Loksins, loksins. Það er komið að því að þessi mynd verður gefin út á Íslandi með íslenskum texta og hvað eina. Það er Stjáni Ben. í Iceland Angling Travel sem gefur myndina út og hægt er að panta hana í forsölu hér. Klippan sem ég bloggaði fyrst um í maí 2010 er loksins að verða að raunverulegri mynd.
-
The Source – Iceland
Höfundur:
-
Hooked on Scottish
Ekki láta nafnið á þessum þætti plata ykkur. Hérna er á ferðinni þáttur úr Skoska sjónvarpinu frá árinu 1996 þar sem þáttarstjórnandinn heimsækir Ísland og kynnir sér nokkrar af (þá) upprennandi ám Íslands. Vegna takmarkana STV má ég ekki linka beint á klippuna, en hægt er að skoða hana með því að smella hér eða á myndina.Það eru fleiri þættir úr þessari seríu aðgengilegir hér, en rétt er að taka það fram að þetta eru c.a. 25 mín. þættir hver og einn þannig að þeir bæta verulega við erlent niðurhal.
E.S. Tók nokkur eftir brandaranum um ‘upprennandi’ árnar?
Höfundur:
-
2000+
Takk fyrir allar heimsóknirnar, yfir 2000 innlit á rúmum mánuði hlýtur bara að teljast nokkuð gott. Af þessu tilefni fór ég aðeins yfir hvað helst væri skoðað af blogginu og þá stóðu uppskriftirnar uppúr. Til að gera þær aðgengilegri hef ég nú flokkað flugurnar eftir því hverjir láta helst glepjast af þeim og bætt við stærðum hverrar flugu eins og ég vil helst hafa þær í boxinu mínu.Vonandi safnast síðan saman fleiri uppskriftir að áhugaverðum flugum. Ykkur er velkomið að senda mér ábendingar um þær flugur sem vert væri að geta eða hafa reynst ykkur vel. Ég mun reyna að útvega lýsingar af þeim, uppskriftir og einhver gáfuleg komment.
Höfundur:
-
Flugur – uppskriftir
Í framhaldi af boxinu mínu, fór ég í gegnum nokkrar bækur og greinar með flugu uppskriftum sem ég hef sankað að mér og setti einar 23 niður á vefinn. Þetta eru sem sagt uppskriftir og athugasemdir á 23 af 24 flugum sem ég þykist ætla að hafa í boxinu mínu á næstunni.Uppskriftirnar eru aðgengilegar úr greininni ‘Boxið mitt’ með því að smella á nafn viðkomandi flugu. Eins má nálgast þessar uppskriftir úr valmyndinni undir Flugur / Uppskriftir.
Höfundur:


