Það var ein lítil 1/2 punda bleikja sem forðaði því að hér yrði öngull í rassi enn eitt skiptið. Af okkur fjórum sem börðum Langavatn frá morgni til kvölds í strekkings vindi og úrkomu á köflum, var ég sá eini sem einhvern fisk fékk. Prófuðum undir Réttarmúlanum alveg frá Beilárvöllum og út fyrir víkina undir sæluhúsinu en ekkert gekk. Ekki litið við maðk, spún né flugum. Upp úr hádegi rölti ég Beilárvellina inn að Klifi og þar varð ég loksins var við fisk beint á móti vindi. Reyndum síðan aftur rétt fyrir ljósaskiptin undir Klifi, vel á móti vindi ef ske kynni að bleikjan væri í æti í öldurótinu, en ekkert gekk. Kannski er fiskurinn farinn inn að Langavatnsárós í hryggningu? Finnst það samt full snemmt svona upp úr miðjum ágúst.
-
Langavatn 21.ág.
Höfundur:
-
Whip í höndunum – Skýringarmynd
Sjálfur nota ég ekki nein tól við að hnýta endahnútinn á flugurnar mínar. Til gamans setti ég saman fáeinar skýringarmyndir af því hvernig ég set endahnútinn í höndunum.
Það er nokkuð misjafnt hvort menn vefja alltaf réttsælis um öngulinn eða velta lykkjunni á milli vafninga. Báðar aðferðirnar mynda í raun sama hnútinn að lokum.

Smellið fyrir stærri mynd Höfundur:
-
Úlfljótsvatn 14.ág.
Enn og aftur er það öngull í rassi. Fikruðum okkur niður slóðann að Borgarvík og eyddum 4 klst. í mjög fallegu veðri, súld / þoka en afskaplega stillt og hlýtt. Í það minnsta inni í víkinni. Í sem skemmstu máli urðum við ekki vör, utan þess að konan sá einn ‘lítinn’ eltast aðeins við fluguna sem hún var að baða í það skiptið. Nokkuð var um fólk sem naut veðursins á þessum slóðum, en ég veit ekkert um hvernig þeim gekk. Það gengur bara betur næst.Höfundur:
-
Vinsælustu flugurnar
Ég var að leika mér aðeins með þekktan lista yfir veiðistaði og fengsælar flugur sem hægt er að kaup á flugur.is Í þessum lista sem Sigurður Pálsson tók saman eru tilgreindir 200 veiðistaðir og þær flugur sem taldar eru fengsælastar á hverjum stað. Auðvitað er þessi listi aðeins ætlaður til leiðbeiningar um fluguval á hverjum stað, en það getur líka verið gaman að skoða hann út frá öðru sjónarhorni.Oftast nefndu flugurnar eru:
- Dentist, 47 sinnum
- Peter Ross, 46 sinnum
- Watson’s Fancy, 41 sinnum
- Svört Frances, 39 sinnum
- Teal and Black, 38 sinnum
- Black Gnat, 37 sinnum
- Black Ghost, 30 sinnum
- Alder, 28 sinnum
- – 10. Blue Charm og Rauð Frances, 27 sinnum
Samtals voru nefndar 399 flugur í þessum lista, misjafnlega margar þeirra fyrir hvern veiðistað. Miðað við nöfnin í listanum er greinilega eitthvað um liðið frá því hann var tekin saman eða endurskoðaður, en góður er hann samt.
Höfundur:
-
Svínadalurinn 6.-7.ág.
Jamm, hér er öngull í rassi. Bæði hjá mér og frúnni. Veðrið var ekkert sérstakt á föstudaginn, rok og rigning og við mættum frekar seint á tjaldstæðið á Þórisstöðum. Prófuðum Glammastaðavatn (Þórisstaðavatn) aðeins um kvöldið en ekkert gekk.Renndum inn að Eyrarvatni á laugardaginn í þokkalegasta veðri og háðum hetjulega baráttu við mjög vaxandi gróður í vatninu. Í stuttu máli; gróðurinn hafði betur. Annað sem vakti athygli mína var fjölskrúðugt líf
vaðfugla við vatnið sbr. ágætis grein Engilberts Jensen um Vífilstaðarvatn sem finna má hér. Jú, jú, ég á líka vöðlur og nota þær mikið, en ég get svo svarið það að ég göslast ekki tugi metra út í vatnið með látum og gusugangi, til þess eins að geta komið færinu fyrir stóru fiskana úti. Ég hafði það á tilfinningunni að á staðinn væru mættir einn og einn kúreki í vöðlum, vopnaðir ógnvekjandi beituhlunkum til þess að ná einhverjum af þessum löxum sem sluppu framhjá veiðimönnunum í Laxá og komust alla leið upp í vötnin í Svínadalnum. Sagan segir að einhver hafi náð 14 löxum í Eyrarvatni nú fyrir skemmstu. Kannski var það bara einn af þeim sem dóluðu fram og til baka á bátunum sínum með spúnadræsuna í eftirdragi?Höfundur:
-
Frúar-flugur
Það réðst nokkuð í síðustu veiðiferð, hvernig kvöldunum verður varið hjá mér næstu dagana. Nú er
unnið hörðum höndum að því að fylla á fluguboxið hjá frúnni. Black Ghost í nokkrum útfærslum og stærðum og svo var hún eitthvað að tala um flotta marfló sem hún sá á flugur.is, og svo einhver önnur sem var ‘rosalega flott’, auðvitað Peacock og svo…..Mér tókst nú samt að lauma þremur Dentist í boxið hennar, það verður jú ekki alltaf veður fyrir Black Ghost.
Áhuginn er orðinn svo mikill að þegar ég leit yfir á hennar vallarhelming í gærkvöldi blöstu við mér tvö uppglennt, æðisgengin augu og Veiðiflugur Íslands í öllu sínu veldi. ‘Rosalega eru til margar gerðir af flugum, góða nótt’, og svo var hún lögst á hliðina og dreymdi bolta bleikjur og spriklandi urriða, væntanlega á Black Ghost. Hverju er ég eiginlega lentur í?
Höfundur:

