Ég átti leið framhjá Hlíðarvatni í Selvogi í gær og það gladdi mitt litla hjarta að sjá að veiðimenn voru í öllum veiðihúsum við vatnið. Að vísu stóð ekki sérlega vel á þegar ég renndi framhjá, því nokkuð hressilegir skúraleiðingar gengu yfir eða eins og ferðafélagi minn sagði; Það er eiginlega alveg mígandi blíða hérna. En veiðimenn létu nokkra rigningardropa ekkert á sig fá. Einn var á veiðum undan húsi Selfyssinga, einn að gera sig kláran hjá Hafnfirðingum, einn í Botnavíkinni, væntanlega úr húsi Árbliks, einn að gera sig kláran úr húsi Ármanna og töluverður fjöldi við hús Stakkavíkur.
Það er ánægjulegt að veiðimenn blási lífi í gamlar glæður og endurveki ástfóstur við þetta glæsilega veiðivatn, aukin ástundun er jú öruggasta leiðin til að hífa veiðitölurnar upp.










Senda ábendingu