Dagatalið segir okkur að nú séu 10 dagar þar til fyrstu vötnin opni þetta árið, þ.e. þau sem ekki hafa verið opin í allan vetur. Af því tilefni tók ég smá rúnt um nágrennið í morgun og tók stöðuna á þeim sem hendi eru næst.

Eins og leið mín lá, kom ég fyrst að Helluvatni sem enn er hulið ís að helmingi og allt í lagi með það því enn eru ríflega 30 dagar í að það opni, sumardaginn fyrsta.

Frá Helluvatni lá svo leið að Elliðavatni og við brúnna á milli vatna lá þessi gaur og lét ekkert trufla sig í morgunsárið. Ég gerði mig meira að segja sekan um að smella smá steini í vatnið í þeirri von að hann færði sig aðeins nær farsímalinsunni, en minn létt ekkert hagga sér þarna í blíðunni.

Ekki þori ég að segja til um hve stór hluti Elliðavatnsins er enn undir ís, en hann er töluverður, ef undan er skilið Vatnsvatn við Ellivatnsbæinn. Mér sýndist stærstur hluti Vatnsendavatns enn vera undir ís.
Og þá lá leið að Vífó og merkilegt nokk, það er enn að mestu hulið ís og ef fram fer sem horfið verður ansi þétt setinn bekkurinn við þann lita part vatnsins sem er ís laus. En, það þarf nú kannski ekki nema nokkra góða daga til að þynna í ísnum svo það verður vel hæft til kastæfinga bráðlega.

Það er smá læna komin undan ís frá Vatnsbotni og út með helmingi suðurbakkanns, kannski pláss fyrir 10-15 ef vel fer á með veiðimönnum, eins og gerist nú reyndar oftast.
Af öðrum vötnum í nágrenni Reykjavíkur er mest lítið að frétta. Vefmyndavél að Bæ í Kjós sýnir okkur Meðalfellsvatnið í vetrarbúningi (sjá hér) og svipaða sögu er að segja af Þingvallavatni, enda 30 dagar í að það opni.
Ummæli
22.03.2014 – Siggi Kr.: Þetta lítur nú bara alls ekki illa út. Langtímaspáin hjá norsku veðurfræðingunum er öll fyrir ofan frostmarkið þannig að Vífó verður örugglega klárt að taka á móti veiðimönnum 1. apríl. Allavega ætla ég að fara… (ef veður verður hagstætt).
Svar: Já, maður lætur sjá sig einhvers staðar á Hátíðisdegi Veiðimanna og annara prakkara.









Senda ábendingu