnaár voru að koma á heimasíðu Veiðivatna. Veiðitölurnar byggja á 55 skýrslum sem skilað hafði verið inn til 30. ágúst. Sem fyrr trónir Frostastaðavatn á toppnum með 966 fiska og Ljótipollur í öðru sæti með 192 stk. Það vekur athygli að í Sauðleysuvatni er þyngsti fiskur skráður 2,8 pund sem eru virkilega jákvæðar fréttir þar sem vatnið hefur verið þekkt fyrir allt annað en væna fiska á undanförnum árum. Svipaða sögu er að segja af Hrafnabjargavatni með 1,3 pund þyngst, en þar hafa að vísu aðeins verið veiddir 7 fiskar það sem af er árs. Bæði þessi vötn hafa átt undir högg að sækja sökum ofsetningar bleikju á undanförnum árum, spurning hvort þar sé að komast upp stofn ránbleikju, en eflaust er of snemmt að fjölyrða eitthvað um það.

Eins og sjá má vantar ekki nema eina góða dagsstöng upp á að Frostastaðavatni fari yfir 1.000 fiska. Eflaust lumar einhver veiðimaður á óskilaðri veiðiskýrslu sem gæti togað tölurnar yfir þúsundið, nú og svo er sumarið alls ekki búið og margir góðir dagar eftir að Fjallabaki. Ef einhver á í fórum sínum skýrslu sem gleymdist að skila, þá geri ég ekki ráð fyrir öðru en henni megi skila með tölvupósti á info(hjá)landmannahellir.is eða hringja tölurnar inn í síma 893-8407









Senda ábendingu