Títaninn Atlas ber himininn uppi samkvæmt grísku goðafræðinni og til þess hefur væntanlega þurft töluverða krafta, Grettistak ef við færum okkur heim í átthaga þessarar flugu. Eins og um margar aðrar þekktar flugur, þá varð hún til fyrir ákveðinn veiðistað, nánar tiltekið Sogið. Á síðasta snúningi, korter í háttatíma settist höfundur flugunnar, Ólafur Hilmar Foss niður kvöldið fyrir veiði og hnýtti þessa flugu vorið 2021. Hann hafði heyrt að eitthvað dökkt, með einhverju pínulitlu rauðu, væri að virka vel í Soginu og vegna tímaskorts varð hún að vera einföld og fljóthnýtt þar sem allt var á síðasta snúningi þetta umrædda kvöld.
Flugan sannaði sig ævintýralega daginn eftir og þegar Ólafur hafði sett í sjöundu bleikjuna á innan við hálftíma, fauk svolítið í makkerinn hans sem hafði ekki fengið eitt einasta högg og hann krafðist þess að fá að sjá þessa nýju flugu sem Ólafur hafði „grautað saman, hálfmeðvitundarlaus af þreytu kvöldið áður“, svo notuð séu hans eigin orð.
Undirritaður hefur fylgst með höfundi flugunnar allt frá árinu 2021 þegar hann setti sínar fyrstu flugur inn í Febrúarflugur og til gamans þá gefur hér að neðan að líta allar Febrúarflugurnar hans frá upphafi, 79 talsins.
Ólafur var svo vinsamlegur að hnýta nokkur eintök af Atlas fyrir FOS og upplýsa um efnistökin þannig að (loksins) er Atlas kominn hérna inn á FOS.
























































































Senda ábendingu