Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Að loknum Febrúarflugum

    1. mars 2026
    Febrúarflugur

    Upp

    Forsíða

    Að loknum Febrúarflugum 2026 er mér efst í huga þakklæti til þess 151 hnýtara, þar af 15 nýrra meðlima, sem sýndu okkur 1.233 flugur í viðburðinum að þessu sinni. Enn og aftur, hverjum datt sú vitleysa í hug um árið að fluguhnýtingar væru deyjandi á Íslandi?

    Aldrei áður hafa jafn margir fylgst með Febrúarflugum eins og í ár. Meðlimir hópsins eru orðnir 2.179 og þeir standa á bak við kvartmilljón flettingar í mánuðinum þannig að manni liggur við að spyrja; Hvað gerði allt þetta fólk annað í febrúar en skoða flugur?

    Tölur segja okkur þó aldrei söguna af því hve margir komu saman, hingað og þangað í mánuðinum og nutu skemmtilegra stunda við fluguhnýtingar. Hópar, smáir sem stórir hittust, formlega og óformlega, leynt og ljóst í mánuðinum og áttu gæðastundir við fluguhnýtingar og spjall um stangveiði. Ég færi mörgum slíkum hópum þakkir fyrir að leyfa mér að vera með þetta árið, svo mörgum raunar að mér gafst ekki færi á að taka þátt í öllu sem stóð til boða.

    Fjölgun nýliða í Febrúarflugum er sérstakt ánægjuefni í mínum huga, hún er til marks um heilbrigða endurnýjun meðal hnýtara, jafnvel fjölgun.  En, það verður bara að segjast að þetta árið voru margir þeirra svolítið einir úti í horni. Það er í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt, þetta er gott einsmanns áhugamál, en ekki eru allir fyrir einveruna endalaust. Í ár varð ég var við mikinn áhuga nýliða á að hitta aðra hnýtara og var margspurður um það hvort FOS stæði fyrir hnýtingarkennslu eða samkomum utan Febrúarflugna. Stutta svarið er einfaldlega; Nei, það eru aðrir betur til þess fallnir heldur en undirritaður og gefa sig meira að segja út fyrir það sérstaklega. Vandamálið er einfaldlega að þeir sem hafa eitthvað að bjóða, eru ekki nægjanlega sýnilegir yngri hnýturum og virðast treysta á að orðið á götunni berist ungu fólki þannig að það viti hvert það geti leitað. Orðið á götunni hefur fyrir löngu færst inn á samfélagsmiðla, ef það sést eða heyrist ekki þar, þá nær það ekki eyrum þeirra sem leita.

    Einn mánuð á ári eru Febrúarflugur suðupottur fluguhnýtinga, nútíma orðið á götunni sem heyrist 250.000 sinnum og þetta vita stöku félög, klúbbar og vildarvinir hnýtara og hafa því tekið þátt í og stutt við átakið, verið sýnilegir. Kærar þakkir, þið sem hafið lagt til kryddið í pottinn á undanförnum árum. Eitt er víst, súpan smakkaðist einstaklega góð þetta árið.

    Lokatölur 2026: 1233 flugur frá 151 hnýtara

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 937 þakkir

    24. febrúar 2026
    Febrúarflugur

    Upp

    Forsíða

    Nú, þegar sígur að lokum Febrúarflugna þetta árið, þá fögnum við yfir 1.000 kommentum og yfir 22.000 lækum, broskörlum og ástarjátningum til þeirra 937 flugna sem 132 hnýtarar hafa sett inn á hópinn Febrúarflugur. Þau eru alltaf jafn skemmtileg morgunverkin; hella sér upp á kaffibolla, setjast niður við tölvuna og skoða allar þær flugur sem hafa komið inn síðasta sólarhringinn. Takk fyrir ykkar framlag til að vakna spenntur, alla morgna í febrúar.

    Staðan 24. febrúar kl. 10:00 – 937 flugur

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Teppahreinsarinn

    2. júní 2025
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í gegnum tíðina hafa lesendur FOS verið duglegir að skjóta fyrirspurnum og beiðnum um ákveðið efni á undirritaðann sem reynt hefur verið að verða við. Í skilaboðum hefur tvær flugur borið nokkuð oft á góma og hér verður, þó seint sé, orðið við uppskrift að annarri þeirra; Teppahreinsarinn eftir Örn Hjálmarsson.

    Smelltu hér eða á myndina að neðan til að skoða uppskriftina að flugunni eins og Örn lét FOS í té ásamt eintökum flugunnar til myndatöku.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Má bjóða þér Rauð-Vín?

    30. maí 2025
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Já, þetta er ljómandi gott rauðvín og hæfir öllum aldurshópum silungsveiðimanna. Þó silungsveiðin sé komin vel af stað í þessu ljómandi góða árferði sem verið hefur síðustu vikur og vel flestir silungsveiðimenn búnir að fylla í boxin sín, þá má alltaf bæta í þau. Hér er á ferðinni fluga sem vakti töluverða athygli í Febrúarflugum 2025 og hefur reynst vel í urriða og bleikju, bæði staðbundnum og göngufiski.

    Sökum mikillar eftirspurnar hefur flugunni Rauð-Vín verið bætt inn á FOS og það þótti tilvalið að fá nokkur eintök frá höfundi flugunnar, Jóhanni Ólafi Björnssyni til að sitja fyrir á mynd fyrir FOS. Þú getur smellt hér eða á myndina að neðan til að skoða uppskriftina að þessari flugu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Lokaspretturinn hafinn

    27. febrúar 2025
    Febrúarflugur

    Upp

    Forsíða

    Lokasprettur Febrúarflugna er hafinn og eftir því sem næst verður komist, þá verða það 138 hnýtarar sem koma hnífjafnir í mark þetta árið með um 1.200 flugur (þegar tveir dagar eru raunar eftir) og yfir 1.800 fylgjendur Febrúarflugna tryllast af fögnuði á bekknum.

    Í kvöld, 27. febrúar verða tveir mjög áhugaverðir viðburðir í boði fyrir hnýtara og áhugafólk um flugur. Á Microbar í Kópavogi verður hnýtingakvöld á vegum 3 á stöng kl.18:00 þar sem nokkrir landsþekktir hnýtarar ætla að smella í flugur með gestum og hjá Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar verður Bjartur Ari Hansson á fyrsta hnýtingakvöldi vetrarins ásamt góðum gestum. Ef einhver á ekki heimangengt í kvöld, þá er óþarfi að örvænta því SVH mun vera með hnýtingakvöld annað hvert fimmtudagskvöld til vors og þangað eru alltaf allir velkomnir.

    Undirtektir viðburða í febrúar hafa verið með eindæmum góðar, svo mjög að Stangaveiðifélag Borgarness ætlar að fylgja mánuðinum eftir og bjóða til hnýtingarkvölds þann 10. mars kl. 19:00 í Grillhúsinu í Borgarnesi og þann 14. mars ætla grasrótarsamtökin Fluguhnýtingar á Vesturlandi að standa fyrir hnýtingarkvöldi á Akranesi. Það er því um að gera að fylgjast vel með þó Febrúarflugum fari brátt að ljúka, það er nefnilega mikið líf með hnýturum eftir Febrúarflugur.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Aðeins einn dagur …

    31. janúar 2025
    Febrúarflugur

    Upp

    Forsíða

    Nú er aðeins einn dagur í að Febrúarflugur 2025 hefjist og stuðningsaðilar keppast við að finna upp á skemmtilegum viðburðum til að gera febrúar að skemmtilegasta mánuði ársins fyrir hnýtara og áhugafólk um flugur. Meira, miklu meira um það þegar Febrúarflugur hefjast, við þraukum þennan eina dag í sameiningu …

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
1 2 3
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 177 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar