Flýtileiðir

Alltaf eitthvað

fos_updateÞað er alltaf eitthvað að gerast. Nú eru t.d. flest desember/áramóta tölublöðin af veftímaritunum að koma út og ég reyni að fylgjast með þeim eins og ég get og uppfæri þau hér á síðunni.

Margir bíða spenntir eftir rafrænni útgáfu jólabókarinna í ár; bæklingi Veiðikortsins, en þangað til hann verður tilbúinn er um að gera að tryggja sér kortið sjálft hérna og eiga þá von á bókinni á pappír inn um lúguna fljótlega.

Stöku sinnum leiðrétti ég eða bæti við nýjum atriðum í eldri greinar. T.d. hrasaði ég um daginn yfir ágætis hnýtingarmyndband fyrir Black Zulu og bætti því við greinina um þá ágætis flugu.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *