Flýtileiðir

Tvær á náttborðinu

Smelltu fyrir stærri mynd

Pakkinn frá Amazon kom í gær!  Tvær áhugaverðar bækur með sitt hvorum áherslunum.

The  Little Red Book of Fly Fishing eftir þá félaga Kirk Deeter og Charlie Meyers er einfaldlega komin á stall bestu veiðibóka sem skrifaðar hafa verið. Skemmtileg framsetning á 250 gullkornum fyrir fluguveiði, verður fastur ferðafélagi minn í veiðinni.

Fly Tying with Common Household Materials eftir Jay „Fishy“ Fullum er kannski ekki alveg eins áhugaverð, en þó. Nokkrar skemmtilegar hugmyndir að hnýtingarefni sem finnast víða, átti kannski von á aðeins meiri frumlegheitum. Góð samt.

2 responses to “Tvær á náttborðinu”

  1. G. Hjalmar Avatar
    G. Hjalmar

    Þú hefur ekki lesið Íslenskar veiðiár eftir R.N. Stewart? Eg mæli með henni!

    Líkar við

  2. Kristján Avatar

    Hef ekki lesið hana í heild sinni, en af því sem ég hef komist í (úrdrættir og kynningar) er hún örugglega holl lesning öllum veiðimönnum á Íslandi, sérstaklega þeir kaflar sem lúta að gildis- og verðmati veiðimanna eins og það kemur hershöfðingjanum fyrir sjónir. Glöggt er gests augað.

    kv.Kristján

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *