Ekki lofaði nú veðurspáin góðu með þessa veiðiferð, en það hefði nú alveg verið hægt að koma út einhverri línu með ormi á endanum þótt hann spáði 4-9 m/sek. en að koma einhverju kvikindi út í 16 – 26 m/sek. er svolítið annað mál. Gerðum heiðarlega tilraun í gærkvöldi til að leita að fiski við sleppitjörnina í Kjarnholti og ég sá einn, enn hann vildi frekar liggja á botninum heldur en eltast við spún eða maðk. Vegna vinds var ekki viðlit að koma út flugu svo eitthvað vit væri í og svo tók steininn alveg úr þegar á okkur skall þetta kolvitlausa veður í nótt og í morgun svo ekkert varð úr hollinu kl.7 – 13. Þegar svo veðrið gekk nánast ekkert niður eftir hádegi og fyrirséð að hollið frá 16-22 yrði tómur barningur í vindi (sbr. myndina hér að ofan), pökkuðum við okkar hafurtaski og fórum heim. Nei, ég neita því alfarið að við höfum komið með öngulinn í rassinum, hann lá óhreyfður í veiðiboxinu og því telst þetta ekki með.
-
Tungufljót 6.-8. júlí
Höfundur:
-
Meðalfellsvatn
Skruppum í Meðalfellsvatnið í gær, sem var lítið spennandi. Væntanlega var eins farið með fiskinn og mig, mér fannst hávaðinn og lætin við vatnið aðeins of mikil. Látum það vera að menn slái blettinn sinn eða snyrti einn og einn runna með bensíngræjunum, en 20 feta spíttarar á fullu gasi á vatninu eru nú ekki alveg á top 10 óskalistanum mínum á fallegum laugardegi. Já, ég er fúll enda fékk ég ekki einn einasta fisk.Höfundur:
-
Sléttuhlíðarvatn
Óhætt er að mæla með Sléttuhlíðarvatni, sjá hér. Nægur fiskur í vatninu og virðist vera nokkuð jöfn veiði sama hvar maður er staddur á bakkanum. Að vísu fundum við ekki eina einustu af umræddum sjóbleikjum, aðeins staðbundin urriða. Annars frábær túr og komum heim með 15 stk. á bilinu 1/2 til 1 pund.Höfundur:
-
Vinstri græn

Vinstri græn Og ekki gerði þessi verri hluti í Sléttuhlíðarvatni. Vængur samsettur úr rauðri hænufjöður og marabou, rautt skegg og búkurinn (sést ekki mjög vel á mynd) vafinn úr grænu tinsel. Skottið útbúið úr ríkulegum vöndli af fínum grænum og rauðum tinsel-strimlum. Ekkert annað nafn kom til greina. Eggjandi, öflug og umhverfisvæn. Tryllir letilega urriða á botni (með sökktaum) og æsir þá spræku á yfirborðinu (með flottaum).
Höfundur:
-
Framkastið
Grundvallaratriði – framkastið eins og The New Fly Fisher kynnir það.
Fleiri myndbrot frá The New Fly Fisher er að finna á YouTube
Höfundur:
-
Hítarvatn 22.-24.júní
Skruppum í jómfrúarferð í Hítarvatnið. Komum okkur fyrir í hrauninu austan við Hólm og veiddum mest þar og inn að Hólmi, en kíktum líka í víkina vestan við tangann. Fengum 2 á spún, 2 á flugu og 8 á maðk. Ekkert síðri veiði rétt fyrir hádeg heldur en að kvöldi. Nokkur vindur sem losaði okkur við fluguna sem varð skæð þegar lygndi. Mikil traffík við vatnið og margar sögur af fyrri afrekum (60+ stykki á 4 tímum o.s.frv.) Fórum sátt miðað við afla annarra á staðnum þótt stærð fiska hafi ekki verið neitt rosaleg, frá 1/2 pundi og upp úr.Höfundur:


