Og þá gefst öllum kostur á að reyna fyrir sér í Hlíðarvatni í Selvogi. Hvernig væri nú að koma sér snemma heim á menningarnótt, vakna hress og renna austur í Selvog og taka þátt í Hlíðarvatnsdeginum?
Eins og undanfarin ár bjóða veiðirétthafar gestum og gangandi að reyna fyrir sér í vatninu frá morgni til kvölds. Það skemmir væntanlega ekki að undanfarið hafa nokkrar vænar bleikjur veiðst í Selvoginum en í ljósi þeirra fiska er ef til vill ekki út vegi að geta þess að það er einfalt mál að sleppa fiski veiddum á flugu og það er einstaklega viðeigandi þegar hryggningarfiskur hleypur á snærið.
Viltu lesa þér til um Hlíðarvatn í Selvogi? Smelltu þá hér og lestu prýðilega umfjöllum Ármanna um vatnið eða náðu þér í Hlíðarvatnsbækling veiðirétthafanna hérna.










Senda ábendingu