Þó til séu einn og einn sem takið bakteríuna mjög alvarlega, þá þarftu ekki að sökkva þér niður í lífríki hvers einasta vatns til að velja ‚réttu‘ fluguna. Til eru nokkrir listar yfir ‚öruggar‘ flugur sem sjaldan bregðast, eina vandamálið er að finna þann lista sem virkar. Sjálfur á ég mér mínar uppáhalds flugur, konan mín sínar (sem er raunar bara ein, Black Ghost) en þegar öllu er á botninn hvolft og manni tekst að horfa framhjá mismunandi heitum, þá eru þessir listar næstum allir eins. Ekki hengja þig í hvort fluga sem er búin til úr koparvír heiti Koparmoli, Copper John eða Rafmagnsflugan, þær eru allar mjög keimlíkar.
-
Bábilja – Háskólapróf
Höfundur:
-
Bábilja – Langt í veiði
Ef við erum að tala um vegalengdir, þá er næsta veiðivatn aldrei langt undan hér á Íslandi. Hringinn í kringum höfuðborgina iðar allt af lífi í vötnum í innan við 50km radíus, það sama má segja um alla aðra staði á Íslandi. Ef við erum aftur á móti að tala um að það er svo langt í veiði í dögum talið, þá er svarið já.Höfundur:
-
Bábilja – Dýr veiðileyfi
Enn og aftur, nei. Ef við erum ekki að tala um primetime í einhverri L-á með veiðihúsi og öllu tilheyrandi, þá getur þú alveg komist í góða veiði fyrir lítinn aur. Vatnaveiðin er mitt sport, pakka nóg af mat í fellihýsið, renni út úr bænum á föstudegi og sést svo ekki heima fyrr en aðfararnótt mánudags. Ef þú sérð fram á að fara í 4-5 vötn á sumri, þá getur alveg borgað sig að festa kaup á Veiðikortinu. Sjálfur nota ég það töluvert og bæti svo kannski einu og einu vatni við sem ég borga aukalega. Dagurinn í þokkalegu vatni getur verið á bilinu 1.000 – 2.000 og ekki verra að þekkja einn eða fleiri landeigendur (bændur).Höfundur:
-
Bábilja – Dýrar græjur
Einfalt, nei. Fluguveiðar, eins og allt annað sport, geta verið kostnaðarsamar en þú stjórnar því mikið til sjálfur. Auðvitað getur þú farið ‚overboard‘ og keypt þér allt það besta og dýrasta, en þú getur líka keypt þér skynsamlegt sett til að byrja með; 8-9 feta stöng með línu 5-7, tvo mismunandi tauma, alhliða taumaenda (2X) og box með 20-30 flugum. Hafðu bara eitt í huga, ekki kaupa bara einhverja stöng, veldu merki sem þú hefur í það minnsta heyrt minnst á eða góður vinur þinn mælir með.Höfundur:
-
Vífó, 3.apríl
Aðeins meiri kastæfingar um og eftir hádegi í Vífilsstaðarvatni. Nokkrir í svipuðum erindagjörðum þegar mig bar að, en þeim fækkaði fljótlega. Vorum aðeins tveir eftir um kl.14 en þá dreif að nokkurn mannskap. Varð svo sem var við fisk en tökurnar voru svo naumar að ekkert hékk á. Prófaði helst þyngdar púpur; Pólska Pheasant Tail með kúluhaus, Red Tag og svo svartan og rauðan Buzzer. Jæja, 46. aldursárið byrjaði alveg eins og því 45. lauk, með öngul í rassi.Höfundur:
-
Meðalfellsvatn, 2.apríl
Höfundur:

