Miðað við höfðatölu þá eigum við Íslendingar trúlega flesta vottaða FFF kennara í heiminum og nú hafa þeir allir tekið höndum saman og boða til kastkeppni á morgun, laugardaginn 1.júní kl.11 á bak við Skautahöllina í Laugardal. Væri nú ekki tilvalið fyrir þá sem eru á ferðinni í bænum að taka þátt.
Þeir Börkur og Hilmar verða með allar græjur á staðnum og öllum sem geta kastað með flugustöng er boðið. Ekkert þátttökugjald, bara mæta í regngallanum og spreyta sig í lengdarköstum, markhittni og í gegnum gjörð. Ekki skemmir fyrir að það eru flottir vinningar í boði frá Veiðivon, Veiðihorninu, Veiðiflugum, Útilíf og Vesturröst. Meira að segja síðasta sætið fær vinning.









Senda ábendingu