Að loknum Febrúarflugum 2026 er mér efst í huga þakklæti til þess 151 hnýtara, þar af 15 nýrra meðlima, sem sýndu okkur 1.233 flugur í viðburðinum að þessu sinni. Enn og aftur, hverjum datt sú vitleysa í hug um árið að fluguhnýtingar væru deyjandi á Íslandi?
Aldrei áður hafa jafn margir fylgst með Febrúarflugum eins og í ár. Meðlimir hópsins eru orðnir 2.179 og þeir standa á bak við kvartmilljón flettingar í mánuðinum þannig að manni liggur við að spyrja; Hvað gerði allt þetta fólk annað í febrúar en skoða flugur?
Tölur segja okkur þó aldrei söguna af því hve margir komu saman, hingað og þangað í mánuðinum og nutu skemmtilegra stunda við fluguhnýtingar. Hópar, smáir sem stórir hittust, formlega og óformlega, leynt og ljóst í mánuðinum og áttu gæðastundir við fluguhnýtingar og spjall um stangveiði. Ég færi mörgum slíkum hópum þakkir fyrir að leyfa mér að vera með þetta árið, svo mörgum raunar að mér gafst ekki færi á að taka þátt í öllu sem stóð til boða.
Fjölgun nýliða í Febrúarflugum er sérstakt ánægjuefni í mínum huga, hún er til marks um heilbrigða endurnýjun meðal hnýtara, jafnvel fjölgun. En, það verður bara að segjast að þetta árið voru margir þeirra svolítið einir úti í horni. Það er í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt, þetta er gott einsmanns áhugamál, en ekki eru allir fyrir einveruna endalaust. Í ár varð ég var við mikinn áhuga nýliða á að hitta aðra hnýtara og var margspurður um það hvort FOS stæði fyrir hnýtingarkennslu eða samkomum utan Febrúarflugna. Stutta svarið er einfaldlega; Nei, það eru aðrir betur til þess fallnir heldur en undirritaður og gefa sig meira að segja út fyrir það sérstaklega. Vandamálið er einfaldlega að þeir sem hafa eitthvað að bjóða, eru ekki nægjanlega sýnilegir yngri hnýturum og virðast treysta á að orðið á götunni berist ungu fólki þannig að það viti hvert það geti leitað. Orðið á götunni hefur fyrir löngu færst inn á samfélagsmiðla, ef það sést eða heyrist ekki þar, þá nær það ekki eyrum þeirra sem leita.
Einn mánuð á ári eru Febrúarflugur suðupottur fluguhnýtinga, nútíma orðið á götunni sem heyrist 250.000 sinnum og þetta vita stöku félög, klúbbar og vildarvinir hnýtara og hafa því tekið þátt í og stutt við átakið, verið sýnilegir. Kærar þakkir, þið sem hafið lagt til kryddið í pottinn á undanförnum árum. Eitt er víst, súpan smakkaðist einstaklega góð þetta árið.










Senda ábendingu