Flýtileiðir

Þær eru að detta inn

Einhverra hluta vegna finnst mér eins og vinsælasta spurning dagsins sé ekki tengd EM í handbolta, Grænlandi eða verðbólgu á uppleið, heldur „Hvernig verða Febrúarflugur þetta árið?“ Stutta svarið er einfaldlega „Ég veit það ekki, en ég vona að þær verði jafn skemmtilegar og síðustu ár.“ Ef þetta gengur eftir, þá eiga stuðningsaðilar átaksins hrós skilið, en ekki síst rúmlega 1.800 hnýtarar og áhugafólk um flugur og fluguveiði sem fylgjast með á Facebook.

Og núna styttist í fyrsta útspil ykkar. Á miðnætti í kvöld gengur febrúar í garð og í fyrramálið vöknum við upp og virðum kannski fyrir okkur bronslitaðar EM flugur, útblásna appelsínugula Nobblera eða rauðar og hvítar Grænlandsflugur, hver veit? Eitt er víst, ég verð ævarandi þakklátur öllum þeim sem hafa tekið þátt í Febrúarflugum í gegnum árin og ég bíð spenntur eftir því að Flugurnar komist í fyrsta sætið enn einn heilan mánuð.

Stuðningsaðilum Febrúarflugna sem vilja koma sér á framfæri er bent á að skjóta skilaboðum á FOS (t.d. hérna) og láta vita af sínu framlagi þannig að unnt sé að koma því til meðlima Febrúarflugna.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *