
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Gefðu þér tíma
Enginn verður óbarinn biskup – Ekki er flas til fagnaðar – Góðir hlutir gerast hægt og svo má lengi telja alla málshættina sem ættu að fá menn til að slaka á og fara sér hægt. Ég hallast reyndar alltaf meira að; Það er ekki eftir neinu að bíða, en hinkrum nú samt aðeins við.

Enginn asi á þessari Þegar ég set í nýja flugu eða einhverja sem nokkuð er um liðið frá því ég hnýtti síðast, hef ég þann háttinn á að fara mér hægt, mjög hægt. Fyrir kemur að ég bakki meira að segja til baka í miðri flugu, reki upp eða losi eitthvað sem ég hef þegar fest, bara til þess að reyna aðra aðferð eða röð á efni ef ske kynni að sú aðferð sparaði mér tíma og/eða efni þegar ég byrja síðan í alvöru að hnýta þau eintök sem þarf. Svo nota ég oft fyrstu fluguna til að mæla það magn af efni sem ég vil hafa í henni, stundum þarf að taka af væng, minnka dubb eða spara í haus flugunnar þannig að hún verði ekki eins og fílamaðurinn þegar búið er að lakka hausinn.
Allt þetta káf á mér við fyrstu fluguna verður vitaskuld til þess að hún verður heldur óásjáleg, illa hnýtt og endist örugglega ekki nema í einn eða tvo fiska. En, þetta verður samt yfirleitt til þess að ég spara mér tíma og hnýtingin verður öruggari þegar kemur að flugum nr. 2 – 7 sem fylgja yfirleitt í kjölfarið. Sjáið til, yfirleitt þarf ég nefnilega að hnýta fyrir tvo veiðimenn og leiðist það ekki.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Sportsman Guide across Canada – Plate L

Sportsman Guide across Canada 1956 Höfundur:
-
Skipulag
Yfirleitt er það nú þannig að þeim sem sæi hnýtingaraðstöðuna mína dytti eflaust í hug að ég sé algjörlega laglaus. Í það minnsta fer ekki mikið fyrir þessu Skipu-lagi hjá mér þegar ég er að hnýta en áður en ég hefst handa horfir öðruvísi við. Þetta tek ég fram hér í upphafi nokkurra greina sem ég hef tekið saman um æskileg vinnubrögð við fluguhnýtingar. Myndirnar sem ég tók fyrir þessar greinar voru auðvitað teknar eftir rækilega tiltekt og snurfus á hnýtingarborðinu mínu, en þetta skipulag vill oft hverfa eins og dögg fyrir sólu eftir nokkrar flugur og við tekur mjög vel skipulagt kaos.

Allt í röð og reglu Yfirleitt er það nú svo að ég skipulegg hnýtingarnar mínar með smá fyrirvara, tek til á borðinu og raða áhöldum, koppum og kirnum á sinn stað þannig að ég viti nákvæmlega hvar hvað er þegar ég set í fyrstu fluguna. Ég nota mottu, gjarnan aflagða músamottu á röngunni, fyrir þær græjur sem ég þarf í viðkomandi flugu. Þá þarf ég ekki að kippa græjunum upp úr svampinum, þar sem þær eiga heima að öllu jöfnu og þá eru þær á vísum stað. Trúlega er ég með einhvers konar brest, afbrigði sem ég kann ekki að nefna, því ég vil helst hafa græjurnar alltaf í sömu röð. Lengst til vinstri er keflishaldarinn, svo skærin sem ég nota í vír og tinsel, síðan kemur nálin mín og svo skæri fyrir hnýtingarþráð og fjaðrir. Ef ég held mig við þessa röð í gegnum heila flugu, þá þarf ég aldrei að líta upp úr stækkunarglerinu til að finna það áhald sem ég þarf í það og það skiptið.
Þetta ráð, eins og með svo mörg önnur, er auðveldara að gefa heldur en ástunda. En hafi maður þetta í huga áður en lagt er af stað, þá er aldrei að vita nema það skjóti þannig rótum að það venjist.
Höfundur:
-
Sportsman Guide across Canada – Plate K

Sportsman Guide across Canada 1956 Höfundur:

