Nú eru Febrúarflugur á sínum ellefta degi þetta árið og 412 flugur hafa þegar komið fram frá 82 hnýturum. Meðlimir Febrúarflugna eru nú 2009 þegar allt er talið og hefur fjölgar hratt undanfarna daga. Þó nokkrir nýir meðlimir hafa sett inn sínar fyrstu flugur við góðar undirtektir í hópinum og síðustu daga hafa gamlir og rótgrónir meðlimir tekið við sér og heldur betur spýtt í lófana.
Velunnarar átaksins hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja, boðið hnýturum afslátt af hnýtingavörum og, svo gripið sé til handboltalíkingar, gripið boltann sem FOS sendi út í kosmósið og staðið fyrir uppákomum sem hafa verið vel sóttar. Hafi sendinginn verið eitthvað léleg hjá FOS, þá skal það ítrekað að hverjum sem hug hefur á að koma á framfæri opnu húsi eða viðburði sem hnýturum og áhugafólki um flugur og fluguhnýtingar stendur til boða í febrúar, er velkomið að senda FOS skilaboð og við komum því á framfæri í hópinum á Facebook. Allt sem kemur flugunum í fyrsta sætið í mánuðinum er uppleggið með Febrúarflugum.










Senda ábendingu