
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Ekta gervisilki
Þetta gamla góða var notað í einhverri auglýsingu hér um árið. En er þetta gamla alltaf gott eða er það kannski bara nógu gott eða mögulega orðið ónýtt? Ég fór að velta þessu fyrir mér um daginn þegar talið barst að því að standsetja hnýtingarborðið eftir sumarið, setja sig í startholurnar og yfirfara hnýtingarefnið og útbúa innkaupalista yfir það sem vantar.

Þeim fer fækkandi hnýturunum sem nota silkiþráð við hnýtingar, helst eru það hreintrúarmenn sem hnýta þessar klassísku alveg eftir forskriftinni sem nota silki, held ég. Silki og silki er ekki það sama, ég komst að því þegar ég eignaðist nokkrar spólur af nokkuð þykku silki til skrauts um árið. Umbúðirnar voru vandlega merktar silk made from polyester sem er náttúrulega svipað og segja ekta gervileður. Polyester er gerviefni sem eldist mjög vel, það er næstum því eilíft, því miður liggur mér við að segja. Þetta er plastefni sem eyðist mjög hægt í náttúrunni. Alvöru silki er af allt öðrum toga og í allt öðrum verðflokki. Silki er náttúrulegt efni, slitsterkt en eyðist auðveldlega og á því passaði ég mig ekki. Ég átti nefnilega líka mjög fíngert silki sem ég passaði ekkert sérstaklega vel og það einfaldlega skemmdist á fáum árum. Ef þú átt alvöru silki, prófaðu slitstyrkinn áður en þú byrjar á einhverri fallegri flugu í vetur og lendir í endalausum vandræðum og slítur þráðinn í sífellu. Beint út af reynslubankanum; athugaðu vel hvort þráðarhaldarinn þinn sé örugglega ekki standi, ekki skörðóttur eða pakkaður af lakkleyfum áður en þú þræðir hann með silki. Silki trosnar og slitnar mjög auðveldlega ef einhver fyrirstaða eða skörð eru í rörinu í haldaranum, meira að segja þótt það sé nýtt og í fullkomnu lagi.
Höfundur:
-
Meiri aftöppun
Stundum er það svo að maður viðheldur þessari dellu með því að hugsa hlutina alveg í tætlur á meðan maður bíður eftir næsta sumri. Þannig fór með mig um daginn þegar ég var búinn að einsetja mér að tappa af félaga mínum næsta vor um hægfara flugur í straumvatni. Ég fór sem sagt á stúfana, rifjaði upp nokkrar greinar sem ég hafði lesið fyrir margt löngu setti niður aðgerðalista fyrir næsta sumar.

Brúará Númer eitt – Koma línunni út og helst á réttan stað á ánni. Enn varð mér hugsað til Brúarár og þeirra vandræða sem ég lenti í með allan gróðurinn. Ekki í vatninu, heldur fyrir aftan mig. Grín laust, ég þarf að temja mér færri falsköst og annan stíl þegar kjarrið er svona krefjandi fyrir aftan mig. Ef mér tekst það, þá þarf ég að læra hvert í strauminn línan á að fara. Öll þessi horn og gráður sem veiðimenn hafa í huga þegar þeir kasta í straum. 30° eða 45°? Ég veit hvað gráður eru, en ég hef aftur á móti mjög takmarkaðan skilning á því sem þessi horn gera fyrir línuna mína, hvað þá fluguna.
Númer tvö – Velja rétta flugu fyrir straumvatn. Maður heyrir af mönnum í straumvatni sem veiða með nákvæma sömu flugum og ég nota í vatnaveiðinni. Mér finnst það skiljanlegt því þetta er jú sami fiskurinn, hvort sem hann er í straumi eða kyrru vatni, að því gefnu að við erum að tala um silung. En hvenær setja menn púpur undir í straum og hvenær Nobbler? Virkar Nobbler annars ekki í straum, hann er jú eftirlíking af seiði eða hornsíli. Ég þekki mjög fáa urriða sem fúlsa við fallegum Nobbler í vatni, þeir hljóta að vilja hann líka í straum.
Númer þrjú – Er ég með réttu græjurnar? Nei, ég er ekki að ýja að því að ég þurfi að kaupa nýja stöng, línu og tauma bara til þess að prófa straumvatn, en kannski þarf ég þess, hver veit og þá tek ég því bara eins og hverju öðru hundsbiti. Kannski þarf mér ekkert að leiðast það rosalega að skoða nýjar græjur.
Höfundur:
-
Gleðilega hátíð

FOS.IS óskar öllum veiðimönnum, nær og fjær gleðilegrar hátíðar og vonar að eitthvað veiðilegt komi upp úr pökkunum í kvöld. Við þykjumst vita að einhverjir geti blaðað í þessi bók í kvöld því nokkrum útsjónarsömum ættingjum tókst að næla í eintök af henni fyrir þessi annars veiðibókalitlu jól þetta árið.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Á meðan beðið er
Á meðan maður bíður eftir vorinu ljúfa, þegar fiskar fara á stjá, maður smeygir sér í föðurlandið og lætur sjá sig á bökkunum, þá er ágætt að fara aðeins yfir síðasta sumar og rýna til gagns.
Eitt af því sem kemur alltaf upp í huga minn þegar ég hugsa til baka, eru köstin og stundum vildi ég óska þess að ég hefði einhverja smá aðstöðu þar sem ég gæti veifað stönginni og fylgst með sjálfum mér og villunum mínum. Mér hefur nefnilega verið sagt að því betur sem maður kasti, því fleiri fiska veiði maður og þar sem ég fer ekkert dult með ástríðu mína á veiði, þá höfðar þetta mjög vel til mín.

Svo lengi sem ég hef ekki aðstöðu til að rýna eigin köst yfir hörðustu vetrarmánuðina, þá verð ég víst að láta mér nægja að lesa, lesa aftur og reyna að prenta inn í langtímaminnið þær grundvallarreglur sem flugukastið gengur út á. Góður kastari er sagður sá sem ræður yfir mismunandi kaststíl, því einn góður stíll dugar jú vel, en að ráða yfir fleiri kaststílum og aukinni tækni er alltaf til bóta. Fyrir fimm árum síðan setti ég hér inn nokkrar greinar og klippur sem hnykkja á jafnt mörgum grundvallaratriðum flugukastsins sem þeir feðgar Jay og Bill Gammel settu fram í bókinni The Essentials of Fly Casting. Þessar reglur eru enn í gildi og ég kíki reglulega á þessar greinar og myndbönd á vetrum. Ef þessar greinar hafa farið framhjá þér, þá eru þær hérna.
Höfundur:

