Mér er bara alveg sama þótt þessi mynd sé við greinina (öngull í rassi) því þessi ferð okkar vinnufélaganna austur í Breiðdal var alveg frábær. Fyrst af öllu, lipurð starfsmanna Veiðiþjónustunnar Strengja, veðrið lék við okkur allan daginn og umhverfið alveg einstakt. Við félagarnir áttum þrjár stangir á silungasvæðinu á laugardag. Vorum nokkuð tímanlega á ferðinni á föstudagskvöldið þannig að við renndum niður að veiðihúsi að leita frétta af veiði. Í stuttu máli, fáar sögur af silungasvæðinu sem hafði beinlínis farið hamförum vegna vatnavaxta síðustu daga. Útlitið var ekki gott… en eftir eitt stutt símtal við Þröst í Stengjum var okkur boðið að taka efstu svæðin í Suður- og Norðudal Breiðdals í stað þess að eyða öllum laugardeginum í að skanna neðstu svæðin í mjög miklu vatni. Hefði ég verið með sardínudós meðferðis hefði ég væntanlega náð að fylla hana og hefði félagi minn átt ódeigan Toby hefði hann væntanlega náð einum mjög vænum laxi rétt fyrir ofan Hamarsflöt (það sem sagt gaf sig þríkrækja á ‘gamla góða’ spúninum hans). Þótt ég hafi minna en ekkert vit á laxveiðiám, þá þori ég svo sannanlega að mæla með Breiðdalsá þó ekki væri nema silungasvæðinu að vori eða snemm sumars. Stórkostleg náttúra, fallegt árstæði og frábær þjónusta hjá Strengjum. Svo skemmir ekki heldur að ég náði að sjúga í mig alls konar vitneskju um fluguveiði í ám af félögum mínum og öðrum í veiðihúsinu.
-
Breiðdalsá 11.sept.
Höfundur:
-
Hlíðarvatn, Hnappadal 5.sept.
Rjómablíða, létt vestan og suð-vestan átt og vatnið upp á sitt fegursta. Vorum mætt í vatnið kl.10 og fljótlega fóru fyrstu fiskarnir að týnast á land. Fastir liðir eins og venjulega; enn hefur lækkað í vatninu. Nú er ég hættur að þora að segja til um hversu mikið vantar í vatnið. Ef við fáum enn einn snjóléttann vetur, þá lítur næsta sumar ekki vel út. Við hjónin voru mjög einbeitt og héldum okkur við fluguna allan daginn, hún með Black Ghost (10 fiskar) en ég með ýmsar aðrar; Vinstri græn, Bleik og blá, Dentist, Blue Charm og Þingeyingur auk Black Ghost (8 fiskar) þannig að samtals tókum við 18 væna fiska fram til kl.21:00 Vatnið hefur því gefið okkur 83 fiska í sumar. Ferðafélagar okkar tóku eitthvað minna á maðk.Höfundur:
-
Þingvallavatn, 28.ág.
Stangveiði snýst um að njóta náttúrunnar og góðs félagsskapar. Það var einmitt það sem við hjónin gerðum í dag, skruppum á Þingvöll og æfðum nokkur fluguköst í blíðunni undir Arnarfelli, með heitt á brúsa í frábæru veðri. Og við vorum ekki þau einu sem fórum fisklaus heim, veiðiverðir Þjóðgarðsins tjáðu okkur að það hefði ekki komið branda upp úr vatninu í dag. Sjálf heyrðum við í þremur sem ekki urðu einu sinni varir, sáu þó fisk en hann tók ekkert.Höfundur:
-
Langavatn 21.ág.
Það var ein lítil 1/2 punda bleikja sem forðaði því að hér yrði öngull í rassi enn eitt skiptið. Af okkur fjórum sem börðum Langavatn frá morgni til kvölds í strekkings vindi og úrkomu á köflum, var ég sá eini sem einhvern fisk fékk. Prófuðum undir Réttarmúlanum alveg frá Beilárvöllum og út fyrir víkina undir sæluhúsinu en ekkert gekk. Ekki litið við maðk, spún né flugum. Upp úr hádegi rölti ég Beilárvellina inn að Klifi og þar varð ég loksins var við fisk beint á móti vindi. Reyndum síðan aftur rétt fyrir ljósaskiptin undir Klifi, vel á móti vindi ef ske kynni að bleikjan væri í æti í öldurótinu, en ekkert gekk. Kannski er fiskurinn farinn inn að Langavatnsárós í hryggningu? Finnst það samt full snemmt svona upp úr miðjum ágúst.Höfundur:

