
Það má greinilega teygja og toga nöfn jólasveinanna, rétt eins og þetta hnýtingarefni. Bleikjusleikir hefur greinilega ákveðna vinyl rip flugu í huga.


Það má greinilega teygja og toga nöfn jólasveinanna, rétt eins og þetta hnýtingarefni. Bleikjusleikir hefur greinilega ákveðna vinyl rip flugu í huga.
Höfundur:

Ef þið rekið augun í veiðimann, hoppandi um á öðrum fæti næsta sumar, þá gæti það verið ég. Litli pungur laumaði einum sokk í pakka dagsins (Litli pungur er virkilega nafn á jólasveini, sjá Wikipedia)
Höfundur:

Mathákurinn Fiskigleypir sendi mér þessa flugu í pakka dagsins. Það er eflaust orðið hart í ári hjá honum eftir að VogS ruddi sér til rúms.
Höfundur:

Jæja, nú er Tvíhendir farinn að leggja manni lífsreglurnar. Ætli veiðifélaginn hafi eitthvað haft um þetta að segja?
Höfundur:
Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að Veiðikortið 2021 er komið út og ég er kominn með mitt eintak í veskið og þar verður það út næsta ár. Þau eru orðin nokkur kortin sem ég hef safnað saman. Á meðan maður klippir öll önnur kort um leið og þau renna út og er bara guðs lifandi feginn að það safni ekki kostnaði, þá held ég í fast í Veiðikortin mín og geymi þau á vísum stað.

Hverju einasta af kortunum mínum fylgja minningar úr vötnunum, af fiskinum og sumrinu sem gott er að ilja sér við á meðan beðið er eftir næsta sumri. Næsta sumar er næstum því handan við hornið og þangað til blaða ég í gegnum bæklinginn sem fylgir kortinu.
Höfundur:

Ég átti nú alveg eins von á að þessi sveinn héti eitthvað óskiljanlegt, en kannski er Bjórþambi bara alveg eins á íslensku og færeysku.
Höfundur: