Stuart Billam er trúlega á meðal langlífustu manna sögunnar ef marka má meintan aldur einnar þekktustu flugna hans, Oakham Orange. Hver sem átti upptökin að því að segja fluguna vera frá síðari hluta 19. aldar og fjalla fjálglega um hana á veraldarvefnum hefur viðvarandi misskilning á samviskunni.
Ef við setjum okkur í þau spor að vera jákvæð og elskuleg í garð þess sem þetta gerði og segjum sem svo að hann hafi haft grun um að flugan væri t.d. frá 1885 (sem er reyndar einstaklega gjöfult ár í klassískum flugum) þá hefur Stuart Billam sannanlega orðið að minnsta kosti 130 ára á árinu því árið 2015 var hann enn á lífi eftir því sem ég best veit. Því miður veit ég ekki hvort hann hafi náð 140 árum eða meira, en það skiptir raunar engu máli af því þetta er hreint og klár della, því fluga þessi kom fyrst fyrir almenningssjónir árið 1987 í bókinni Bob Church‘s Guide to Trout Flies.
Enn önnur lífseig della er að Bob Church hafi hannað þessa flugu, rétt eins og sagt hefur verið um margar aðrar sem hann birti í bókum sínum. Trúlega á sá misskilningur rætur að rekja til þess að valdir hnýtarar leggja Bob lið við texta bóka hans sem sumir hafa í ógáti eignað Bob. Í þessi tilfelli er það Stuart Billam sem hefur orðið og segist hafa hannað þessa flugu fyrir veiði í Rutlandvatni í nágrenni heimabæjar síns, Oakham í Nottingham. Þykkur og mikill hringvafinn kragi flugunnar er ætlaður til þess að hún sitji hátt í vatninu og skapa þannig óróa og ólgu þegar hún er dregin inn. Hann getur þess jafnframt að eins og kunnugt er, þá veiði svona bjartar flugur einstaklega vel í björtu veðri, en flugan skeri sig svolítið frá öðrum sem hann hafi notað, því ef fiskurinn sýni henni lítinn áhuga, þá eigi veiðimaðurinn að færa sig upp um stærð frekar en niður því þá kveiki hún í fiskinum.

Hér að ofan er skönnuð mynd flugunnar af blaðsíðu 19 úr umræddri bók, upplýsingarnar og uppskrift flugunnar er á blaðsíðu 21. Ef svo óheppilega vill til að umrædd bók er ekki við höndina, þá má smella á myndina og lesa um fluguna hér á FOS.









Senda ábendingu