Enn heldur kynning sýnenda á Veiðisýningunni áfram, hér koma næstu 6 sýnendur og svo auðvitað ein klippa af RISE í lokinn.
JOAKIM‘S fluguveiðivörur verða á Veiðisýningunni og kynna eigin hönnun og vöruúrval sitt.
Laugardalsá / Fossá verða á sýningunni og hjá þeim geta menn fræðst allt um árnar.
Laxabakki ehf er leigutaki Víðidalsár og Hópsins í Húnvatnssýslu. Fulltrúi þeirra verður á sýningunni og kynnir veiðisvæðin sem þeir ráða yfir.
Mekka Wines & Spirits víngæðingarnir endurtaka væntanlega leikinn frá því í fyrra og verða með vinsælli sýnendunum.
Norðlingafljót kemur til með að eiga sína fulltrúa á sýningunni sem gestum gest kostur á að spjalla við á fimmtudaginn.
Skúli Kristinsson sýnir flugur og fluguhnýtingar. E.t.v. finna áhangendur Rangánna eitthvað við sitt hæfi hjá Skúla, m.a. Pool og Bismo.
Þessi augnablik á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíðinni verða örugglega einhverjum minnisstæð. Ætli þetta sé ekki sú mynd sem ég bíð spenntastur eftir.









Senda ábendingu