Flýtileiðir

Föndurstund

Það er ekki ný saga að fluguhnýtarar eru margir hverjir miklir föndrar, þeir föndra við hverja flugu sem þeir hnýta, taka allt út úr núvitundinni að sitja við þvinguna og raða alls konar hnýtingarefni upp á rör eða króka. Þó flestir hnýtarar sæki efni í veiðivöruverslanir hér heima. þá eru það ekki einu verslanirnar sem bjóða upp á hráefni sem nýta má í flugur. Sumir kíkja reglulega í garnbúðir og athuga hvort eitthvað skemmtilegt garn hafi komið í hillurnar, aðrir kíkja eftir frauði í föndurbúðum til að lyfta flugunum aðeins upp eða jafnvel glerperlum af ýmsum stærðum og gerðum sem hægt er að nota í hnýtingar.

Fyrir margt löngu síðan eignaðist ég box með einum 12 hólfum, fullum af glerperlum í þremur litum frá gulu yfir í brúnan í fjórum stærðum. Ég þori ekki að skjóta á hve margar perlur eru í þessu boxi, einfaldast að segja að þær eru óendanlega margar. Þessar perlur hef ég notað í ýmsar flugur í gegnum árin, flestar til að auka sýnileika þeirra eða þyngja hóflega. Þannig að því sé haldið til haga, þá munar reyndar ekki miklu á þyngd glers og kopars eða brass, en það klampar óneitanlega meira á glerið heldur en málminn.

Ýmsir hnýtarar hafa spreytt sig á að nota glerperlur, skemmst er að minnast Kavíar, Helgu Gísladóttur og sjálfur hef ég hnýtt Hrognið að erlendri fyrirmynd (einhver aulalega einfaldasta flugu sem til er). Blóðorm úr litlum rauðum glerperlum og ýmsar aðrar með glærri perlu í haus til að líkja eftir loftbólu rísandi klekju (e. emerger).

Ekki alls fyrir löngu settist ég síðan niður og hnýtti afar einfalda flugu eftir að hafa lesið mér til um kviðpokaseiði laxfiska, stærð þeirra og hvenær helst er að rekast á þau í ám, vötnum og lækjum hér á landi. Flugur þessar ganga, með einum eða öðrum samtengingum, undir heitinu Beaded Alevin upp á enska tungu, sem ég leyfði mér að einfaldlega að kalla Kviður upp á íslensku. Þegar ég hafði föndrað nokkur eintök af þessari flugu eftir ýmsum mismunandi uppskriftum, þá slökkti ég á skjánum og hnýtti þessa flugu eftir eigin höfði. Uppskrift að flugunni má nálgast hérna.

Því miður átti ég ekki hárauða glerperlu í réttri stærð, annars hefði ég líka hnýtt horsílahæng með sömu aðferð á örlítið stærri krók og nefnt hann Rauðkóng. Ég þarf kannski að kíkja í föndurbúð og verða mér úti um rauðar glerperslur.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *